Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004
Fréttir T3V
Áfram tafir
við Ólafsfjörð
Unnið er að viðgerðum
á veginum í Ólafsfjarðar-
múla og bú-
ast má við
töfum á veg-
inum af þeim
sökum næstu
daga. Öku-
menn stórra flutningabif-
reiða eru beðnir um að
hafa samráð við verkstjóra
á staðnum. Ólafsfjarðarveg-
ur við Bustabrekku er enn
lokaður vegna vatns-
skemmda sem og þjóðveg-
urinn á Ströndum frá
Bjarnarfirði að Norðurfirði
en búist er við að takist að
opna hann á næstu dögum.
Kindur í
sjálfheldu
Björgunarsveitin á
Drangsnesi var í gær kölluð
til þess að aðstoða Bjarn-
firðinga á Ströndum við að
bjarga kindum. Kindurnar
sem gátu sig hvergi hreyft
höfðu lent í sjálfheldu
vegna mikilla vatnavaxta í
Bjarnfjarðará. Mikið vatn
hafði safnast í kringum
kindurnar og óttuðust
menn að áin græfi undan
þeim. Björgun kindanna
gekk vel en Strandvegi var
lokað norðan Bjarnfjarðarár
vegna hættu á aurskriðu.
Bíllausi
dagurinn
Sigurður Þ. Ragnarsson
veðurfræðingur.
„Bfllausi dagurinn er nauðsyn-
legt framtak til að vekja okkur
til umhugsunar um hvort viö
þurfum aðnota bílana okkar f
þeim mæli sem við gerum. Er
ég.hér meðal annars að hugsa
um útblástur gróöurhúsaloft-
tegunda og þá ógnun sem
virðist vera þar á ferðinni. Hitt
er annað mát að veðrið í dag
skemmir kannski fyrir því það
errigning víða um land."
Hann segir / Hún segir
„Ég sæi mig nú sjálfa í anda
fara ööruvlsi en á bílnum -
ekki nema þá efég væri I mjög
stuttu göngufæri. Kannski er
það bara ég sem er svona háö
bllnum mlnum. Það hljómar
vel að hafa einn dag á ári sem
bíllausan en ég held að það
séu ekki margirsem sleppi
bílnum og taki strætó bara
þess vegna. Iþað minnsta var
ekki minni umferð á leiðinni í
vinnuna Imorgun en Igær.‘‘
Halldóra Maria Einarsdóttir,
fyrrverandi stjórnandi bllaþáttar
á Skjá einum.
Víkingasveit með nýliðanámskeið hélt vöku fyrir íbúum i
Þorlákshöfn. Sprengingarnar heyrðust alla leið á Selfoss.
Hólmfríður Þorvaldsdóttir sem á von á tviburum allra næstu
daga, gat ekki sofið og þurfti að leita læknis vegna of hás
blóðþrýstings. Jón Bjartmarz yfirmaður Vikingasveitarinnar
segir málið verða skoðað.
Ótrísh á spílala efHr
sprenglngir sérsveitar
Sprengingar sérsveitar Ríkislögreglustjdra í Selvogi héldu vöku
fyrir íbúum í Þorlákshöfn og heyrðust alla leið á Selfoss. Jón
Bjartmarz yfirlögregluþjónn fékk fjölda símtala í gær
vegna málsins og ætlar að skoða hvers vegna fólk
ekki sofið vegna æfinga sem hafa verið eins frá
árinu 1983.
Hólmfríður Þorvaldsdóttir er
komin vel á níunda mánuð, gengur
með tvíburum og er búsett í Þorláks-
höfn. Hún var lögð inn á sjúkrahús í
gær eftir skelfilega nótt þar sem hún
átti von á því versta. Hún hélt að
heimurinn væri að farast.
„Dynkirnir skullu á húsinu okkar
l£kt og hljóðbylgjur og mér datt ekk-
ert annað í hug en náttúruhamfarir.
Við hjónin lágum skjálfandi í rúm-
inu þar til ég treysti mér í símann og
hringdi í Almannavarnir. Þar var
mér sagt að víkingasveitin væri með
sprengjuæfingu í Selvogi," segir
Rúnar Birgisson, eiginmaður Hólm-
ffíðar, sem er aðstoðarverslunar-
stjóri hjá Bónus á Selfossi og þurfti
að taka sér frí í vinnunni í gær.
Hólmfríður eiginkona hans var
hins vegar lögð inn á sjúkra-
hús með of háan blóðþrýst-
ing.
„Þetta voru rosalegar
sprengingar sem stóðu
yfir frá klukkan hálffjögur
um nóttina og fram til
hálffimm," segir Rúnar
sem er enn að ná sér. Kon-
an hans verður á sjúkrahúsi
næstu daga og jafhvel fram að
fæðingu eftir tvær vikur. „Ég hélt að
það væri að verða risa jarðskjálfti.
Þetta var óhugnanlegt því maður
vissi fyrst ekkert hvað þarna var að
gerast," segir Rúnar.
„Við höfum verið að æfa þarna
frá árinu 1983 og aldrei fyrr hefur
verið kvartað," segir Jón Bjartmarz,
yfirmaður sérsveitar lögreglunnar.
Hann viðurkennir að sprengiefni
hafi verið notað við æfingarnar sem
eru fyrir þá sem vilja verða sérsveit-
armenn en segir allt sem fari fram á
æfingunum trún-
aðarmál. „En
þetta verður
skoðað áður en
við gerum þetta
aftur. Við viljum
ekki raska næturró
fólks."
