Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Side 21
TSV Sport
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 21
Liverpool varð fyrir griðarlegu áfalli
Gerrardfrá ítvo mánuði
Treyja
Stocktons
upp í rjáfur
Beckenbauer
og Pelé
heiðraðir
Það var ekki nóg að Liverpool
skyldi tapa fyrir Man. Utd á mánu-
dag heldur fótbrotnaði fyrirliði
þeirra, Steven Gerrard, einnig í
leiknum.
Fyrstu fréttir af meiðslum
Gerrards voru á þá vegu að hann
yrði ffá í þrjá mánuði. Gerrard segir
það ekki vera rétt.
„Ég get ekki séð betur en ég verði
frá í tvo mánuði og ekki degi lengur.
Ég verð ekki frá í þrjá mánuði," sagði
Gerrard í gær. „Ég talaði við skurð-
lækninn í gær og hann talar um átta
vikur."
Þetta eru ekki eingöngu vondar
fréttir fyrir Liverpool heldur líka fyrir
enska landsliðið enda má það illa
vera án Gerrards. Hann mun missa
af næstu tveim leikjum liðsins sem
eru gegn Wales og Azerbaijan. Hann
mun þar að auki missa af sex
deildarleikjum og þremur leikjum í
meistaradeildinni.
Meiðsli Gerrard eru þau sömu og
Wayne Rooney varð fyrir á EM í
sumar. Hann áttí líka að vera frá í
átta vikur en í dag eru liðnar þrettán
vikur síðan hann meiddist og hann
er rétt byjaður að æfa.
„Ég veit að fólk er að tala um að
þetta séu sömu meiðsli og hjá
Wayne. En það er bara ekki rétt að
meiðslin séu eins. Þau er lík en að
mörgu leyti ólík. Ég tel mín ekki vera
jafn slæm og hans. Ég vona það í það
minnsta. Ég hvíli mig bara núna og
einbeiti mér að því að komast í
slaginn eins fljótt og ég mögulega
get. Þetta verður erfitt en ég get
það,“ sagði Gerrard.
Alltaf í hasar Steven Gerrard, fyrirliöi Liverpool, fær oft ómaklegar móttökur hjá mótherjum
sínum. Hér er þaö Ivan Campo sem lætur Gerrard finna fyrir því.
22. nóvember verður mikið
um dýrðir í Delta Center í Utah
þar sem að heimamenn í Utah
Jazz leika heimaleiki sína í
N'BA-deildinni. Ætlunin er að
heiöra leikstjórn-
andann .John
Stockton, .
sem lék
allan
sinn 19 "
ára feril
hengja > /
treyju , (
J ’ hans
upp í rjáfur. Hann
hætti körfuknatt-
leiksiðkun árið 2003 og
skoraði 13,1 stig og gaf 10,S
stoósendingar að meóaltali á
glæsilegum ferli meó Jazz.
Stockton og framherjinn Karl
Malone mynduðu eitt skæðasta
sóknarpar í sögu NBA. „Við
hlökkum mikið til að heiðra
þann sómapilt sem John
Stockton er,“ sagði Larry Mili
er, eigandi liósins. „Honum
veróur boðió hingað ásamt f jöl
skyldu sinni og kvöldió verður
vafalaust eftirminnilegt." Þrátt
fyrir að Stockton ynni aldrei
NBA-titil, er hann í hópi bestu
leikstjórnenda uppi hafa verið
og gaf 15.806 stoðsendingar á
ferlinum.
Rush um
Liverpool
Liverpool þarf ekki að kvíða
f jarveru Steven Gerrard, ef
marka má orð Ian Rush, fyrr-
um ieikmanns liðsins. Rush
lýsti aðdáun sinni á Xabi
Alonso og Dietmar Hamann og
sagði þá geta leitt Liverpool í
fjarveru Gerrard. „Samvinna
þeirra í leiknum gegn United
var algjört augnayndi," sagði
Rush. „Ég er ekki í vafa um aó
þeir geti fyllt skarð Gerrard
meóan hann jafnar sig á
meiðslunum." Liverpooi fær
Norwich Citv í heimsókn á An
field Road á laugardaginn.
Gömlu knattspyrnusnilling-
arnir Franz Beckenbauer og
Pelé f á viðurkenningar frá
FIFA á aldarafmælishátíð í
kvöld. Vióurkenningarnar
verða veittar í höfuðstöðvum
FIFA í Zurich í Sviss. Fresta
varð hátíðinni á sínum tíma
vegna augnaógerðar sem gera
þurfti á Pelé. Beckenbauer og
Pele þykja hafa unnið framúr-
skarandi starf í þágu íþróttar-
innar, bæði á meðan þeir voru
leikmenn og eftir að ferlum
þeirra lauk. Pelé varð heims-
meistari í tvígang með Brasilíu-
mönnum, 1958 og 1970, og þyk-
ir besti knattspyrnumaður sög-
unnar. Beckenbauer komst á
spjöld sögunnar þegar hann
vann heimsmeistaratitiiinn með
Þjóðverjum árið 1990 en meó
því varö hann fyrsti
knattspyrnu-
maóur heims
til að
vinna
heimsmeistara-
titil sem fvrir-
liði og þjálfari.
