Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Side 44
Helgarblaö DV
44 LAUCARDAGUR 9. OKTÓBER 2004
Einn besti leikarinn i Hollywood virðist einhvern veginn alltaf leika aukahlutverk. Þó svo sé hefur drauma-
smiðjan fyrir löngu uppgötvað hversu mikill snillingur William H. IVIacy er. Sem er eins gott því Macy ætlaði
sér að verða dýralæknir og þá hefðum við aldrei fengið að sjá hann í Fargo og Boogie Nights.
Fargo William H. Macy I bestu
mynd sinni. Sem Jerry Lunder-
gaard I Fargo, frábærri mynd Coen■
bræðra. Hann var tilnefndur til
óskarsverðlauna fyrir leik sinn.
í
William Hall Macy er augljóslega
ekki þessi týpíska Hollywood-
stjarna. Rólegt fas hans og vinaleg
framkoma gera það að verkum að
hann sker sig úr í öliu glysinu og
glamúrnum þar í borg. Þó hann sé
kannski sjaldnast aðalstjarnan er
naíns aðaU að láta sumar stjörnurnar
líta betur út með frábærum leik í
aukahlutverkum. Hann leikur í
CeUular sem frumsýnd var í íslensk-
um kvikmyndahúsum í gær.
Macy í hljómsveit
Þegar faðir Macys sneri aftur eftir
að hafa barist í Seinni heimsstyrj-
öldinni kvæntist hann ekkju sem
hafði misst mann sinn í stríðinu og
átti fyrir eitt bam. WUliam fæddist í
Miami á Flórída, 13. mars 1950. Þeg-
ar hann var níu ára fluttist fjölskyld-
an norður til Cumberland í Mary-
lahd þar sem pabbi hans fékk vinnu
hjá tryggingafýrirtæki.
WUliam gekk í AUegheny-
menntaskólann og var vinsæU nem-
andi, var tU að mynda kosinn bekkj-
arforseti í tvígang. Það var í þessum
skóla sem Macy kynntist leiklistinni
fyrst þegar hann lék Mordred í upp-
setningu á Camelot. Þó að hann hafi
W* gaman af að prófa þetta fékk
hann ekki leiklistarbakteríuna.
Bróðir WiUiams hvatti hann tU að
stofna hljómsveit með sér, sem þeir
köUuðu Minnesingers. Báðir voru
þeir tónelskir og hneigðir tU Usta.
Árið 1969, eftir að hafa lokið
menntaskóla, var Macy í Reading á
Englandi þar sem hann lærði leikfist.
Hann tók þó lítinn þátt í uppsetn-
ingu á leiksýningum, hafði greini-
lega áhuga á leikUst en hafði ekki
alveg áttað sig á því fyllUega enn.
Hætti við að verða dýralæknir
Þegar hann sneri aftur heim
skráði hann sig í Bethany-háskólann
í Vestur-Virginíu tU að læra að verða
dyralæknir. í skólanum var Macy
flptlega farinn að leUca í nokkrum
leikritum, þar á meðal Of Mice and
„Þegar maður gerir
eitthvað vel er maður
beðinn um að gera
það aftur. Snemma á
ferlinum hlýt ég að
hafa gertþetta (að
leika aula) vel og það
spurðist út. Þetta er
skrýtið því í einkalíf-
inu finnst mér ég ekki
vera auli. Þvert á
móti, mér líður
frábærlega."
Men, og ákvað þá loksins að þetta
vUdi hann gera. Hann skipti yfir í
Goddard-háskólann í Vermont og
einbeitti sér að leUdistinni. Þar lærði
hann af David Mamet, sem þá var
upprennandi leikskáld, og mynduð-
ust sterk tengsl þeirra á mUli. WUli-
am gerðist aðstoðarkennari hjá
Mamet, og þeir ásamt nokkrum öðr-
um nemendum stofnuðu svo St.
Nicholas Company, leikhóp sem tU
að byrja með einbeitti sér að því að
setja upp leikrit Mamets.
WiUiam Macy útskrifaðist frá
Goddars árið 1971 og starfaði áfram
með leikhópnum um tveggja ára
skeið áður en hann fluttist tU KaU-
fomfu. Hann fékk í fýrstu engin
hlutverk en hafði í sig og á með því
að vinna ýmis störf við leiksýningar.
Macy gafst upp á þessu og fluttist tíl
Chicago þar sem hann hitti aftur fýr-
ir David Mamet, sem var þá um það
bU að slá í gegn. Macy endurstofnaði
St. Nicholas Theater Company og
setti upp nokkrar leiksýningar.
