Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Page 29
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 9. OKTÚBER 2004 29
Kvikmyndagerðarmaðurinn Ólafur Jóhannesson forsýndi á fimmtudaginn mikla heimildarmynd um
Bubba Morthens. Myndin hefur verið í um þrjú ár í vinnslu enda segir Ólafur að ekki sé til eins mikið
efni um nokkurn einstakling annan á íslandi. Þau voru því mörg handtökin.
„Já, ég var að ná REM-stiginu,“ seg-
ir Ólafur Jóhannesson kvikmynda-
gerðarmaður þegar DV átti við hann
viðtal. Þá hafði hann ekki sofið lengi
enda lokafasinn í gangi, fíníseringar,
klipping og ffágangur. „Það eru ótrú-
lega mörg handtök í þessari mynd.
Enda er þetta ekki nokkuð sem rubbað
er upp. Það gengur ekki, hafi maður
ákveðið að gera mynd um Bubba.
Hann er mest ‘documenteraði’ mað-
urinn á landinu. Það toppar hann eng-
inn í þeim efiium: Ekki Vigdís, ekki
Davíð... hrein bilun er hversu mikið er
til um hann. Ég hef, ásamt klippidýr-
inu Benedikt bróður, verið undan-
fama mánuði að klippa og við höfum
gert margar útgáfur. Loks fundum við
línu sem okkur fannst ganga. Allt það
sem snertir ævisögu Bubba sjálfs fékk
að halda sér. Annað fór beinustu leið
út. Myndin er 100 mínútur og erum
við að tala um stærstu opnun heimild-
armyndar á fslandi hingað til: Myndin
er sýnd í þremur kvikmyndahúsum."
Bubbaveggurinn
Forsýning var haldin á fimmtudag-
inn og var henni slengt saman við
útgáfupartí hjá Bubba Morthens í
Bubbi og Ólafur Það reyndist Ólafi og
hans mönnum nokkuð snúið að fínna lykil-
inn að kóngnum sem notar einlægriisem
vörn! Óli Paiii tók viðtölin sem betur fer þvl
þá gat Ólafur verið grimmur við klippiborðið.
Smáranum. Myndin hefur verið í
vinnslu nú í tæp þrjú ár og hefur Bubbi
verið Ólafi og hans mönnum innan
handar allan tímann. „Margir hafa ætl-
að að gera mynd um Bubba, margir
hafa byrjað en hætt svo við. Ég fór að
slálja hvers vegna þegar á leið. Þú lend-
ir á einhverjum vegg - Bubbavegg.
Hann notar einlægni sem vöm. Þú
spyrð hann að einhverju og hann veð-
ur einlægur beint í vélamar: Fer að tala
um alkóhólistann pabba sinn og svo
framvegis. Atriði sem fæstir myndu
tala um fyrirvaralaust. Þannig afvopn-
ar hann menn með því að svara strax
hreint og beint. Það tók tímann sinn að
finna lykil að honum. Óli Palli er hand-
ritshöfundur og hann tók öll viðtöl.
Gerði það mjög vel. Það hjálpaði mikið
að ég gat haldið ákveðinni fjarlægð á
viðfangsefnið og gat því verið
grimmari en annars á klippiborðinu."
Bíó að horfa á Bubba horfa á
bíó
Hugmyndina að gerð myndarinnar
á útvarpsmaðurinn Óli Palli sem
hringdi í Ólaf þar sem hann lá í baði.
Þar og þá komst hann að þeirri niður-
stöðu að þetta væri málið. Framleið-
andi myndarinnar er Ragnar Santos.
Ólafur segist „svindla“ upp að
ákveðnu marki með því að notast við
það sem hann kallar gerviheimildir.
Til að mynda leikur sonur Bubba,
Brynjar Úlfur Morthens, Bubba ung-
an. „Með því var hægt að mynda
þriggja þátta bíómyndastrúktúr og
það þurfti að hnika einu og öðru til að
efnið félli inn í það form. Þetta er ekki
ósvipað því og Michael Moore hefur
verið að kynna fyrir okkur. Myndir
Moores eru ákaflega vel upp byggðar.
Þar er kannski að finna ákveðna fýrir-
mynd."
