Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 25
DV Fókus
FIMMTUDACUR 26. ÁGÚST2004 25
Ómar Örn Hauksson fór í Perluna til að hitta Morgan Spurlock, manninn sem át bara McDonalds í heil-
an mánuð og gerði um það heimildarmynd. Myndin var frumsýnd hér á landi í gær en hún hefur vakið
athygli um allan heim. Spurlock segir meðal annars frá því að Subway hafi reynt að kaupa fimm
milljón eintök af myndinni á DVD og hvers vegna Bandaríkjamenn séu svona feitir.
Morgan Spurlock fékk hugmynd-
ina að myndinni Super Size Me árið
2002 þegar hann sá frétt þess eðlis
að tvær unglingsstúlkur hefðu farið í
mál við McDonalds og kennt þeim
um holdafar sitt. Lögmenn McDon-
alds fussuðu og sveiuðu og sögðu að
matur sem skjólstæðingur þeirra
byði upp á væri meinhollur og öllum
til bóta. Spurlock fékk þá þessa
snilldarhugmynd að sannreyna
þessa staðhæfingu. Að borða ekkert
nema McDonalds-mat í einn mán-
uð og athuga hvort að það hefði ein-
hver veruleg áhrif á hans heilsufar.
Einnig langaði hann að komast að
því af hverju Bandaríkjamenn eru
svona helvíti feitir.
Alvöru sveitamaður
Hvaðan ertu?
„ÉghefbúiðíNewYorkíu.þ.b 13
ár en ég ólst upp í Vestur-Virginíu
sem er ekki ólík Reykjavík að mörgu
leyti. Ég ólst upp á heimili þar sem
mamma eldaði ofan í okkur á hverju
kvöldi og foreldrar mínir hvöttu okk-
ur til þess að hreyfa okkur. Við fór-
um kannski einu sinni í mánuði út
að borða."
Oghvenær fékkstu áhugann áþví
að starfa íkvikmyndageiranum?
„Alveg frá því að ég var krakki
hefur mig langað til þess að búa til
bíómyndir. Þegar ég var 18 ára byTj-
aði ég að vinna í bransanum. Öll
skítastörf sem maður gat fengið en
smátt og smátt náði ég að vinna mig
upp á þann stað sem ég er á í dag."
Borðar nánast allt
Nú virðist þú vera frekarhraustur
maður. Hvemig voru matarvenjur
þínar áður en þú tókst á við þetta
verkefni?
„Ég hugsa svoh'tið um heilsuna,
fór meira að segja í gymmið í morg-
im en þrátt fyrir það segi ég ekki nei
við góðri steik eða hlussuís. ís og
Guinnes er örugglega mínir helstu
lestir þér að segja. Annars borða ég
eiginlega það sem ég vil," segir Spur-
lock en bendir á að kærasta hans sé
grænmetisæta sem hefur vissulega
áhrif á hann.
Hvernig var skyndibitaiðnaður-
inn íþínum huga áður?
„Aður en ég byrjaði á myndinni
voru skyndibitabúllurnar staðir sem
ég fór sjaldan á og ég hugsaði ekki
mikið um. Einu stundimar sem ég
fór á t.d. McDonalds var þegar ég var
að ferðast og maður neyðist til þess
að borða þetta - valkostir manns em
orðnir nánast engir."
Bandaríkjamenn eru latir
Þú spyrð í myndinni af hverju
Bandaríkjamenn séu svona feitir og
kemst að ákveðnari niðurstöðu. En
af hverju eru þeir svona blindir á
sína eigin fitu og lífshætti?
„Hreinlega af því að við sem þjóð
emm mjög löt. Við viljum allt strax,
núna og skyndibitinn þjónar þeim
tilgangi."
Er hægt að selja hollan skyndi-
bita?
