Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Side 34
Maki 27. júní 1981, Sigríður kennari, f. 29. júli 1957 i
Kópavogi, Guðmundsdóttir Jóns prentsmiðjustjóra þar Bene-
diktssonar og konu hans Sigurlaugar Jónu Jónsdóttur verk-
stjóra á Siglufirði. Barn Anna Jóna f. 20. nóv. 1981 í Lyngby,
Danmörku.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 23. maí 1984. H. G.
Finnur Hrafn Jónsson (V
1984), f. 31. mars 1958 í
Rvík. Foreldrar Jón
Hermann kennari í Vogum,
f. 6. júlí 1917, Kristjánsson
búfræðings og útvegsbónda
í Nesi í Grunnavík, N-ís.,
Jónssonar og kona hans Sig-
ríður Hrefna, f. 4. deS.
1923, Sigfúsdóttir skóla-
stjóra á Stórólfshvoli, Hvol-
hreppi, Rang., Sigurðsson-
ar.
Stúdent MH 1978, próf í
vélaverkfræði frá HÍ 1983.
Er við nám i tölvunarfræði við HÍ.
Finnur Hrafn Jónsson er systursonur Sigurðar Sigfússonar,
vélaverkfræðings.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 23. maí 1984.
H. G.
Leó Jónsson (V 1984), f. 6.
apríl 1958 á Akranesi. For-
eldrar Jón sölumaður í
Rvík, f. 11. jan. 1935, Leós-
son sildarmatsstjóra ríkisins
Jónssonar og kona hans
Iðunn saumakona, f. 5. júlí
1938, Elíasdóttir skipstjóra
á Akranesi Guðmunds-
sonar.
Stúdent MA 1978, próf í
byggingarverkfræði frá HÍ
1983. Verkfr. hjá Hagvirki
hf. í Hafnarfirði 1983—84,
en fór þá til framhaldsnáms
við DTH í Khöfn.
Maki 28. jan. 1984, Ragna lögfræðingur, f. 19. mars 1958 á
Akureyri, Haraldsdóttir bankafulltrúa þar Sigurðssonar og
konu hans Elísabetar Kemp bankastarfsmanns Guðmunds-
dóttur.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 23. maí 1984.
H. G.
Guðmundur Einarsson (V
1984), f. 30. apríl 1955 í
Rvík. Foreldrar Einar Þórir
rafverktaki þar, f. 5. júní
1931, Guðmundsson tré-
smiðs i Bakkagerði, Borgar-
firði eystra, Einarssonar og
kona hans Ása sölustjóri, f.
13. ág. 1937, Jörgensdóttir
tollvarðar í Rvík Þorbergs-
sonar.
Próf frá Raungreinadeild
TÍ 1979, próf í rekstrarhag-
verkfræði frá Tekniska
Högskolan í Linköping,
Svíþjóð, 1983. Verkfr. hjá Elektrisk Byro A.S. í Asker,
Noregi, frá 1983.
Maki 12. jan. 1974, Áse Marit Einarsson sjúkraliði, f. 22.
des. 1954 í Kristiansand, Noregi, dóltir Trygve Holtel verka-
manns í Vennesla, Noregi, og konu hans Gunhilde Thorbjörg
Holtet f. Thorgrimsen. Börn 1) Einar Þorgrímur, f. 14. júlí
1974 í Rvík, 2) Jörgen Andre, f. 3. febr. 1981 í Arendal,
Noregi.
Guðmundur Einarsson er systursonur Svönu Jörgens-
dóttur, konu Gunnars Torfasonar, byggingarverkfræðings.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 23. maí 1984.
H. G.
Ólafur Valgeir Einarsson, f.
3. júní 1952 í Rvik. Foreldr-
ar Einar sölustjóri þar, f.
17. jan. 1930, Egilsson sjó-
manns og síðar bónda á
Norður-Flankastöðum,
Miðneshreppi, Gullbr.,
Pálssonar og kona hans Ás-
gerður saumakona, f. 16.
febr. 1933, Ólafsdóttir
bónda á Bæ í Lóni,
A-Skaft., Snjólfssonar.
Stúdent MR 1972, próf í
sjávarútvegsfræðum frá
háskólanum í Tromsö,
Noregi, 1983. Sérfr. við fiskirannsóknir í Tromsö 1982—83,
útibússtjóri Hafrannsóknastofnunarinnar á Ólafsvík frá
1984.
Maki 23. des. 1977, Sigriður Breiðfjörð, f. 31. des. 1951 í
Rvík, Sigurðardóttir Breiðfjörðs bifreiðarstjóra þar Jóns-
sonar og konu hans Maríu Guðmundsdóttur sjómanns á
Suðureyri. Börn 1) Ásgerður, f. 20. mars 1979 í Tromsö, 2)
Valgerður, f. 16. des. 1982 s.st. Dóttir Ólafs V. Einarssonar
og Önnu, f. 9. febr. 1952, Halldórsdóttur: Jóna Valdís, f. 16.
mars 1974 á Akureyri.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 23. maí 1984.
H. G.
Kristján Guðmundur
Jóakimsson, f. 19. febr.
1958 í Hnífsdal. Foreldrar
Jóakim verkstjóri þar, f. 14.
nóv. 1919, Hjartarson skip-
stjóra þar Guðmundssonar
og kona hans Ólafía Guð-
finna f. 17. maí 1924, Alf-
onsdóttir baka í Hnífsdal
Gíslasonar.
Stúdent MÍ 1978, próf í
sjávarútvegsfræðum frá
háskólanum í Tromsö,
Noregi, 1984. Sjávarútvegs-
fr. við Hraðfrystihúsið
Norðurtanga hf., ísafirði, frá 1984.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 23. maí 1984.
H. G.
92 — TI'MARIT VFÍ 1984