Bubbi var ekki ailtaf þægilegur
viðureignar. „En það góða við Bubba
er að ef hann er geðillur, í vondu skapi,
þá reynir hann ekkert að fela það. Ög
sama hvað hann var þreyttur, alltaf var
hann til í allt. Og við fengum alveg
frjálsar hendur. Hann var ekkert með
puttana í þessu. Hann kom stundum
og horfði á það sem komið var og hon-
um fannst ekki alltaf þægilegt að
horfa. Annars var algert bíó út af fyrir
sig að horfa á Bubba horfa á sjálfan sig.
En Bubbi sagði eftir þá upplifun að
svona sé þetta og hann ætli sér ekkert
að röfla neitt í því."
Hefur dömpað þeim ófáum
kærustunum
Þegar talinu víkur að sjálfum kvik-
myndagerðarmanninum þá má ljóst
vera að honum er léttara að ræða um
myndir sínar en sjálfan sig. Hann seg-
ist Búðdælingur, 29 ára lítill kvik-
myndastrákur sem byrjaði í þeim
bransanum fyrir tíu árum, fór alveg á
bólakaf. „Já, og hefur maður dömpað
þeim ófáum kærustunum til að fá frið
til að klippa og gera kvikmyndir. Þetta
hljómar eins og brandari en það er
mikil kvöl bak við þessa setningu. En
þegar allt kemur til alls er þetta spurn-
ing um aðlögunarhæfni."
Ólafur segist hafa verið með kvik-
myndir á bak við eyrað nánast alla tíð.
„Ég var að keyra út pitsur eftir mis-
heppnaða námstilraun á Italíu. Ég ætl-
aði sem sagt að gerast náttúrueðlis-
ffæðingur. En svo má segja að þung-
lyndið hafi ýtt mér út í þetta kvik-
myndadót aÚt. Maður fékk svo mikið
ógeð á sjálfum sér. Svo er þetta allt að
koma með hjálp góðra manna."
Búddamunkur gengur af trúnni
og giftist kasakstönskum eró-
bikkkennara
Og þetta aUt sem er að koma núna
eru þrjú stór verkefni sem hafa verið
lengi á borði Ólafs. Hann segir að eftir
sig liggi það sem hann kallar „nokkrar
aumingjastuttmyndir“ en nú er Ólafur
að senda frá sér hið mikla verk um
Bubba. Og hann er farinn að sjá fyrir
endann á mynd um dínamískan söfn-
uð sem kallast Afríka United - menn
sem eru frá ýmsum heimshomum og
mynda utandeildarlið í knattspyrnu.
Fyrir liggur áhugi erlendra aðila á að
kaupa dreifingarrétt en Ólafur segir
Ólafur Jóhannesson Kvikmyndagerðarmaöurinn sem ætlaði að verða náttúrueðlisfræðing-
ur, fékk ógeð á sjálfum sér og sneri sér að kvikmyndagerð.
ekki tímabært að tjá sig frekar um það.
„Svo er það mynd sem ég hef verið að
gera síðustu átta ár. Mitt fyrsta verk-
efni var mynd um sjálfan tilgang lífsins
- 19 ára og ædaði bara að afgreiða
þann pakka. Ég ræddi við fulltrúa
hinna ýmsu trúarhópa, meðal annars
Róbert búddamunk. Afar athyglis-
verður maður og sú hugmynd kvikn-
aði að gera mynd um búddisma og
Róbert. Ég hef fýlgst með honum lengi
og hans athyglisverðu sögu. Hann
sagði skilið við búddisma á sínum
tíma, fór til Kasakstan, kynntist eró-
bikkkennara, flutti hana heim og gift-
ist henni. Hjónabandið entist í fimm
mánuði. Svo var það fyrir fjórum árum
að hann fór til Bankok til að gerast
búddamunkur á ný. Ég ætla til
Tælands í janúar til að fylgjast með
honum. Ég hef verið heppinn með
söguþráð þeirrar myndar - hann hefur
skrifað sig algerlega sjálfur."
jakob@dv.is
Dagbók leikstjórans á forsýningardag
09:00 13:00 19:00
„Raggi (framleiðandi) vakti mig klukkan n(u til
að setja mig f gang, forsýning á Blindskeri f dag.
