Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Side 15
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 15 Blóðgjafar fá tvo bjóra Almenningi í Tékklandi er nú boð- ið upp á tvo stóra bjóra í hvert sinn sem gefið er blóð í blóð- banka þar í landi. Þar að auki er þeim boðið upp á fría áskrift að bjórtímariti. Hin fimm « daga langa St. Wencesl- as bjórhátíð hefst í Prag í dag og mun sérstök rúta keyra blóðgjafana í blóð- bankann allan tímann. Heilbrigðisyflrvöld eiga von á mikilli þátttöku í blóð- gjöfinni að sögn staðar- blaða. Flísalagður útsýnisturn Ferðamönnum verður framvegis vísað á nýjan út- sýnisstað í Reykahólasveit. Eftir miklar endurbætur á kirkjuturni Reykhólakirkju er hann nú aðgengilegur fyrir gesti og gangandi. Að því er segir á heimasíðu Reykhólahrepps stendur kirkjan hátt og er gríðarlegt útsýni yfir Breiðafjörð, yfir á Skarðsströnd, til Snæ- fellsjökuls og inn á svokall- að Borgarland sem sé ein- hver fegursti hluti sveitar- innar. Meðal annars voru settir upp tveir stigar úr harðviði, flísar lagðar í öll gólf og turnspíran lýst upp að innanverðu. Jack Whittaker Frá þvi Jack Whittaker vann í lottóinu hef- ur hann verið fórnarlamb j endurtekinna innbrota, bæði á heimili sinu og fyrirtæki. Jack Whittaker vann stærsta lottóvinning í sögu Bandaríkjanna fyrir tveimur árum er hann fékk fyrsta vinninginn í Powerball-lottóinu. Vinningurinn var upp á 315 milljónir dollara eða um 25 milljarða króna. Síðan hefur Jack verið fórnarlamb innbrotsþjófa og glæpamanna. Nú síðast brutust þrír menn inn til hans og fundu lik í stofunni. Rafmagn úr spínati Vísinda- menn í Banda- ríkjunum hafa fundið upp tæki sem notar spína til að breyta sólarljósi yfir í rafmagn. Shuguang Zhang við Massachusetts Institute of Technology notar þær frumur í spínati sem gefa því græna litinn og hæfi- leikann til að umbreyta sól- arljósi í orku. „Náttúran hefur gert þetta í milljónir ára," segir dr. Zhang í sam- tali við New Scientist. „En þetta er í fyrsta sinn sem okkur tekst að beisla þetta ferli." Fyrri tilraunir á þessu sviði hafa mistekist því undir eðlilegum aðstæðum hafa ffumurnra þurft að vera í vatni til ferlið virkaði. Vetrarsjón- varp óafgreitt Útvarpsráð hefur enn ekki samþykkt vetr- ardagskrá sjónvarps- ins. Bjarni Guð- mundsson, ffam- kvæmdastjóri Sjón- varps, kynnti vetrar- ramma Sjónvarpsins á fundi útvarpsráðs í gær. Drög að ramm- anum voru lögð fram á síð- asta fundi ráðsins sem hald- in var 7. júní, eða fyrir þremur og hálfum mánuði. en áður hafa verið kynnt drög að honum. Útvarpsráð ákvað í gær að afgreiða vetr- ardagskrána á næsta fundi. Á hinn bóginn samþykkti ráðið dagskrárramma út- varps, Rásar 1 og Rásar 2, sem Dóra Ingvadóttir, fram- kvæmdastjóri Útvarps, lagði fram. Þrír menn brutust inn á heimili Jacks Whittaker um síðustu helgi og fundu lík af vini barnabarns hans í stofunni. Jack er þekktur fyrir að hafa unnið stærsta lottóvinning í sögu Bandaríkjanna. Um jólin 2002 náði hann fyrsta vinningi í Powerball-lottóinu og var verðmæti hans 315 milljónir dollara eða um 25 milljarðar króna. Síðan þá hefur Jack verið fórnarlamb inn- brotsþjófa og glæpamanna á hött- unum eftir auði hans. Jack var ekki heima þegar inn- brotið átti sér stað en hann býr í borginni Winfield í Vestur-Virginíu. Lögreglustjórinn þar, John Dailey, segir að andlát hins 18 ára gamla Jesse Joe Tribble sem innbrots- þjófarnir hnutu um tengist ekkert sjálfu innbrotinu og að ekki væru grunsemdir um að Jesse hefði verið myrtur. „Sennilega er ofneysla fíkni- efna ástæðan fyrir láti hans," segir Dailey. Vissu að hann var látinn Innbrotsþjófarnir þrír munu hafa verið ktmningjar Jesse Joe Tribble en þeir eru allir um eða