Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Side 59
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2004 5ft
Aldraðir búi
á Álftanesi
Bæjarráð Áiftaness vill
semja við hjúknmarheimil-
ið Eir um uppbyggingu
þjónustmbúða fyrir eldri
borgara áÁIftanesi. „Jafn-
framt sé skoðaður mögu-
leiki á rekstri þjónustu-
miðstöðvar fyrir eldri
borgara, sem tengist
íbúðunum. Sam-
hliða verði Ieitað
eftir landi vegna
sllkrar starfsemi
og gert ráð fyrir
því í skipulagi að land sé
frátekið til framtíðamota,"
segir í bókun bæjaráðs sem
þegar hefur falið Gunnari
Val Gíslasyni bæjarstjóra að
leita samninga við Eir og
ræða við Félag eldri borgara
um þátttöku félagsins í und-
irbúningi málsins.
Slagsmál
í þinginu
Slagsmál brutust út í
vikunni á þinginu í
Venesúela milli stjórnar-
þingmanna og stjórnar-
andstöðunnar. Að sögn
BBC fór allt í háaloft og
kjaftshöggin gengu á
milli þingmanna í fram-
haldi af heitum umræð-
um um mjög umdeilt
^ ölmiðlafrumvarp.
Frumvarpinu var víst
laumað inn í dagskrá
þingsins gegn vilja
stjórnarandstöðunnar.
Gera þurfti tíu mínútna
hlé á þingstörfum með-
an þingmennirnir voru
kældir niður. Almenn-
ingur gat fylgst með
slagsmálunum í beinni
útsendingu.
Breiðdæling-
arvilja göng
Flreppsnefnd Breiðdals-
hrepps hefur sent sam-
gönguráðherra ályktun þar
sem þess er farið á leit
að gerð verði göng
undir Breiðdalsheiði,
milli Breiðdals og
Skriðdals. Ennfremur
hafnar hreppsnefnd
framkomnum tillögum
um breytingu á
legu þjóðvegar 1,
en sveitarstjóm nágrann-
anna í Austurbyggð
ályktaði nýlega á þá leið að
þjóðvegur 1 skyldi fara um
ný Fáskrúðsfjarðargöng f
stað vegarins um Breið-
dalsheiði eins og nú er.
Vampírugarð-
urstofnaður
Rúmeníumenn em nú
að byggja fyrsta vampím-
garðinn í heiminum, það er
skemmtigarð sem innblás-
inn er af Dracula greifa.
Riflst hefúr verið um stað-
setningu á garðinum und-
anfarin þrjú ár en nú hafa
menn komið sér saman um
að garðurinn skuli rísa í
grennd við höll konungsins
Vlad Tepes sem var fyrir-
mynd Bram Stokers í fýrstu
bókinni um Dracula. Meðal
annars er ætlunin að hafa
golfvöll í garðinum og
skemmtanir fyrir bæði börn
og fullorðna sem gaman
hafa af blóði drifnum
hryllingssögum.
Spaugstofuleikarinn Karl Ágúst Úlfsson og Ásdís Olsen kona hans stefna Guðrúnu
Þóru Hjaltadóttur næringarráðgjafa til að greiða hálfa milljón sem vantar upp á
25,7 milljóna kaupverð íbúðar á Ægisíðu. Guðrún telur leynda galla hafa verið í
íbúðinni sem hún keypti í janúar 2003 og neitar því að borga fullt verð.
Héraðsdómur Reykjavíkur þarf nú að skera úr um hvort kaupandi
íbúðar hjónanna Karls Ágústs Úlfssonar og Ásdísar Olsen á að
greiða fullt verð eða hvort veita eigi aflslátt vegna leyndra galla.
„Þetta er ómerkilegt mál,“ segir
Karl Ágúst Úlfsson spaugstofustjóri
sem ásamt eiginkonu sinni Ásdísi
Olsen hefur stefnt Guðrúnu Þóru
Hjaltadóttur næringarráðgjafa til að
greiða eftirstöðvar af verði íbúðar
sem Guðrún keypti af þeim hjónum.
Lak inn og á milli hæða
Guðrún keyptí íbúðina á Ægisíðu
98 í janúar 2003. Kaupverðið var
25,7 milljónir króna. Fljótlega taldi
hún sig sjá marga galla á íbúðinni
sem vísvitandi hefði verið haldið
leyndum fýrir henni við kaupin.
Guðrún neitaði í kjölfarið að greiða
1,5 milljón króna sem voru eftir-
stöðvar kaupverðsins.
Meðal gallanna sem sagðir eru
hafa komið í ljós voru lekir gluggar
og baðherbergi sem lak úr ofan á
kyndiklefa sem þar er undir.
Eftir að matsmaður hafði verið
fenginn til að meta þörf á viðgerðum
og áætlaðan kosmað greiddi Guð-
rún spaugstofuhjónunum eina
milljón króna. En Karl Ágúst og Ás-
dís telja sig eiga heimtingu á þeirri
hálfu milljón króna sem eftir stend-
ur.
Með hæðinni sem Guðrún keypti
af hjónunum fýlgir hálfur kjallari.
Meðal annarra núverandi
íbúa hússins má
nefna Jakob R.
Möller
hæstaréttarlögmann. Húsið er byggt
árið 1950.
Smámunasemi út í hött
Mál Ásdísar og Karls Ágústs gegn
Guðrúnu Þóru var tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær. Hjónin
vilja fá það sem út af stendur af
kaupverðinu auk útlagðs lögfræði-
kostnaðar vegna málarekstursins.