„Svo sannarlega og það er þegar
gert. Ég bý í New York þar sem ég
get pantað allan andskotann og
fengið hann sendan heim til mín,"
segir Spurlock og heldur áfram:
„Bandaríkjamenn setja heilsu sína í
þriðja sæti þegar kemur að lífshátt-
um, í fyrsta og öðm em peningar og
veraldlegir hlutir sem eiga að gera
okkur hamingjusöm. Þess vegna
vinnum við eins og hestar til þess að
reyna að ná þessari „hamingju" og
emm síðan of löt til þess að kaupa
inn og elda góða máltíð. Börnin
okkar eiga svo eftir að taka þetta
upp eftir okkur. Eitt af því sem eyk-
ur neysluna á skyndimat er verðið.
Þessi matur, í Bandaríkjunum alla-
vega, er mjög ódýr. Við tókum á því
í myndinni, en fómm ekki mjög
djúpt í það vegna þess að ég viidi
ekki að fólk myndi segja að þetta
vandamál ætti þá bara við fátæka en
ekki hinn almenna millistétt-
armann."
Ég er ekki and-Ameríkani
Nú hafa myndir eins og Faren-
heit 9/11 eða Bowling for Col-
umbine ekki sýnt bandarískt þjóð-
félag í hinu besta ljósi og þú gerir
smá grín að þessari fituboiluþjóð.
Heldur þú að þessar myndir hafi
slæm áhrifá ímynd Bandaríkjanna?
„Það er mikilvægt að benda á
vandamál þjóðarinnar og sýna þeim
hlutina í réttu Ijósi. Ég hef verið
spurður af hverju ég og Michael
Moore séum að gera svona andam-
erískar myndir en ég held að það að
gera svona mynd sé mjög þjóðrækn-
islegt og þjóni landsmönnum mín-
um gífurlega með því að benda á
vandamálið og segja að það þurfi að
gera eitthvað í þessu. Og það hefur
virkað. Fólk vill ekki láta lesa yfir sér
og það lokar á það um leið og það
gerist en þegar maður h'tur á hlutina
í léttara ljósi og getur líka hlegið að
þeim þá virka þeir betur á fólk."
Heldur þú að þessi mynd eigi
einhvers staðar heima annars stað-
ar en íBandaríkjunum?
„Guð minn almáttugur svo sann-
arlega. Fyrir utan heilsuvandamálin
sem fylgja þessum lifhaðarhætti þá
eiga lönd eins og Island og lönd alls
staðar í heiminum á hættu á að
missa sín eigin einkenni vegna þess
að þau eru búin að taka upp þessa
bandarísku ímynd sem staðir eins
og þessir koma með. Þið verðið að
spyrja ykkur hvort að þið viljið líta
út eða bragðast eins og Bandaríkin,
því það er það sem mun gerast. Þið
verðið að halda í ykkar menningu,
hvort sem það er matarmenning
eða eitthvað annað því fyrr en
seinna munu keðjurnar ná yfir-
höndinni ef ekkert er gert í málun-
um. Ég vil ekki að heimurinn h'ti út
eins og Kansas, því að ég hef komið
þangað og það er ekki fallegt."
Blekkingar skyndibitakeðj-
unnar
Var það göfugt markmið að gera
þessa mynd?
„Mér fannst það mjög mikilvægt
því að við sem þjóð erum búin að
missa svo mikið af því sem gerði
þetta svo gott. Móðir mín eldaði allt
upp í mig og það er mjög erfitt að sjá
þá hefð deyja út og það eru allt of
margir í dag sem hreinlega kunna
ekki að elda og kjósa þess vegna að
borða þetta rusl sem er boðið upp á
vegna þess að það er fljótlegt og
ódýrt."
Hvað finnst þér um að fóik skuli
vera að fara ímál við þessi fyrirtæki
ogkenna þeim um offitu sína?
„Það eru mun betri aðferðir til
þess að taka á málunum en að fara í
mál en þetta er það sem við gerum
best, að kæra aðra, kenna þeim um
vandamál okkar og græða á þeim.
En mér finnst að það séu til betri að-
ferðir eins og t.d. að gera bíómynd."