yfir tvítugt. Dailey segir að lögreglan sé nokkuð viss um að þeir þrír hafi vitað að | Unglingar Breskar 15 ára stúlkur drekka oftar en nokkrar aðrar stúlkur i heiminum á þeirra aldri. Breskar 15 ára unglingsstúlkur Á toppnum í offitu og neyslu vímuefna Ný könnun sem gerð hefur verið á hegðun unglinga og birtist í bók á vegum The Economist sýnir að breskar 15 ára stúlkur eru á toppn- um þegar kemur að hassreykingum, áfengisdrykkju og offitu. Þær drekka oftar en nokkrar aðrar stúlkur í heiminum á þeirra aldri, þær eru í þriðja sæti hvað hassreykingar varð- ar og í fjórða sæti hvað offituvanda- mál varðar. í frétta blaðsins Daily Mirror um þetta mál segir m.a. að það komi síður en svo á óvart að stúlkurnar eigi við offituvandamál að stríða í þessum mæli þar sem um 29% þeirra eyði að meðaltali fjórum tím- um á dag fyrir framan sjónvarpið. Hvað varðar stráka á sama aldri kemur í ljós að þeir bresku eru í fjórða sæti hvað hassreykingar varð- ar en þar trónir Kanada á toppinum. Yfir 36% breskra 15 ára stráka segjast hafa reykt jónu á síðasta ári. Jesse var látinn í húsinu. „Þess vegna brutust þeir inn og stálu töluverðum verðmætum," segir Dailey. Þre- menningarnir létu svo lögregluna vita af líki Jesse daginn eftir innbrot- ið. Hins vegar náðust myndir af þeim á eina af öryggismyndavélum hússins þannig að eftirleikurinn var auðveldur fyrir lögregluna. Verð- mæti þýfisins var um ein milljón kr. Fjöldi innbrota Frá því að Jack Whittaker vann í lottóinu hefur hann verið stöðugt fórnarlamb innbrota, bæði á heimili sínu og fyrirtæki. Auk þess reyna aðrir glæpamenn á stundum að ná af honum peningum. Þannig voru framkvæmdastjóri nektarbúllu og vinkona hans ákærð á síðasta ári fyr- ir að hafa laumað svefnmeðali í drykk Jacks og síðan rænt af honum skjalatösku sem innihélt 500.000 dollara í peningum og ávísunum. Þetta fé náðist aftur. Fékk átta milljarða útborgaða Sem fyrr segir nam fyrsti vinning- ur Jacks 25 milljörðum króna. Hann ákvað að fá hann allan borgaðan út strax í stað þess að fá jaftiar greiðsl- ur á næstu 25 árum. Við það minnk- aði upphæðin töluvert en Jack gat samt stungið átta milljörðum króna í vasann eftir að hafa greitt skatt af vinningnum. Mikil fjöldi innbrota í bifreiðar Lögreglan vararvið bílainnbrotum Tilkynnt voru innbrot eða til- raunir til innbrots í 34 bifreiðar til lögreglunnar í Reykjavík yfir síðustu helgi. Sökum þessa vill lögreglan vara fólk við að skilja eftir verðmæti í bílum sínum. Á föstudagsmorgun bárust lög- reglu fimm tilkynningar um innbrot í bifreiðar. Þjófarnir voru á höttunum eftir hljómflutningstækjum, geisla- diskum og öðrum verðmætum í b£l- unum. Auk þess var stafrænni myndavél, tösku og rafmagnsrakvél stolið úr bifr eiðunum. Þá var tilkynnt á laugardagsmorgun um fjölda inn- brota í bifreiðar í miðborginni. Sá sem þar er talinn hafa verið að verki var handtekinn um miðnætti á laug- ardagskvöld eftir að til hans hafði sést við að brjóta rúður í bflum. Á sunnudagsmorgun var tilkynnt að maður væri að brjótast inn í bfl á bifreiðastæði í miðborginni. Maður var handtekinn og fannst þýfið í bfl sem hann var á. Síðar kom í ljós að sá Innbrot I bifreiðar á laugardagsmorgun var fjöldi innbrota f bifreiðar í miðborginni tilkynntur til lögreglunnar. bfll er lfldega stolinn. Maðurinn var handtekinn. Vegna fjölda tilkynninga um inn- brot og innbrotstilraunir í bifreiðar vill lögregla ítreka að fólk ffeisti ekki þjófa með því að skilja verðmæti eft- ir í bflum sínum. Þetta á sérstaklega við um tölvur, myndavélar og annan búnað, töskur, veski, skólatöskur, fatnað, geisladiska, peninga og ann- að sem freistað getur þjófa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.