Vissi að hann yrði að vera í
Fargo
Þegar Mamet hóf að
leikstýra kvikmyndum
fékk Macy auðvitað
hlutverk í þeim. í
fyrstu notaði hann
nafnið W.H. Macy
en velgengnin lét á
sér standa. FeriUinn
var á hraðri niðurleið
og hann vissi að
hann yrði að breyta
tíl. Macy losaði sig
við skammstöfunina í
nafiii sínu og fluttist tU
Los Angeles. Þar tók fer-
iUinn aftur kipp og hann
fékk aukahlutverk í mynd-
um á borð við Mr. Hol-
land’s Opus og Murder
in the First, svo ekki sé
minnst á fast hlutverk í
nýju og vinsælu sjón-
varpsþáttunum
Bráðavaktinni.
Það var um þetta
leyti sem WiUiam H.
Macy rakst á handrit
sem hann vissi strax
að hann yrði að fá að
koma nálægt. Eftir
fyrsta lestur vissi hann
að hann væri fúllkom-
inn í hlutverk Jerrys
Lundergaard í Fargo,
frábærri mynd Coen-
bræðra. En bræðumir
vom ekki eins vissir í
sinni sök. Macy fór í
tvö áheyrnarpróf og
var neitað í bæði
skiptin. Það var ekki
fyrr en Macy hafði
upp á bræðrunum
og hótaði að
drepa hundana
þeirra að þeir
vissu að hann
væri réttí
maðurinn.
Nokkraraf
myndum Macy
Conquistadora (2005) (f fram-
leiðslu)
Sahara (2005) (f eftirvinnslu)
Cellular (2004)
In Enemy Hands (2004)
Spartan (2004)
Seabiscuit (2003)
Stealing Sinatra (2003)
The Cooler (2003)
Welcome to Collinwood (2002)
Focus(2001)
Jurassic Park III (2001)
State and Main (2000)
Panic (2000)
Magnolia (1999)
MysteryMen(1999)
Happy, Texas (1999)
A Civil Action (1998)
Psycho (1998)
Pleasantville (1998)
JerryandTomH 998)
Colin Fitz (1997)
Wag the Dog (1997)
Boogle Nights (1997)
Air Force One (1997)
Fargo (1996)
Down Periscope (1996)
Mr. Holland's Opus (1995) (
Murder In the First (1995)
Benny & Joon (1993)
| ,11,
lls
v' ' < ■;
h
William H. Macy
Eftir Fargo varð Macy
þekktur. Nafnið hans
var kannski ekki svo
þekkt en það þekktu
allir andlitið á hon-
um. Leikur hans I
myndinni var líka
frábærogvar hann
tilnefndur til
óskarsverölauna.
Frábær karakterleikari
Eftír Fargo varð Macy þekktur.
Nafnið hans var kannski ekki svo
þekkt en það þekktu allir andUtíð á
honum. Leikur hans í myndinni var
líka frábær og var hann tUnefndur tíl
óskarsverðlauna fyrir leik sinn.
Síðan þá hefur WUliam verið í
mörgum frábæmm aukahlutverk-
um og stutt þannig við margar af
stærsm stjörnum samtímans. Hann
er frábær karakterleikari og fólk
kemst ekki hjá því að taka eftír WiUi-
am H. Macy, jafnvel þó hlutverkin
séu h'tU og hæversk.
Macy fékk hlutverk í mörgum
stórum myndum eftir Fargo. Meðal
þeirra eru Air Force One, Wag the
Dog, PleasantviUe og State and
Main. Þær tvær sem standa þó upp
úr em myndir Pauls Thomas And-
erson, Boogie Nights og MagnoUa.
Macy er hreint ógleymanlegur í
þeirri fyrri og stendur sig sömuleið-
is frábærlega í þeirri síðari. Nýjasta
mynd hans, CeUular á móti Kim
Basinger, er komin í íslensk kvik-
myndahús og á næstunni gæti ver-
ið von á meira góðgætí frá Macy. Á
næsta ári verður aUa vega ffumsýnd
kvikmyndin Sahara þar sem hann
leikur á móti Matthew McCon-
aughey og Penelope Cruz. Hún
fjallar um landkönnuð sem leitar að
guUi í Afríku en fær að kynnast
dularfuUum sjúkdómi sem drepur
fólk í Afríku í miklu mæli. Sem fyrr
er Macy í aukahlutverki en mun
væntanlega gera myndina þess
virði að sjá hana.
En Macy hefur ekki bara leikið í
bíómyndum. Hann lék í um 50 leik-
ritum á tíu ára tímabih sem hann
bjó í New York og hefur leUdð í
ógrynni af sjónvarpsþáttum og
myndum f sjónvarpi. Áuk þess hefur
Macy kennt leikhst og leikstýrt
nokioið sjálfur.
Hann er kvæntur leikkonunni
FeUcity Huffman og saman eiga þau
tvær dætur. Þau búa í Los Angeles.
hdm@dv.is