Dynkimir skullu á
húsinu okkar líkt og
hljóðbylgjur og mér
datt ekkert annað
i hug en náttúru-
hamfarir.
Víkingasveitar-
maður Æfðu sig með
sprengiefni í Selvogi
og hræddu nærþví
liftóruna úr hjónum I
Bilun hjá
Express
Bilun í hæðarstýri í flug-
vél Iceland Express á Kefla-
víkurflugvelli í gær raskaði
flugi félagsins til London.
Varahlutir sem til þurfti voru
ekki til hér á landi og því
þurfti leiguvél að fljúga með
þá til landsins. Viðgerð átti
að ljúka síðdegis í gær en
einnig varð seinkun á flugi
til Kaupmannahafnar. Flug-
áætlun kvað á um brottför
kl. 14.50 en var seinkað til
22.30 og því þurftu farþegar
að bíða nokkuð uppi í Leifs-
stöð í gær.
Löggubíl
stolið af
stöðinni
Rúmverska lögreglan
rannsakar nú hveniig á
því getur staðið að lög-
reglubfl var stolið um há-
bjartan dag fyrir utan höf-
uðstöðvar lögreglunnar í
Búkarest. Svo virðist sem
enginn af 2.000 starfs-
mönnum stöðvarinnar
hafi orðið var við þjófnað-
inn. Lögreglustjórinn í
Búkarest segir að þetta sé
ekki í fýrsta skipti sem
lögreglubíl sé stolið í
borginni. „En þetta er í
fyrsta skipti sem slíkt ger-
ist fyrir ffaman augun á
þúsundum lögreglu-
manna," segir hann.
Sennilegt er talið að þjóf-
urinn hafi verið dulbúinn
sem lögreglumaður.
Berjatínsla
stoppar
járnbraut
Sjötugur maður olli tölu-
verðum truflunum á lesta-
samgöngum í Þýskalandi þar
|sem talið var að
Jhann ætíaði að
■jfyrirfara sér með
Iþví að kasta sér
sfyrir lest á braut
einni í grennd við Colonge.
Sjónarvottar tóku eftir því að
maðurinn gekk þvers og
kruss yfir lestarteinana en
þegar lögreglan kom á stað-
inn kom í ljós að maðurinn
var við berjatínslu. Alls mun
áætíun 11 lesta hafa seinkað
vegna þessa og öll lestarum-
ferð á milli Colonge og
Aachen lá niðri í 40 mínútur.
Dávaldurinn Sailesh í Reykjavík
Öryggismál í samgöngum
Dáleidd barstúlka stundi
Mörgum gestum á
barnum Thorvaldsen við
Austurstræti brá í brún á
þriðjudagskvöldið þegar
barstúlka á staðnum
byrjaði að stynja á
munúðarfullan hátt.
Dávaldurinn Sailesh,
sem halda mun sýningar
hér á landi, kom við á bar
með fylgdarliði sínu eftir
að hafa borðað á veit-
ingastaðnum Apóteki.
Mikil stemning var í kringum Sai-
lesh og félaga hans sem léku sér
með listir sínar á barnum, starfs-
fólkinu til mikillar skemmtunar.
Mesta athygli vakti þegar dá-
valdurinn náði að sannfæra unga
barstúlku um að bregða á leik sem
varð á endanum hálfneyðarlegur
fyrir stúlkuna. Dávaldurinn mun
hafa dáleitt barstúlkuna þannig
að í hvert skipti sem hann snerti
hönd hennar stundi hún líkt og
hún væri í kynlífsleik.
Félagar dávaldsins og aðrir
gestir staðarins munu hafa
skemmt sér vel og hlegið að til-
tækinu sem mun hafa verið ansi
tilkomumikið. Stúlkan mundi
ekkert hvað gerst hafði þegar hún
var vakin upp.
Vilia jarðqönq í allar áttir
frá Isafirði
Bæjarráð fsafjarðarbæjar vill að
jarðgöng verði skipulögð á milli
ísafjarðar og Bolungarvíkur annars
vegar eða Isafjarðar og Súðavíkur
hins vegar. Á síðasta áratug voru
boruð jarðgöng á milli ísafjarðar,
Flateyrar og Suðureyrar og verði
gengið að kröfum ísfirðinga verða
jarðgöng í allar áttir frá bænum.
Hugmyndin um önnur jarðgöng
kom fram á fundi ráðsins þegar
greinargerð vinnuhóps um öryggis-
mál vegarins milli Súðavíkur og
Bolungarvíkur var kynnt. í bókun
bæjarráðs segir að bættar og ömgg-
ari samgöngur styrki ísafjörð sem
byggðakjarna fyrir Vestfirði. Þá legg-
ur bæjarráðið áherslu á að full
ástæða sé fýrir sveitarfélögin við
ísafjarðardjúp að knýja á um jarð-
göng þar sem þau séu eini raunhæfi
valkosturinn þegar horft er út frá ör-
yggi í samgöngum á svæðinu. Bæj-
arráðið hyggst óska eftir fundi með
Bolungarvíkurkaupstað og Súðavík-
urhreppi vegna samgöngumála og
annarra hagsmunamála. Fréttavef-
urinn Bæjarins besta á ísafirði fjall-
aði ítarlega um málið í gær.