„Þetta em algerir smápeningar,"
segir Ásdís Olsen, sem býr nú með
Karli Ágústi í einbýlishúsi í Heiðar-
lundi í Garðabæ.
„Hún fór í einhverja smámuna-
semi og var eitthvað ósátt. Það er
búið að kveða til matsmenn sem eru
búnir að vísa þessu öllu frá. En hún
hefur samt ákveðið að halda hluta af
peningunum eftir. Við erum al-
veg ömgglega í rétti svo
þetta er al-
„Við erum alveg ör-
ugglega í rétti svo jf
þetta er alveg út í hött
hjá henni
veg út í hött hjá henni. En þetta er
eina leiðin sem við höfum," segirÁs-
dís.
„Fólk er einfaldlega ekki sam-
mála um hvað sé á ábyrgð seljanda
og hvað á ábyrgð kaupanda," bætir
Karl Ágúst við.
Guðrún Þóra segist ekkert vilja
láta hafa eftir sér um ágreining sinn
við Karl Ágúst og Ásdísi á meðan
dómsmálið sé
óútkljáð.
gar@dvjþ,.
Karl Ágúst Ulfsson og Ásdfs Olsen Við erum
I rétti og þetta er ómerkilegt smdmál segja
spaugstofuhjónin sem seldu ibúðina sina á Ægi-
slðu fyrir 25,7 milljónir króna. Kaupandinn neitar
að greiða síðustu hálfu milljónina afkaupverð-
inu vegna meintra leyndra galla á íbúðinni.
Guðrún Þóra Hjaltadótt-
ir Segir fbúðina sem hún
keypti á Ægislðu hafa verið
meingallaða og neitar að
greiða umsamiö verð.
Ægisíða 98 Deilt er um meinta
leynda galla llbúðl þessu húsi á Ægi-
síðu. Gluggar láku og vatn streymdi
úr baðherbergi ofan I kyndiklefa.
Framleiðendur Næslands fyrir dóm
Sendi 3 milljóna Audi fram af klettum
Neita að borga afpöntuð herbergi
„Þetta er vegna ágreinings um
hóp sem pöntuð var gisting fyrir en
mætti ekki," segir Steinþór Jónsson,
hótelstjóri Hótels Keflavíkur, sem
stefnt hefur framleiðanda kvik-
myndarinnar Næslands til að greiða
100 þúsund krónur.
Steinþór segir hótelið vilja
greiðsluna fyrir herbergi í þrjár
nætur sem aðstandendur Næs
lands hafi pantað með fimm
daga fyrirvara í sumar
vegna töku myndarinnar.
Listí með nöflium gestanna
hafi verið sendur hótelinu.
„Áætlanir þeirra breytt-
ust á síðustu stundu. Her-
bergin voru afbókuð sama
dag og hópurinn áttí að koma.
Þórir Snaer Sigurjónsson Fram-
leiðandi Næslands neitar að greiða
100 þúsund krónur fyrir hótelher-
bergi sem voru afpöntuð I Keflavlk.
Það er ágreiningur um hvort við eig-
um rétt á þessum greiðslum eða
ekki. Við erum bara að fara fram á að
þeir borgi fýrstu nóttina. Við teljum
það vera eðlilega kröfu, enda lentum
við í vandræðum því við höfðum
vísað fólki frá. Þeim fannst hins veg-
ar ekki sanngjarnt að þeir borguðu
þar sem tiltölulega stutt
væri síðan þeir hefðu
bókað," segir Stein-
þór og ítrekar að
kvikmyndafram-
leiðandinn sé í
raun ekki að hlaup-
ast á brott frá við-
urkenndri skuld.
Forsvarsmenn
Næsland telji fyrir-
tækið einfaldlega
ekki eiga að greiða
fyrir þjónustu sem
eldd hafi verið
nýtt.
Þóttist hafa bjarqast
úr bílslysi
Þrítugur maður, Benedikt Matthí-
asson, fékk fimm mánaða fangelsis-
dóm í Hæstaréttí í gær. Hann var
dæmdur fyrir að hafa sviðsett bílslys í
Vættarnesskriðum þar sem hann var
á leiðinni frá Fáskniðsfirði að Hall-
ormsstað. Benedikt kallaði til lögreglu
þar sem hann sagði bíl sinn, þriggja
milljón króna Audi, hafa hrapað fram
af klettunum. Hann var á stutterma-
bol og var með drullu og skrámur á
öðrum handleggnum. Benedikt sagð-
ist hafa verið á 60-70 kílómetra hraða
þegar hann fór ffam af, en honum
hefði tekist að stökkva úr bílnum á
ferð. Lögreglu þótti firásögnin grun-
samleg og komst að því að hjólfór
hefðu verið í kantinum sem bentu til
þess að bíllinn hefði ekki getað verið á
þeirri ferð sem Benedikt sagði. Fyrir
Fáskrúðsfjörður Þritugur maður sviðsetti
bllslys en lögreglan á Fáskrúðsfirði upplýsti
máliö.
dómi vitnuðu ýmsir sérfræðingar og
studdi málflutningur þeirra grun-
semdir lögreglu. í héraði dæmdi
Helgi Ómar Bragason jarðeðlisfræð-
ingur í málinu. Benedikt krafðist þess
að dómurinn yrði gerður ómerkur
þar sem Helgi hefði verið skólameist-
ari í Menntaskólanum á Egilsstöðum
og vikið Benedikt úr skóla vegna
áfengisneyslu þegar hann var þar við
nám og væri því vanhæfúr. Þetta
gerðist fyrir 10-14 árum og Ilæstirétý
ur sagði þetta ekki skipta máli.