Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Qupperneq 6
6 LAUGARDACUR 9. OKTÓBER 2004 Helgarblaö DV Svör fleiri íbúa voru á svipaða leið. Nágranni Annþórs sagði að fyrir nokkru hefði verið mikið um partí í húsinu en nú væri aðeins rólegra yfir. Nágranninn tók þó fram að hann þekkti Annþór aðeins af góðu. Hann kæmi alltaf vel fyrir, heilsaði og væri tilbúinn í spjall. „Tófan bítur ekki í grenið sitt,“ út- skýrði sjómaður sem var að störfum skammt frá heimili Annþórs. Og sú virðist raunin. Allir viðmælendur DV báru Annþóri góða söguna. Svo virðist sem glæpsamlegt líferni hans ein- skorðist við Reykjavfk. Fyrir Annþór eru Vogarnir trúlega skjól sem hann vill ekki eyðileggja. Ofbeldishneigður í æsku Sakaferill Annþórs hófst þegar hann var 15 ára. Fram að því hafði hann verið óstýrilátur unglingur og erfitt barn. Fólk sem þekkti hann sem krakka segir hann hafa verið mjög óþekkan - jafnvel ofvirkan. „Hann var kannski ekki góður nem- andi en var ekki með mikil læti í skól- anum,“ segir gamall nemandi í Haga- skóla sem man vel eftir Annþóri. Annar nemandi sagði hann alltaf hafa verið „stóran, þéttan og ógnvekjandi" - jafnvel látið menn hanga fram af svölum. Á þessum árum „Núna, hin seinni ár, hefur hann unnið með þröngum hópi manna við að lemja mann og annan." Annþór einnig lagður inn á barna- og unglingageðdeild Landspítalans við Dalbraut. Samkvæmt heimildum DV var ástæðan hegðunarvandamál og ofbeldishneigð. Eftir að Annþór kláraði grunnskól- ann lagði hann námsbækurnar á hill- una. Hann á samt að hafa tekið nokk- ur námskeið í sjómennsku en hefur að sögn kunnugra aldrei stundað sjóinn. Eina vinnan sem Annþór á að hafa unnið, fyrir utan parkettslípunina, er byggingarvinna. Þá vinnu fékk Annþór eftir að hann slapp út af Litla-Hrauni og sat inni á Vernd. Á Vernd er skilyrði að vera í fastri vinnu. Þorirekki aðkæra FriörikÞórFrið- riksson leikstjóri sem barinn var af hand- Jp rukkaranumAnn- ú ^ þóri Kristjáni Karls- L* ^ 1 syni hefúr enn ekki E . f þorað að kæra árás- ina. FriðrikÞór flaug ■ til Suður-Kóreu um miðja viku þar sem kvikmyndin Næsland var frum- sýnd í gær. Að sögn heimildarmanns DVhefúr Friðrik Þór ákveðið að hætta ekki á að kæra árásina af ótta við hefndir Annþórs og tengdafoður hans, Jóns Ólafssonar. Góður drengur „Hann er elskulegur og góður drengur," sagði Sólveig Kristjánsdóttir fiskvinnslukona, móðir Annþórs, ívið- tali við DV í gær. Hún keypti íbúð fyrir Annþór í Grafarholtinu þegar sonur- inn var um 16 ára. Eins og aðrir sem þekkja til Ann- þórs sagði hún drenginn duglegan og góðan strák en vildi ekkert tjá sig um hans mál frekar. Annþór ólst upp hjá móður sinni og var í litlu sambandi við föður sinn, Karl Jensen Sigurðsson, starfsmann Háskólans, sem segir erfitt að horfa upp á krakkana sína í þessari stöðu. „Maður getur ekki annað en vor- kennt þeim,“ segir hann en ítarlegra viðtal við hann er hér á síðunni. Um hundrað kærur Annþór hefur verið kærður til lög- reglu 70-90 sinnum. Fyrst hafði lög- reglan afskipti af honum þegar hann var fimmtán ára. Hann hefur verið viðriðinn innbrot, skjalafals og fíkni- efnamisferli. „Núna hin seinni ár hef- ur hann unnið með