Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Side 16
16 LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2004 Helgarblað DV 12 11 1 10 ár að ofan 2 Laugavegi 30 g 517-6777 3 Þar sem úr g er skartgripur 7 6 5 4 BORGARLEIKHÚSIÐ Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík FIMMTUDAGUR 7/10 belgIska kongó__________________ eltirBraga Óla/sson Gríman íyrír besta leik i aöalhlutverkl Kl 20:00 Oriáar sýnmgar RÓMEÓOGJÚUA_____________________ eítir SHAKESPEARE Kl 20:00 Oriáar sýningar FOSTUDAGUR 8/10 HÉRIHÉRASON ettir Coline Serreau LAUGARDAGUR 9/10 MEHNINGARDAGSKRÁ FEB Kl 14:30 CHICAGO________________ eftir Kender, Ebb og Fosse Tvenn Grímuverölaun Kl20:00Fáar sýirírtgar etiir RÓMEÓOGJÚLlA___________ eftir Shakespeare Ki 20:00 Oriáar sýnmgar SUNNUDAGUR 10/10 kl 20:00 Frumsýning Uppselt GHTIH____________________________ eftir Fdward Albee Kl 20:00 RÓMEÓOGJÚUA______________________ eftir SHAKESPEARF Kl 20:00 öriáar sýningar SfÐASTA SÖLUVIKA - ASKRIFTARKORT A 6 SÝNINCAR - VERTU MEÐ f VETUR Una ungsokkur eftirAstrid Undgren kl 14:00 HÉRIHÉRASON eftir Coline Serreau kl20:00- Gulkort GEITIN__________ eftir Fdward Aibee Kl 20:00 Miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is Miðasala, simi 568 8000 RÓMEÓ OG JÚLlA______________ eftir SHAKESPFARE Kl 20:00 Uppselt - Öriáar sýningar QKcíLkíspmmj \ Haustsýning Kynjakatta ^ veröur haldin 9. og 10. október 2004 í reiöhöll Gusts, Álalind, Kópavogi. Sýningin er opin frá klukkan 10-18 báða dagana. Jakob S. Jónsson leikhúsmaður hefur verið búsettur úti í Sví- þjóð allt frá árinu 1982. Hann tók sig til og las alla Njálu á sænsku upphátt fyrir gesti og gangandi á menningardögum í Jönköping. Það er óopinbert heimsmet Oopinber heimsmeistari í upplestri Las upp dr Njalu í 14 tíma og korter „Ég verð að líta á mig sem óopinberan heimsmethafa í upplestri. í sagnalestri. En til þess að verða opinber heimsmethafi í sagna- lestri á ég engra kosta völ annarra en endurtaka leikinn að ári. Það verður á sama stað. Á menningardegi í Jönköping. Þá verð ég orðinn tvöfaldur heimsmethafi - óopinber sem og viður- kenndur," segir Jakob S. Jónsson leikhúsmaður. Þar hefur hann verið búsettur frá því árið 1982 og starfað við leikhús, fengist við skrif, verkefnastjórn og leikstjórn. Er að vinna að skemmtilegri sýningu núna hjá atvinnuleikhúsinu hér í borg. Sýning sem byggir á Völuspá fyrir flmm manna lúðrasveit. Þetta ætlum við að sýna börnum í vetur.“ Um síðustu helgi var mikil dagskrá í Jönköping í Mið-Svíþjóð, fallegri borg sem stendur við suðurenda Vætta- vatns, sem bar yfirskriftina „Mennin- ingardagur og nótt“ - hófst að morgni dags og stóð fram á nótt. Vanilluís til að slípa raddböndin „Dagskráin byrjaði með því að ég hóf lestur Njálssögu. Það var fyrsta dag- skráratriðið. í Borgarbókasafninu. Svo lauk dagskránni með því að ég lauk lestri Njálssögu 14 klukkutímum og 15 mínútum síðar. Þá var ég búinn að lesa viðstöðulaust að undanskildum stutt- um hléum sem ég tók svona á hálftíma- fresti, þrjár til fjórar mínútur í senn að jafnaði, rétt til að fá mér vatn að drekka, hlaupa á klóið og fá