Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST2004
Fréttir DV
Búféétur
golfvöll
Búfé hefur
undanfarið
skemmt golfvöll
Golfklúbbs
Homafjarðar í
Silfumesi með
því að éta ný-
græðinginn og
spyma upp jarð-
veginum. Daglega þarf að
reka kindur af vellinum, en
þær muna ekkert stundinni
lengur og koma aftur jafn-
harðan. Telja vallarstarfs-
menn að alltaf sé um sömu
kindumar að ræða. Vegna
ástandsins hefur bæjarráð
hótað því að fénu verði
slátrað samkvæmt 5. grein
samþykktar um búfjárhald á
Höfin.
Salamismygl-
ari á Leifsstöð
Tollverðir stöðvuðu
Davíð Guðjónsson,
pistíahöfund á Deiglunni
á dögunum og gerðu
salamiálegg sem hann
hafði keypt á Kastmp
upptækt. Tollverðimir
sögðu það ólöglegt að
koma með salamiálegg
inn í landið. „Ég er fullur
iðrunar eftir þetta brot
mitt en það sem verra er,
ég hef óafvitandi áður
gerst brotíegur salami-
smyglari," segir Davíð í
pistli sínum og bætir við:
„Sem löghlýðinn borgari
mun ég nú tilkynna brot
mitt til yfirvalda og taka
út tilhlýðilega refsingu."
Finnst þér
Sjónvarpið leggja
ofmikla áherslu
á íþróttir?
Súsanna Svavarsdóttir
fjölmiölakona
„Maðurer skyldaður til þess að
borga vöru sem maður hefur
engan dhuga d. Þetta fer alveg
rosalega i taugarnará mér. Það
getur verið að þeir sem stjórna
RÚV hafi áhuga á þessu, en
sjónvarpið erekki fyrirþá held-
ur þjóðina. Þetta er bara ofbeldi
sem er löngu gengið alltof
langt. I sumar hefur manni ver-
ið misþyrmt bæði með Evrópu-
keppni í fótbolta og svo ólymp-
íuleikunum. Þeir þyrftu að
leggja sér rás undir þetta fyrir
áhugasama."
Hann segir / Hún segir
„Þetta er ofmetið sjónvarpsefni.
Allt ergott I hófi. Mér finnst
þetta alltofmikið. Ég hefgam-
an afíþróttum en bara í hófí.
Mér fínnst allt vera gottí hófi.
Minn íþróttaáhugi takmarkast
við það að fara á Þróttaraleika.
Ég er hlynntur Ríkissjónvarpinu
og fínnst allt i lagi að greiða
mín afnotagjöld. Er ekkert sér-
staklega á móti því sem þar er
sýnt".
Halldór Gylfason
leikari
Helgi Jóhannesson hæstaréttarlögmaður óttaðist um líf sitt og heilsu og kærði
Garðar H. Björgvinsson bátasmið fyrir líflátshótun. Garðar skrifaði Helga bréf þar
sem hann sagðist ætla að drepa hann og elta hann á röndum. Garðar segist ekki
hafa meint hótunina bókstaflega heldur verið að etja Helga í sig. Lögregla hefur
gefið út ákæru á hendur honum.
Saksóknari Lögreglunnar í Reykjavík hefur gefið út ákæru á
hendur Garðari H. Björgvinssyni fyrir að hafa hótað Helga Jó-
hannessyni hæstaréttarlögmanni að drepa hann og elta hann á
röndum. Málið verður tekið fyrir hjá Héraðsdómi Reykjavíkur í
næstu viku. Garðar segir að hótunin hafi falist í því að drepa
Helga með „pennanum".
í ákæru Lögreglustjórans í
Reykjavík segir að Garðar sé ákærð-
ur fyrir að hafa í bréfi í janúar hótað
því að Helgi og umbjóðandi hans
Sigfús Guðmundsson yrðu báðir
„drepnir" og jafnframt hótað Helga
með eftirfarandi orðum: „Þú Helgi!
Þig mun ég vakta og elta á röndum
þar til öll þjóðin þekkir þig eins og
þú ert.“ í ákærunni segir að efni
bréfsins hafi verið til þess fallið að
vekja hjá Helga ótta um líf sitt, heil-
brigði og velferð sína.
Saksóknari lögreglunnar, Egill
Stephensen, krefst þess að Garðar
verði dæmdur til refsingar. Málið
verður þingfest fyrir
Héraðsdómi Reykjavrkur í næstu
viku og þar er Garðar kvaddur til að
koma fýrir dóm, hlýða á ákæru,
halda uppi vörnum og sæta dómi.
Ætlaði að drepa hann með
pennanum
Garðar segir í samtali við DV að
það sé fjarstæða að kæra hann fyrir
morðhótun. „Þetta var bragð hjá
mér til að koma málinu á framfæri
og etja Helga í mig,“ segir hann. „Ég
sagðist ætla að drepa hann með
pennanum. Ég meinti að ég myndi
skrifa þannig um hann að fólk fengi
að vita hvaða mann hann hefði að
geyma,“ segir hann.