Ég að sjálfsögðu sagðist vera glaðvaknaður,
enda mikilvægur dagur framundan. Sofnaði
stuttu sfðar.
10:00
Vaknaði fyrir alvöru, tók sturtu, karmur slitnaði
og fyllti loftið af vatni. Tók bað f staðinn. Velti
þvf fyrir mér hvernig væri að vera Bubbi
Morthens og vera fara horfa á mynd um sig.
11:00
Dægurmálaútvarpið hringdi, vildi fá mig f viðtal,
fréttastofa sjónvarpsins hringdi, það sama.
„Frægur?" Hugsaði ég og horfði f spegilinn, tæp-
ast. Ólafur Jóhannesson er ekki gott nafn til að
muna. Kannski Óii Jóh. Eða Olavialli. Það ætti að
greipast inni f minnið. (Tek fram að á meðan öllu
þessu stendur hef ég verið að hlusta á morgun-
djassinn og stripplast um á adamsklæðum.)
12:00
Ekkert markvert. Nema jú, nýju fötin passa fínt.
Viðtal við Sirrý frá fréttastofu RÚV. Ekkert stress,
einkennilegt. Ffnt viðtal.
14:00
Innhverf fhugun. Not. Fór á netið að slæpast.
15:00
DVD diskur sendur á Akureyri fyrir sýninguna
þar.
16:00
Viðtal á Rás 2, dægurmálaútvarpið með kollega
og meistara Páli Steingrímssyni. Snerist meira
og minn um Friðþjóf Helgason (myndatöku-
mann) náttúrufrfk.
17:00
Heim, föt, Smárabfó. Bubbi f botn f bflnum.
18:00
Myndin prufuð f þriðja skiptið, Jón Skuggi hljóð-
meistari með allt á hreinu. Poll-rólegur með
hann, Ragga Santos, Jón Eirfk sýningarstjóra og
Benedikt bróður, traustir gæjar.
Gestir mættir, allt að byrja. Styttist í sýningu.
Brynja, herforinginn hans Bubba búin að skipu-
leggja for-partfið af tærri snilld.
Hitti Jakob Bjarnason af DV á klósettinu, töluð-
um saman milli pissuklefa. Flestir úr mínu Iffi
heiðra mig með nærveru sinni, þykir vænt um að
vera til.
Hitti Bubba, fiðringur f honum, eðlilega. Jónatan
Garðarsson peppaði hann upp. Kyssi mömmu,
ömmu og Sunnu systir.
20:00
Ræður, alls ekkert stress, afar einkennilegt. Óli
Palli þakkar Brynju fyrir að lána okkur Bubba.
Benni bróðir minn með einlægar Ifnur. Ég legg
áherslu á að þakka Bubba fyrir deila hjarta sfnu
með okkur. Enda háalvarlegt mál að þegar gerð
er mynd um mann. Get ekki fmyndað mér hvern-
ig það er.
20:07
Myndin hefst ...Hef ekki hugmynd um hvað ég
er að horfa á. Búin að sjá allt svona nokkur
hundruð milljón sinnum. Sýnist fara vel f liðið.
Annars takmarkað að marka forsýningar. Allir
jákvæðir að sjálfsögðu.
21:53
Léttir, léttir, léttir. Sýningarvélin bilaði ekki, fólk
ánægt með myndina ... Bubba létt. Óli Palli segir
mér að ég sé snillingur, spegla það. Merkilegt
þegar fólk hrósar manni, þá finnst manni samt
maður vera sami maðurinn.
22:13
Ölstofan, viðbrögð frá forsýningargestum. Ekk-
ert nema gott, ásamt nokkrum áhugaverðum at-
hugasemdum. Skemmtilegt samtal við Kjartan f
Sigur Rós um myndbandagerð. Ég þakka honum
fyrir mikla innspfarsjón af fyrsta disknum þeirra.
23:50
Heim að sofa. Glaður. Þá er það bara dómur göt-
unnar á Bubba. Kemur f Ijós.
Skrfð undir sæng. Sé starálfinn þeirra Sigur Rós-
armanna.