mér vanilluís sem er besta smuming fyrir raddböndin sem um getur." Að sögn Jakobs var hvatamaður þessa sérstæða tiltækis borgarbóka- vörðurinn í Jönköping, Erik Lindfeldt, en þessari hugmynd hafði Jakob kastað fram einhvern tíma í vetur. Það var í tengslum við samtal þeirra á milli þess efnis að sagnalestur sem afþreying væri á undanhaldi. „Hann skoraði á mig að gera eitthvað í því, fyrst mér þætti svo vera og án þess að ég gerði mér almennilega grein fyrir því hvað ég var að segja þá taldi ég að það þyrfti þá að gera almennilega. Taka þá lengstu og bestu íslendinga- sögu sem til er og lesa hana upphátt. Hann tók mig á orðinu og þá varð ekki aftur snúið.“ Gersamlega úrvinda eftir upp- lesturinn Menn komu og fóru þar sem Jakob stóð lengi við í Borgarbókasafninu og las upp úr Njálu. Flestir settust niður í um korter og hlýddu á, aðrir sátu allt upp í tvo tíma. „Einn sat með mér frá upphafi til enda og sagðist aldrei hafa upplifað neitt skemmtilega. Sem seg- ir mér að kenningin mín stenst: Að upplestur er hin ágætasta skemmt- un.“ Raddböndin stóðu sig furðanlega vel við allan þennan lestur en Jakob bjóst einna helst við að það yrðu þau sem gæfú sig. „En það var furðulega lít- ið. Reyndar talaði ég næstu tvo daga á eftir hálfri áttund neðar en ég á venju til. Aftur á móti var ég líkamlega ger- samlega búinn. Eins og ég hefði staðið í þindarlausum skurðgreftri í jafn langan tíma, fékk harðsperrur og var gersam- lega úrvinda." Fulltrúar Guinness viðstaddir að ári Nokkrum dögum áður en Jakob tók til við lesturinn kom upp sú spuming hvort þama væri met í uppsiglingu. Við eftirgrennslan í Heimsmetabók Guinness kemur á daginn að skráð heimsmet í maraþon-upplestri er frá árinu 2002 en þá var það lið sex ítala sem las upphátt í 53 tíma og tvær mín- útur, sem þýðir tæpa níu tíma á mann. „Það er langt undir þeim tíma sem ég las. En til að fá þetta skráð í Guinness sem formlegt met þurfa fulltrúar Guinness svo langan undirbúnings- tíma að það reyndist ekki gerlegt." Eins og áður sagði hyggst Jakob endurtaka leikinn að ári og þá verða fulltrúar Guinness viðstaddir. Njálu- upplestur Jakobs var á sænsku og hann studdist við þýðingu Ingegerd Fries, þýðingu sem hann segir vera þá að- gengilegustu og áheyrilegustu sem í boði er. Nokkrar sænskar þýðingar á Njálu em til. „Þetta er góð þýðing hjá Fries og þjál til lestrar. Hún gerir sér far um að hafa orðfæri sem er aðgengilegt og áheyrilegt. Hún á allt hrós skilið fyr- ir þessa þýðingu. Ég er ekki ffá því að nútíma-Svíi skfiji Njálssögu betur en nútíma-íslendingur. “ Að sögn Jakobs er hugsanlega kom- inn tími á að endurrita Njálu og færa textann til nútímahorfs. Þetta er vissu- lega sprengjusvæði þvf íslendingar státa sig að því á hátíðarstundum að geta lesið fomíslensku reiprennandi. En Jakob segir að ísland sé þá eina landið þar sem tungumálið hafi ekkert breyst. „Menn em byrjaðir á að þýða Biblíuna upp á nýtt. Hver kynslóð verð- ur að taka til sín sinn menningararf og ekki væri vitlaust að gera íslenskum nútímalesendum Njálu aðgengilega." jakob@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.