Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Side 50
5»' LAUAGRDAGUR 9. OKTÓBER 2004 Sport DV Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari um leikinn gegn Möltu í dag Ætlum að taka völdin snemma Ásgeir Sigurvinsson, landsliðs- þjálfari var brattur þegar DV ræddi við hann á Möltu í gær en var þó ekki hrifinn af aðstæðunum sem boðið var upp á. „Aðstæður hér koma okkur ekkert á óvart enda vissum við DV, Möltu V' fýrirfram hvernig þær myndu verða. Það er ekki boðið upp á neitt „Wembley- gras“ hérna. Völlurinn er ósléttur og grasið er frekar hart en við munum ekki láta það á okkur fá heldur reyna að spila okkar leik.“ Aðspurður um liðið sagði Ásgeir að hann og Logi væru ekki enn búnir að ákveða byrjunarliðið en það væri þó ljóst að einhverjar breytingar verða gerðar á byrjunarliðinu frá því í leiknum gegn Ungverjum, sérstak- lega í ljósi þess að Jóhannes Karl Guðjónsson er í banni eftir að hafa fengið tvö gul spjöld í fyrstu tveimur leikjunum. Ásgeir sagði að stefnan væri að taka völdin snemma og setja pressu á Möltumenn ofarlega á vellinum. „Við eigum að hafa getuna til þess og ætlum ekki að bíða og sjá hvað þeir gera. Við verðum að koma okkar leik í gang strax, það er lykillinn á góðum leik,“ sagði Ásgeir. Aðspurður um Möltuliðið sagði Ásgeir að það spilaði nokkuð grimma rangstöðutaktík og reyndi að sækja hratt þegar það ætti mögu- leika. „Þeir eru ekki mjög varkárir í sínum leik og við verðum að nýta okkur það. Ef við höldum hreinu þá er ég fullviss um að við fáum þrjú stig,“ sagði Ásgeir í samtali við DV í gær. henry@dv.is Glaðbeittur Geiri AsgeirSigurvinsson varí góðu skapi á æfíngu landsliðsins á Möltu. DV-mynd Domenic Aquiiina ÞÆGIND GÆÐI Myndaðu þér sjálfstæða skoðunl Cerato er ekki bara eftirtektarverður við fyrstu sýn. Hann hefur upp á að bjóða stílhreint og fallegt útlit innra sem ytra. Straumlínulöguð hönnun Cerato ásamt sérstakri einangrun gerir hann einstaklega hljóölátan í akstri umfram aðra bíla í sama flokki. í samræmi við hefðina hjá KIA er Cerato sneisafullur af staðalbúnaöi sem eykur á þægindi bílstjóra og farþega. Öryggisbúnaður er allur hinn vandaðasti enda gefur U.S. NHTSA (National Highway Traffic Safety Administration) Cerato 5 stjörnur fyrir öryggi farþega og bílstjóra. Hjá KIA er öryggi ekki valkostur heldur partur af hugmyndafræði sem setur fólk fremst. Þróunarvinnan við Cerato tók yfir 40 mánuði og kostaði nálægt 20 milljörðum íslenskra króna að fullkomna verkið! Við getum talið upp svo margt annað sem mælir með Cerato en bestu meðmælin gefur hann sjálfur. Komdu, skoðaðu og reynsluaktu! tm KIA MOTORS ÁRFELL - KIA ÍSLAND EHF. VIÐ KAPLAKRIKA • 220 HAFNARFJÖRÐUR • SÍMI 555 6025 • www.kia.is KIA CERATO sjálfskiptur 1.6L kr. 1.790.000,- Rekstrarleiga frá kr. 32.569.- Vlnnum ef við spilum okkar leik Þórður Guðjónsson var eina spurnlngamerldð varðandi meiðsli í fslenska hópnum en hann ' '\ ristarbrotnaði í leiknum j/ • í. gegn Ung- jgi J J< ' verjum í /r - » •) $ síðasta / m mán- / ^ ; uði. Þór- ður virk- \.t ■?; h : aði % hins 43$^ » vegar fiískur á æfingu í gær og virtist klár í slaginn. En spumingin er hvort hann endist í níutíu . f mínútur. „Það er jCjgj ekli spuming að '”#T við ætlum að taka þrjú stig f þessum leik og ég er verttlega bjartsýnn á að við náum því takmarki. Eg er f fínu standi og klár í slaginn en það verður bara að koma í ljós hvort ég geti tekiö nfutíu mínútur. Það hefur ekkert reynt á það enn þá. Ég mun gefa allt sem ég á í þennan leik og sjá svo til hvað ég endist,“ sagði Þórður. Hann sagði leikinn í dag leggjast vel í sig. „Ég held að þessi leikur sé kærkominn fyrir okkur eftir tvö óþarfa töp gegn Búlgörum og Ungverjum og við ætlum okkur sigur í þessum leik. Við erum vel stemmdir og vitum hvað þeir geta og hvað við getum. Ef við spilum okkar leik er ég ekki í vafa um að við vinnum leikinn. Þetta er þó erfitt verkefni því Malta eygir kannski einna helst að ná í stig gegn okkur á heimavelli en það er okkar að sjá til þess að það gerist ekki,“ sagði Þórður Guðjónsson í samtali við DV í gær. Þurfum þrju stig til að lifa í riðlinum Brynjar Björn Gunnarsson kemur að öllum líkindum inn í liðið aftur eftir að hafa verið í leikbanni gegn Ungverjum. Brynjar sagði í samtali við DV að hann væri klár í slaginn og sagðist sjaldan hafa verið í betra formi. „Það er alveg ljóst aö við þurfum þrjú stig til að halda lífi í riðlinum. Við ætlum að leggja allt undir til að taka þau þrjú stig sem f boði eru. Liðið frá Möltu mun væntanlega selja sig dýrt en ég lofa því að við munum berjast eins og villimenn á vellinum,“ sagöi Brynjar. Geir aðstoð- ar ekki Viggó Geir Sveinsson mun ekki verða aðstoðarþjálfari Viggós Sigurðssonar hjá íslenska lands- liðinu en Viggó hafði lagt hart að Geir að vinna við hlið hans. Viggó staðfesti í samtali við DV í gær að Geir hafði haft samband við sig og tjáð honum að hann gæti ekki aðstoð hann. „Hann gaf mér í sjálfu sér enga ástæðu fyrir því en það hefði verið mjög gott að fá hann," sagði Viggó sem þarf að finna að- stoðarmann ___ sem fýrst. JjiMflHka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.