Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004
Sport DV
Schumi
spenntur
fyrir Kína
Michael Schumacher, öku-
maður Ferrari liðsins i Formúlu
1 kappakstrinum, er spenntur
fyrir móti helgarinnar sem fer
fram í Shanghai í Kína. „Við
höfum ckki ástæðu til annars
en að hlakka til,“ sagði
Schumacher. ^
„Miðað við
Þa-'r C' -i
myndir
sem ég
hef skoð-
að, þá ætti þetta
að verða mjög
skemmtilegur
kappakstur.
Þarna er
að finna
talsvert
af krefj-
andi beygj-
um og öflug-
um spyrnu-
köflum sem bjóöa upp á fram-
úrakstur. Þctta gæti orðið virki-
lega f jörugt.“ Þrátl fyrir að
vera húinn að tryggja sér titil-
inn í ár, er Schumachcr alltaf
við saina heygaröshornið. „Eins
og alltaf munum viö berjasl
fyrir sigri i kappakstrinum,"
sagði Schumacher.
Flóttl úr NHL
Íshokkíleikmcnn deyja ekki
ráðalausir þó svo að NHI.-deiId-
in liggi niðri vegna verkfalls.
Nú hafa alls 150 leikmcnn
samið við lið í Evrópu og munu
leika þar þangað til forráða-
menn NHL og eigendur liða
ráða l ram úr deilunni, sem
snýst um að búa til launaþak á
leikmenn. Tékkneska ís-
hokkidcildin verður ekki á
flæðiskeri stödd því 47 NHL-
Icikmenn hafa lagt leið sína
þangað og óhætt er að spá
hcnni vinsældum í vetur, ef
NHI.-deilan leysist ekki í tæka
tíð. Allir leikmennirnir eru með
ákvæði í samningi sínum þcss
efnis að þeir geti snúið aftur í
NHL, taki deilan fljótt enda.
Það á að vísu ekki við um Svíau
Peter Forsberg, fyrrverandi
leikmann Colorado Avalanche,
en hann lætur gamlan draum
rætast og leikur heilt límabil
með Modo Hockey í hcimalandi
sínu.
Keane varar
Rooney við
Roy Keane, fyrirliði
Manchester United, hefur var-
að Wayne Rooney við áhan-
gendum liðsins og að hann
muni eiga í vök að verjast. Kea-
ne segir menn í þeirra stöðu
þurfa að vera á varðbergi.
„Maður verður að velja vini
sína af kænsku,“ sagöi Keanc.
„Um leið og maður telur sig
þekkja einhvern, þá biður viö-
komandi mann um eitthvað.'1
Keane sagði mikilvægt að
treysta engum og leyfa fólki að
njóta vafans. „Ég mun hitta 100
nianns á næstu tveimur vikum
og 99 þeirra munu biðja mig
um eitthvað," sagði Keane.
Njáll Eiösson, þjálfari Vals, segist ekki verða þjálfari Vals á næstu leiktíð þó ekki
sé búið að segja honum upp. Hann er ekki sáttur.
f
skít
Ég var bara rekinn í beinni þótt það hafi ekki
verið af stjórnarmönnum. Hemmi er í ákveðinni
klíku og vissi greinilega hvað hann var að tala um.
Ég er líka pottþéttur á að Guðni vissi vel hvað var í
gangi. Fannstþér hann ekki vandræðalegur?"
Njáll tók við Valsliðinu fyrir
síðasta tímabil eftir að það var
fallið í 1. deild. Hann gerði
þriggja ára samning við félagið
með uppsagnarákvæði á ári
hverju. Þrátt fyrir að hafa
komið Val strax upp aftur og
þar að auki unnið deildina
segir Njáll að honum verði
sparkað þann 1. október næst-
komandi.
„Þeir geta ekki rekið mig fyrr en 1.
október og ég á ekki von á öðru en að
þeir láti mig fara þá,‘‘ sagði Njáll sem
er verulega ósáttur við framgöngu
stjórnar Vals í málinu. „Ég átti fund
með stjóminni í dag og það er
greinilegt að ég hef ekki það traust frá
stjóminni sem ég þarf að hafa.“
Það vakti verulega athygli í þætti
Guðna Bergs um daginn þegar hinn
eini sanni Hemmi Gunn sagði að
það yrði hallarbylting á Hlíðarenda í
vetur og margt myndi breytast.
Þegar Njáll horfði á þáttinn áttaði
hann sig á að eitthvað var í gangi
sem hann vissi ekki af.
Rekinn í beinni
„Ég var bara rekinn í beinni þótt
það hafi ekki verið af stjórnar-
mönnum. Mér fannst þessi
uppákoma mjög furðuleg en vildi
eiginlega ekki trúa þessu. Hemmi er
í ákveðinni klíku og vissi greinilega
hvað hann var að tala um. Ég er líka
pottþétlur á að Guðni vissi vel hvað
var í gangi. Fannst þér hann ekki
vandræðalegur?," sagði Njáll og
bætti við að þetta hefði ekki verið
skemmtileg lífsreynsla.
Eins og áður segir sigraði Valur 1.
deildina með glans í sumar undir
stjórn Njáls en það hefur greinilega
ekki verið nóg til þess að heilla
stjórnarmenn Vals. Njáll spyr sig að
því hvað þurfi eiginlega að gera til að
halda starfinu á Hlíðarenda.