Garðar hefur horn í síðu Helga
eftir að hann var lögmaður Sigfúsar
sem Garðar sakar um að hafa stolið
af sér báti úr bátastöð sinni og gert
sig gjaldþrota. „Sigfús skuldaði
mér þrjár milljónir í
peningum plús
krókaleyfi sem er 8
milljóna virði í
dag.“ Garðar
höfðaði dóms-
mál, flutti það
sjálfur en tap-
aði. „Það var
Helgi Jóhannes-
son sem stóð fyrir
því að bátnum
var stolið," segir
Garðar. „Það er
búið að eyði-
leggja líf mitt.“
Ég er fjölskyldumaður
þannig að maður veit
ekki til hvers hann er
líklegur.
Hefur hótað mér áður
Helgi Jóhannesson segir að
hann þekki til þess að Garðar eigi
ofbeldissögu að baki. „Hann hefur
hótað mér áður og nú gerði hann
það skriflega og mjög beinskeytt
þannig að mér fannst rétt að láta
lögregluna vita af því,“ segir Helgi.
„Ég er fjölskyldumaður þannig að
maður veit ekki til hvers hann er
líklegur," segir Helgi en vili ekki
fara nánar út í forsögu málsins.
Rassskellti mann og fór í
fangelsi
„Eg hata engan mann en ég get
orðið reiður þegar það er farið illa
að mér," segir Garðar. Hann hefur
einu sinni verið dæmdur fyrir lík-
amsárás, fyrir 20 árum og fékk
þriggja mánaða fangelsi.
Hann ienti í úti-
stöðum við
lögfræðing sem hann taidi ósvífinn
„og ég tók í hann, tók niður um
hann buxurnar og hýddi hann“,
segir Garðar. „Faðir minn kenndi
mér þegar ég var átta ára að ég ætti
aldrei að ljúga, aldrei að stela og
aldrei leggja hendur á konur en
karlmenn vaða ekkert yfir þig,
drengur minn, sagði hann við mig,“
segir hann.
Vill efla íslenskt siðferði
Garðar vinnur að því að koma á
fót vikublaði þar sem kristileg gildi
verði í hávegum höfð. Hann er einn
stofnenda Framtíðar íslands sem
vilja beita sér fyrir því með þýskum
guðspekingi að koma á nýju sið-
ferði á íslandi í anda kristinnar trú-
ar. „Blaðið á að heita Sannleikur-
inn. Það þarf að yfirtaka ísland með
nýju siðferði þar sem kærleikurinn
er ofar öllu og íslendingar segi ekki
nema það sem þeir geta staðið við
frammi fyrir öllum," segir Garðar.
En áður en hann stofnar hið nýja
dagblað með stuðningi kristilegrar
þýskrar hreyfingar, þarf hann að
verjast ákæru lögreglunnar um
morðhótun fyrir dómi.
kgb@dv.is
Helgi Jóhannesson
Segist þekkja til ofbeldis-
sögu Garðars og fannst
ástæða til að láta lögreglu
vita afhótunum hans.
DV-samsett mynd.
Garðar H. Björgvinsson Skrifaöi
Helga Jóhannessyni lögmanni bréf þar
| sem hann sagðist ætla að drepa hann
og elta hann á röndum. Segir fjar-
stæðu að fá ákæru fyrir morðhótun
þar sem hann hafi einungis ætlað að
skrifa illa um lögfræðinginn. Hann
heldur ótrauður áfram starfi slnu við
að koma á kristilegu siðferði á fslandi.
DV-samsett mynd.
Málum bjargað eftir að kynningarstjórinn fór í enska fótboltann á Skjá einum
Hallur & Hafstein opna Þjóðminjasafnið
Hallur Hallsson, fyrrverandi
fréttamaður með meiru, og félagi
hans Júlíus Hafstein, fýrrverandi
borgarfulltrúi, hafa verið ráðnir til
að sjá um kynningar fyrir Þjóð-
minjasafnið sem opna á að nýju í
næsta mánuði.
Eins og kunnugt er hrökk Snorri
Már Skúlason úr skaftinu sem
kynningarstjóri Þjóðminjasafnsins
þegar honum var boðið að annast
enska boltann á Skjá einum. Lá nú
mikið við hjá Þjóðminjasafriinu því
mörgu er þar að sinna á lokasprett-
inum áður en safnið verður opnað
að nýju í næstu viku eftir sjö ára
ítarlegt hlé.
Þeir Hallur og Júlíus eru auðvit-
að þrautreyndir í kynningum á
ýmsum viðburðum á vegum stjórn-
valda. Júlíus stóð til dæmis í brjósti
fylkingar við undirbúriing Kristni-
tökuhátíðarinnar á Þingvöllum og
var ásamt Halli aðalsprauta ríkis-
valdsins í 100 ára heimastjórn-
arafmælinu sem enn mun standa.
Enduropnun Þjóðminjasafns-
ins hefur ítrekað verið frestað frá
því endurbæturnar hófust árið
1997. f vor var sagt að endanleg út-
gáfa á opnunardeginum væri 1.
september næstkomandi. Við þá
dagsetningu er ætíunin að standa.
Því hefur nánast verið unnið dag og
nótt í sumar við að gera allt klárt.
Hallur Hallsson og Júlíus
Hafstein Kynna opnun Þjóð-
minjasafnsins eftir að Snorri
MárSkúlason fórlensku
knattspyrnuna á Skjá einum.