Hann starfar nú sem
forseti undirbúnings-
nefndar HM í
Þýskalandi 2006.
Stjórn KR-Sports fundaði um þjálfaramál félagsins í Frostaskjólinu í gær. Ekki er
hægt að segja að niðurstaða fundarins hafi komið á óvart.
tveimur titlum í röð. Síðan hallaði
undan fætí á þessu ári og það er bara
ekki nógu gott fyrir KR að enda í
sjötta sæti. Við í KRerum kröfu-
harðir og kannski erum við stundum
of kröfuharðir en þessa línu hefur
KR haft í gegnum tíðina. Við erum í
þessu til að vinna. Við teljum best
fyrir félagið á þessum tímapunkti að
skipta um mann í brúnni," sagði
Jónas og bætti við að
ákvörðunin hefði verið erfið
enda væri Willum mikill
KR-ingur og hefði skilað
góðu starfi til félagsins.
Ekki sáttur
Willum sagði í
sjónvarpsviötali eftír
lokaleikinn í mótinu
að miðað við aðstæður
hefði það hreinlega
verið gott hjá honum að
halda liðinu í mótinu.
Því hlýtírr hann að hafa
tekið tíðindum stjórn-
arinnar illa.
„Hann er örugg-
lega ekki sáttur en
hann er KR-ingur
og vill félaginu
allt það
besta. Við erum með mjög gott
knattspyrnulið. Vissulega lentum
við í miklum meiðslum en við
vorum ekki eina liðið í deildinni sem
lentí í slíku. Það er aldrei hægt að
skella allri skuldinni á þjálfarann.
Það eru líka leikmenn og stjórn sem
eiga hlut í máli. Við stýrum þessu
aftur á mótí núna og reynum að taka
ákvarðanir sem við teljum bestar
fýrir félagið hverju sinni og við
teljum best fyrir félagið í dag að
skipta um þjáÚara."
Erlendur þjálfari
Það eru fjölmargir leikmanna KR
með lausan samning og Jónas sagði
að næstu dagar og vikur færu í að
skoða leikmannamálin og leita að
nýjum þjálfara. Guðjón Þórðarson
og Magnús Gylfason hafa helst verið
orðaðir við starfið en Jónas segir
einnig koma til greina að fá erlendan
þjálfara til félagsins.
„Við vitum hvaða nöfn eru í
umræðunni og við munum örugg-
lega kíkja á það og svo munum við
leita eitthvað út fyrir landsteinana.
Það kemur vel til greina hjá okkur að
fá erlendan þjálfara."
Willum Þór er farinn í frí til
Portúgal og því miður náðist ekki
samband við hann þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir. henry@dv.is
Gengi KR á leiktíðinni var afleitt. Meistarar síðustu tveggja ára
voru aldrei með í baráttunni og sluppu ekki við falldrauginn fyrr
en eftir 17. umferð. Á endanum varð KR að sætta sig við sjötta
sætið í deildinni. Sæti sem engan veginn getur talist ásættanlegt
í Vesturbænum enda er krafa á titil þar á hverju ári. Þessi slaki
árangur í sumar felldi Willum. Það er
ekki flóknara en það. ,.m
Það má segja að byrjunin á
endalokunum hjá Willum hafi
komið eftír að þeir tryggðu sér
títilinn í fyrra. í kjölfarið fýlgdu
tveir tapleikir og annar þeirra 7-0
tap gegn FH. KR tapaði síðan í
meistarakeppninni gegn ÍA og
tapaði síðan fyrir færeyska
félaginu HB í Atlantíc Cup en
það var fyrsta tap íslensks
liðs gegn færeysku í keppni.
Það þarf síðan ekki að hafa
mörg orð um frammistöðu
KR-liðsins í sumar en það
virkaði algjörlega
andlaust. Willum var
kominn á endastöð með
liðið og það sá stjóm KR þótt
Willum hafi ekki verið á sama
máli.
Willum vann gott starf
„Það var endurskoðunar-
ákvæði í samningi okkar við
Willum, þar sem báðir hafa út-
gönguleið, og við ákváðum að nýta
okkur það,“ sagði Jónas Kristinsson,
formaður KR-Sports.
„Willum er búinn að vinna mjög
gott starf fyrir félagið. Hann tekur
við eftír vont tímabil og skilar
teljum bestar fyrir
félagið hverju
sinni og við teljum
best, fyrir félagið
í dag, að skipta
um þjálfara."
„Við stýrum þessu núna og
reynum að taka þær
ákvarðanir sem við já
'V-
W illum rekinn
Fékk sparkið Willum Þór
Þórsson hefur stýrt KR í
slðasta sinn. Stjórn KR-
Sports dkvaö f gær aö
framlengja ekki
samninginn við Willum en
hann vildi aftur á móti
ólmur þjálfa liðið áfram