„Það em mikil vonbrigði að fá
ekki að klára verkefnið. Ég er bara
notaður í skítverkin og svo látinn
fara. Auðvitað er maður ósáttur því
ég tel mig hafa gert allt sem ég gat
gert með þetta lið,“ sagði Njáll en
hann telur eitthvað mikið vera að
hjá félaginu.
„Menn geta ekki endalaust verið
með einhverja fortíðarhyggju. Valur
þarf að breyta ýmsu til að eignast lið
sem lætur að sér kveða. Það sjá allir
að það er eitthvað að þegar félag
fellur trekk í trekk. Svo sér fólk
stöðuna sem fyrrverandi þjálfarar
félagsins, sem kennt hefur verið um
föllin, em í. Annar tók lið í 3. deild
sem hann er kominn með í 1. deild
en hinn stýrði liði í fjórða sætið í
úrvalsdeild í sumar. Menn geta því
spurt sig hvort slæmt gengi hafi
verið þjálfurunum algjörlega að
kenna eins og stjórnin vill gefa í
skyn. Þetta hlýtur að snúast um mun
fleira en það.“
Njáll var óþolinmóður
DV Sport sló á þráðinn til Barkar
Edvardssonar, formanns knatt-
spyrnudeildar Vals, og spurði hann
út í málið.
„Ég ætla ekkert að tjá mig um
Harkaleg lendlng
Njáll Eiösson var
tolleraður á Hllöarenda
fyrir skömmu síðan.
Vandamái Njáis varaö
enginn virtisthafa
áhuga á að grlpa hann
á niðurleiöinni.
niMtz
þetta mál," sagði Börkur í fýrstu en
fékkst síðan til þess að opna sig
aðeins. „Við erum í þeirri stöðu,
Valsmenn, að við ædum ekki niður
aftur. Við erum að skoða þessi mál
og Njáll var svolítið óþohnmóður.
Við erum með stóra ákvörðun í
höndunum. Við erum stórt félag
með stórt lið og við teljum okkur
eiga heima annars staðar en í þessu
jójói sem við höfum verið í. Við
viljum vera í toppbaráttunni. Það er
alveg ljóst. Það er samt á huldu hvað
við gerum í þjálfaramálunum,"
sagði Börkur Edvardsson.
henry@dv.is
Allt annað en daglegt brauð að þjálfari 1. deildarmeistaranna haldi ekki áfram
Gerðist síðast í Vestmannaeyjum fyrir 19 árum
Njáll Eiðsson verður fyrsti þjálfari
B-deildarmeistara í 19 ár sem fær
ekki að stjórna liðinu í efstu deild
árið eftir ef svo fer sem horfir að
Valsmenn leiti á önnur mið að
þjálfara liðsins í Landsbanka-
deildinni 2005. Ólafur Þórðarson
stýrði Fylkismönnum reyndar til
sigurs f deildinni sumarið 1999 en
tók við Skagaliðinu áður en því
tímabili lauk og yfirgaf Fylki því á
eigin forsendum.
Allt frá því að Pólverjinn Griegorz
Bielatowicz tók við meisturum ÍBV
sumarið 1986 af Kjartani Mássyni,
hafa þjálfara B-deildarmeistaranna
stjórnað liðinu í efstu deild árið eftir.
Undir stjórn Bielatowicz endaði
ÍBV-liðið hinsvegar í tíunda og
síðasta sæti A-deildarinnar sumarið
1986 og fékk aðeins 12 stig úr 18
leikjum.
Frá þeim tíma hafa 1.
deildarmeistararnir sex sinnum
fallið aftur niður í B-deild árið eftir
en 13 sinnum haldið sér í deildinni,
einu sinni orðið íslandsmeistarar og
átta sinnum komust upp í efri hluta
deildarinnar.
Hér á eftir má sjá lista yfir þá
þjálfara sem hafa gert lið sín að B-
deildarmeistruum síðustu nítján ár
og má sjá mörg stór nöfn í íslenska
þjálfaraheiminum á þessum ágæta
lista. Aðeins Ólafur og Kjartan héldu
ekki áfram með sín lið en Ólafur tók
eins og áður sagði strax við
Skagamönnum um haustið og hefur
verið við stjömvölinn á Akranesi
síðan.
Þjálfarar meistaranna frá þeim
tíma eru eftirtaldir:
2004 Njáll Eiðsson, Val
2003 Milan Jankovic, Keflavik
2002 Þorlákur Árnason, Val
2001 Kristján Guðmundsson, Þór
2000 1999 Logi Ólafsson, FH Ólafur Þórðarson, Fylki
1998 Sigurður Grétarss., Breiðabliki
1997 Willum Þór Þórsson, Þrótti
1996 Ásgeir Ellasson, Fram
1995 Magnús Pálsson, Fylki
' 1994:: Lúkas Kostic, Grlndavlk
1993 Ingi B. Albertss., Breiðabliki
; 1992 Magnús Jónatanss., Fylki
1991 Guðjón Þórðarson, lA
1990 Óskar Ingimundarson, Vlðl I
1989 Jóhannes Atlason, Stjörnunni
. 1988 Ólafur Jóhannesson, FH
1987 Youri Sedov, Víkingi
1986 Guðmundur Ólafss., Völsungi
1985 Kjartan Másson, (BV
ooj@dv.is