þröngum hópi manna við að lemja mann og annan," segir heimildarmaður DV innan lög- reglunnar. Framhaldá næstusíðu Ibúar í Vogum á Vatnsleysuströnd eru óttaslegnir vegna frétta um að á meðal þeirra búi einn alræmdasti handrukkari íslands - Annþór Kristján Karlsson - sem Friðrik Þór Friðriksson sakar um að hafa ráðist á sig um síðustu helgi. DV fer yfir feril þessa manns sem margir telja einn helsta handrukkara íslands. Manns sem lenti á barna- og unglingageðdeild vegna ofbeldis- hneigðar og hefur undanfarin ár verið tíður gestur á Litla-Hrauni. Heimili Annþórs íbúariVog- unum bera honum vel söguna. „Fólki er afar brugðið," segir íbúi í Vogunum sem kannast vel við Annþór. „Allir sem þekkja hann eru miður sín. Þótt við vissum innst inni að hann væri viðriðinn einhverja starfsemi vildum við ekki trúa því." Faðir Annþórs Kristjáns Karls- sonar er sleginn yfir fregnum af syni sínum. Karl Jensen Sigurðs- son segir son sinn þó búa yfir hlýju sem sé í hrópandi mócsögn við atferli hans á stundum. Vill son sinn á bakvið lás og slá „Ég get liúu svarað. Þetta er leiðinlegt og ég get liúu breytt úr þessu," segir Karl J. Sigurös- son. En sonur hans, Annþór Kristján Karlsson, gengur laus þrátt fyrir aivarlega líkamsárás á Friðiik Þór og hefði því getaö orðið helsta kvikmyndaleik- stjóra þjóðarinnar að fjörtjóni. Annþór ólst ekki upp hjá fóður sínum og hann vissi framan af líúð um vandræði sonarins: KarlJ- Sigurðsson Harmarörlög sonar sins en stendur ráðalaus frammi fyrir þróun mála. Það verður að bregðast við þessu öllu og ég veit að Ann- þór hefði gott að því að taka út refsingu. Ég veit það eitt að hann hafði gott af því síðast þegar hann var settur inn. Var miklu betri maður á efúr þar úl allt fór í sama horfið aftur. Yfirvöld verða að grípa í taumana og láta menn ekki ganga lausa þegar öllum má ljóst vera að hegðtm þeirra hlýtur að enda með ósköp- um,“ segir Karl sem íúekar þó að sonur hans eigi aðra og betri hlið en þá sem nú snýr að fólki: Sendur á Dalbraut „Það var ekki fyrr en efúr fermingu hans sem mér varð ljóst að ekki var allt með felldu. Það var þegar drengur- inn var sendur á Dalbraut vegna vandræða. Ég held að ástæðan hafi verið sú að Ann- þór var lagður í einelú í skóla og þar sé upphafsins að leita,“ segir Karl sem eignaðist eigin fjölskyldu og átú böm með konu sinni á meðan Annþór var í umsjá móður sinnar. „Ég trúi því sem ég heyri og trúi því sem ég les. Eins og rnálum er komið vildi ég sjá son minn á bak við lás og slá. „Ég held að ástæðan hafi verið sú að Ann- þór var lagður í einelti í skóla og þar sé upphafs- ins að leita." Sönn hlýja „Mér og fjölskyldu minni hefur Annþór aldrei sýnt ann- að en ljúfmennsku. Þegar við hittum hann er hann vanur að taka utan um okkur og þá finnur maður sanna hlýju súeyma frá honum. En við sjáum hann ekki nema þegar adlt er í lagi hjá honum. Þess á milli ekki,“ segir Karl J. Sig- urðsson. Annþór Kristján Karlsson handrukkari ibúar IVogum á Vatnsleysuströnd eru furöu lostniryfir fréttum afAnnþóri. Bílar fyrir utan heimili Annþórs Annþór hefur beðið á hvita jeppanum fyrir utan DV og heimili ritstjóra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.