Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 3
HörkuM á meðan á tökum stáð
Egill Ólafsson í Englakroppum Sjón■
varpsmynd eftir Friörik Þór sem Egilt
man ekki mikið eftir en man að það var
ógurlega kait á meðan á tökum stóð.
„Ég man ógurlega lítið eftir þessari mynd en man að hún var
tekin einhvern tíma rétt fyrir 1990, líklega 1989," segir Egill
Ólafsson um skyndimyndina
Skyndimyndin
sem er úr kvikmyndinni
Englakroppum eftir Friðrik
Þór. Egill segist eftir sem áður muna eftir að það hafi verið
hörkufrost og ægilega kalt á meðan á tökum stóð. „Ég man ekki
hverjir voru með mér í þessari mynd en við vorum þrír og
lékum einhvers konar demóna.
Hvort myndin hafi verið leiðinleg svarar Egill að það hafi
hún ugglaust ekki verið. „Ætli hún hafi ekki frekar hvatt fólk til
að hugsa. Hvaðan í andskotanum kemur annars þessi krafa
ungu kynslóðarinnar um að allt eigi að vera svo skemmtilegt.
Það á alltaf að vera svo gaman. Ég skil ekkert í þessu því ef allt
væri svona skemmtilegt, þá rynni allt saman og allt yrði að
lokum leiðinlegt," segir Egill hlæjandi og vill mátulegan
skammt af hvoru tveggja.
Spurning dagsins
Góðar skattalækkanir?
Efþærleiða tiljöfnuðar
„Skattaiækkanir eiga rétt á sér leiði
þær til meiri jöfnuðar í samfélaginu.
Tekjuskattslækkun stjórnvalda gerir
það ekki. Hins vegar myndi lækkun
matarskattsins gera það svo um
munaði."
Björgvin G. Sigurðsson
alþingismaður.
„Ég hefaldrei
verið hrifinn af
skattaiækkun-
um sem koma
niður á þjón-
ustunni. Óttast
að menn muni
finna fyrirþessu í auknum þjón-
ustugjöldum þegar fram líður.
Svo menn þurfa að skoða þetta
betur."
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambandsins.
„Ég hefekki
sett mig inn í
málið. Var
fjarverandi um
helgina. Mér
finnstgottef
það er hægt að
lækka óbeinu skattana, til
dæmis á nauðsynjavörum, en
ég veit ekki með hitt. Þarfað
hugsa málið betur."
Sigrún Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross
íslands.
„Mér finnst
þetta allt oflít-
ið. Það borgar
sig varla að
taia um það.
Skattalækkan-
ir eru samt
alltaf til góða. Þeir ættu samt
frekar að lækka virðisaukaskatt-
inn sem er að drepa alla."
Guðný Halldórsdóttir
kvikmyndaleiksstjóri.
„Eigum við ekki
að vona að
þetta verði
okkur til hags-
bóta. Sérstak-
legafyrirþá
sem mest
þurfa á því að halda. Það breyt-
ir því ekki að tekjustofni ríkis og
sveitarfélaga er misjafnlega
skipt miðað við þau verkefni
sem hvíla á herðum okkar. Fyrst
og fremsthvað varðargrunn-
skólana. En ríkið getur ekki
skorast undan því."
Bergur Elías Ágústsson, bæj-
arstjóri íVestmannaeyjum.
Ríkisstjómin ætlar að lækka tekjuskattinn um fjögur prósent og
afnema eignaskatt. En sitt sýnist hverjum.
Barnaþrælkunin
Alþjóðavinnumálastofnunin hefur tekið saman
lista yfir þau tlu riki íheiminum þar sem mest
kveðurað vinnuþrælkun barna á aldrinum 10-14
ára. I gögnum stofnunarinnar er þó tekið fram að
þar á bæ telji menn víst aðum 21 milljón barna,
5-14 ára, sé þrælað út á degi hverjum. Börn þessi
eru ekki að vinna með skóla, þeim stendur skóla-
ganga ekki til boða. Og þau þekkja ekki sögnina
að leika sér nema afafspurn.
LAND BARNAÞRÆLARALLS HLUTFALL AF HVERJUM 100 BÖRNUM
i. Malí 726.000 51,14
2. Bhútan 136.000 51,10
3. Búrúndí 445.000 48,50
4. Úganda 1.343.000 43,79
5. Nfgería 609.000 43,62
6. Búrkína Fasó 686.000 43,45
7. Eþíópía 3.277.000 42,45
8. Nepal 1.154.000 42,05
9, Rúanda 413.000 41,35
10. Kenýa 1.699.000 39,15
Náttúran reynir hvaö hún getur aö láta okkur takast ætlunarverk okkar en hún er ekkiháð okkur. Við erum ekki
eina tilraunin sem hún er með í gangi. - R. Buckminster Fuller 1895-1983
Það erstaðreynd...
...aðíþær
250 milljónir
ára sem
kakkalakkar
hafa verið til
á jörðinni
hafa þeir
ekkert
þróast.
Rithöfundur, leikari og markaðsstjóri
Hallgrímur Helgason rithöfundur er bróðir stjóri. Hallgrímur er fæddur árið 1959 og
tviburabræðranna Gunnars leikara og er því sex árum eldri en tvíburarnir. Gunn-
Ásmundar markaðsstjóra. Faðir þeirra er ar hefur verið á fullu að leikstýra barna-
Helgi Hallgrímsson, fyrrverandi vegamála- og unglingasýningunni Hinum útvalda en
Ásmundur er að hefja störf
sem markaðsstjóri Ölgerð-
arinnar Egils Skallagríms-
sonar. Hallgrimur gafút
bók um Grim fyrir
skemmstu en skrifarnú um
Bödda.is, bloggara á lands-
byggðinni, bók sem á að
koma útá næsta ári.
í tilefni af þakkargjörðardeginum 25. nóvember 2004
mun Eiki bjóða upp á kalkún og meðlæti að hætti
Bandaríkjamanna í hádeginu fimmtudaginn 25.
nóvember og föstudaginn 26. nóvember.
Borðapantanir í síma 511 6030
Verð krónur 1.490,-
BMBH
Hótel Cabín
Borgartúni 32 * 105 Reykjavík