Ég hef tekið eftir að McDonalds
hér heima hefur verið að auglýsa
grimmt nýja heilsurétti á sínum
matseðli. Heldurþú að það sé vegna
sýningar myndar þinnar?
„Þeir halda því fram að þessir
matseðlar hafi verið í burðarliðnum
svo mánuðum skipti og þessi mynd
hafi ekki haft nein áhrif á ákvörðun
þeirra. En ef þetta er planað svona
mikið fram í tímann af hverju eru þá
ekki næringargildisupplýsingarnar í
þessum bæklingum? Afhverju get ég
hvergi séð hvað er í þessum heilsu-
réttum á staðnum? McDonalds eru
snillingar í að villa um fyrir neytend-
um sínum. Neytendur fá þessa
heilsusamlegu ímynd frá fyrirtæk-
inu og það er gott fyrir viðskiptin.
Það lætur þá líta út fýrir að þeir hafi
umhyggju gagnvart viðskiptavinin-
um."
Hver voru viðbrögð samkeppnis-
aðila McDonalds, eins og t.d. Burger
King?
„Þeim létti gífurlega og héldu að
þarna hefðu þeir komist undan gíf-
urlegu áfalli en það sem ég held að
muni gerast er að McDonalds mun
nú fyrir árslok afnerna Super Size
valkostinn í öllum sínum útibúum
og ég held að allar aðrar keðjur muni
hljóðlega gera það sama. Og það er
ástæðan fyrir því að ég kaus McDon-
alds sem skotmark því að þeir eru
stærstir og sterkastir og allir aðrir
hafa fetað í fótspor þeirra varðandi
þjónustu og viðskiptahætti."
Boðið gull og grænir skógar
Hafa önnur íyrirtæki haft sam-
band við þig og boðið þér gull og
græna skóga?
„Subway höfðu samband við mig
eftir að myndin kom út og buðust til
þess að kaupa fimm milljón eintök
af DVD-disknum til þess að gefa við-
skiptavinum sínum ef þeir kaupa
fyrir ákveðna upphæð. Ég sagði
þeim að þetta væri hræðileg hug-
mynd og þetta myndi aldrei gerast
því að mér finnst þeir ekkert betri en
hinir. Mér finnst það mjög vafasamt
af fyrirtæki að predika yfir börnum
að eina leiðin til þess að léttast er að
borða þeirra vörur eins og Jared,
sem ferðast um skóla landsins og
hvetur börn að gera eins og hann.
En það versta er að það er til fólk um
öll Bandaríkin sem trúa þessu sem
eralveg ótrúlegt."
Hvað fínnstþér um það að heim-
ildarmyndarformið eraðfá gífurlega
athygli upp á sfðkastið og virðist
vera að ná meira til fóiks og hafa
meiri árangur en áður?
„Ég held að ástæðan fyrir þessu
sé sú að raunvöruleikasjónvarp er
orðið svo vinsælt þannig að fólk sem
hefur aldrei haft áhuga á heimildar-
myndum fær þetta næstum á hverj-
um degi og finnst formið athyglis-
vert. Við erum líka orðin svo þreytt á
því að fá alltaf brot af sannleikanum
af því að sjónvarpsstöðvarnar eru í
eigu eða eru styrktar af stórfyrirtækj-
um sem hafa hag að verja. Þess
vegna er heimildarmyndin í raun-
inni það síðasta frjálsa form til þess
að benda á hin ýmsu málefni því að
það er engin sem situr yfir þér og
segir þér hvað þú mátt og mátt ekki
gera," segir Spurlock og ríkur í burtu
á meðan ég skelli mér á næstu borg-
arabúllu.
„Þið verðið að halda íykkar menningu, hvort
sem það er matarmenning eða eitthvað annað
því fyrr en seinna munu keðjurnar nó yfir-
höndinni efekkert er gert í máiunum. Ég vii
ekki að heimurinn líti út eins og Kansas, því að
ég hefkomið þangað og það er ekki fallegt."
-<r
<