Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Blaðsíða 32
r'/íí t í CJ^>jÍ 0 i Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^jnafnleyndar er gætt. ^ > ,—i f \ f I—' '—' r ) r-J ZJZJU zj SKAFTAHLÍÐ 24, 705 RBYKJAVÍK [ STOFNAB 1910 ] SÍMíSSOSOOO «V 40- rjt ■* • Margir eru kall- aðir þegar kemur að því að skipa nýjan háskóla- rektor í stað Páls Skúlasonar. Með- al þeirra sem l£k- legir þykja er Sig- ríður Dúna Krist- mundsdóttir, fyrrverandi alþing- ismaður og eiginkona Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjun- ar. Líklegt er að Sigríður Dúna reikni dæmið þannig að ef hún verður háskólarektor núna gæti það verið góð upphit- un fyrir forsetaframboð eftir tæp fjögur ár... Fær hún Loga líka? Sveppi og strákarnir hans í 70 mínútum hafa færst upp metorða- stiga sjónvarpsins og standa nú í samningaviðræðum við Stöð 2 um nýja sjónvarpsþætti. Flest er klárt en það getur verið snúið að semja um peninga. Sveppi er orðinn dýr en er ekki skepna þegar kemur að peningum: „Við erum þægilegir í öllum peningamálum og viljum í raun það eitt að eiga fýrir salti í grautinn. En saltið er orðið dýrt,“ segir Sveppi sem býst jafnvel við að verða með daglegan þátt á Stöð 2 eftir áramót með þeim Audda og Pétri Jóhanni. „Aðalmálið er að gera eitthvað sem okkur þykir skemmtilegt," segir hann. Hvernig sem fer er Sveppi sann- færður um að nýr þáttur þeirra félaga á Stöð 2 verði ekki sá dýrasti á dagskrá stöðvarinnar: „Ekki á meðan Idol er í loftinu," segir Sveppi sem reyndar kann þá list manna best að búa til ódýrt sjón- varpsefni. 70 mínútur á Popptíví var reyndar eins ódýrt sjónvarps- efni oghugsast getur því umsjónar- mennirnir gerðu allt sjálfir. Voru jafnvel myndatökumenn, ljósa- meistarar, förðunarmeistarar og sviðsmenn sjálfir fyrir nú utan að skrifa handritið og leika aðalhlut- verkin. „Við ættum að geta kennt þeim á Stöð 2 hvernig hægt er að búa til ódýrt sjónvarpsefni. Mestu skiptir þó að það sé skemmtilegt því öðru- vísi er ekki hægt að fá fólk til að horfa," segir Sveppi sem starfaði á grænmetislager Hagkaups áður en hann sló í gegn í sjónvarpi. Auddi félagi hans starfaði hins vegar á lag- ernum hjá skrúfufyrirtækinu Wurth og Pétur Jóhann var í Byko í Hafn- arfirði: „Við getum allir snúið aftur á lagerinn ef fólk fær upp í kok af okkur. En við eigum nóg eftir. Næst eru það áskrifendur Stöðvar 2 sem fá að njóta okkar. Við ætlum ekki að bregðast þeim,“ segir Sveppi. Sveppi og félagar Færast upp metorða- stiga íslenska sjónvarpsins. Icelandair þykist vera lceland Express „Meiri verður viðurkenningin ekki. Við erum himinlifandi," sagði Ólafur Hauksson, talsmaður flug- félagsins Iceland Express, þeg ar í ljós kom að skrifstofa Flugleiða í London hefur merkt heimasíðu sína icelandexpress.org. „Að sjálfsögðu munum við gera athugasemdir við þetta en hins vegar erum við ánægðir með að Icelandair telji sig best ná til viðskipta- vina sinna með því að nota nafn okkar," segir Ólafur. Ljóst er að starfsmaður Icelandair á skrifstofu félagsins í London hefur skráð heimasíðu félagsins með þessu tákni. Hvort það var gert með vitund og vilja yfirmanna hans í höfúðstöðvum Flug- leiða hér á landi fékkst ekki staðfest í gær. Stofnandi iceland Express Jóhannes Georgsson má vera ánægður með árangurinn. Jóhanna María í stól Svanhildar Hólm Svanhildur Hólm sést ekki lengur í Kastljósi og ritar ekki lengur fund- argerðir útvarpsráðs eftir að hún ákvað að semja við Stöð 2 og halda þangað til starfa. Jóhanna María Eyj- ólfsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmað- ur Björns Bjarnasonar í mennta- málaráðuneytinu, hefur því verið ráðin til að rita fundargerðir út- varpsráðs og settist í stól Svanhildar á fundi ráðsins á þriðjudaginn: „Það gekk ágætlega. Þetta er bara eins og hvert annað starf," segir Jóhanna María sem réðst til starfa á skrifstofu framkvæmdastjóra Ríkis- sjónvarpsins þegar Björn Bjarnason lét af embætti menntamálaráð- herra. Áður hafði hún starfað hjá Ríkisútvarpinu sem skrifta á frétta- stofu og í textavarpi stofnunarinnar. „Svo vinn ég líka við dagskrárgerð núna,“ segir hún en margir muna eftir Jóhönnu Maríu úr Mósaík-þátt- unum í fyrra. Jóhanna María er 37 ára, sagn- fræðingur að mennt, býr vestast í Vesturbænum og á bæði son og mann. McOstborgari, litill McFranskar eða gulrætur og miðstærð af gosi McOstborgari, jógúrt með ferskum ávöxtum og miðstærð af gosi McOstborgari lítill McFranskar eöa gulrætur og McFlurry i’m lovin’it

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.