Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Qupperneq 9
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 9 Lögreglan fann köttinn Lögreglan í Reykjavík aðstoðaði konu í Vesturbæ sem bað lögregluna að hjálpa sér að nálgast kött- inn sinn. Kötturinn þessi var kominn inn í hús sem verið var að innrétta og treysti konan sér ekki á eftir honum. Lögreglumenn að- stoðuðu konuna og köttur- inn komst til sín heima. Barinn með hafna- boltakylfu Á laugardag var til- kynnt til lögreglunnar í Reykjavík að maður hefði verið sleginn með hafnaboltakylfu. Lög- reglan og sjúkrabíll fóru á vettvang og var maður- inn fluttur á slysadeild. Hann var með skurð á enni og fulla meðvitund. Lögreglan náði árásar- aðilanum og lagði hald á hafnaboltakylfuna. Engin útköll vegna ölvunar Segja má að helgin hafi verið sallaróleg í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði. Rólegt virtist yfir fólki og. engin útköll bárust vegna ölvunar. Þó þurftu lög- reglumenn að hafa afskipti af ungmennum sem höfðu áfengi meðferðis í Hafnar- firði aðfaranótt sunnudags. Þau voru flutt í hendur for- eldra. Húsgögn flugu út um glugga í upphafi helgarinnar barst lögreglunni í Reykjavík tilkynning um heimilisófrið í Vesturbæ. Sagt var að húsgögn kæmu þar fljúgandi út um glugga. Þegar lög- reglan kom á staðinn til að kanna málið kom í ljós að þama vom iðn- aðarmenn við vinnu sína og drógu ekki af sér í framkvæmdunum. Lof- uðu þeir lögreglunni að taka til eftir sig. Ólafur Óskar Einarsson á lóðinni f Bústaðahverfi Vill byggja falleg raðhús fyrir fatlaða þar sem hanná son sem er fatlaður en fær dræmar undirtektir I borgarkerfinu. Ólafur Óskar Einarsson byggingameistari hefur sótt um leyfi til að byggja raðhúsa- lengju fyrir fatlaða við Bústaðaveg. Málið brennur á honum enda á hann sjálfur fatlaðan son en borgaryfirvöld hafa tekið heldur dræmt í góða hugmynd hans. „Ég veit sem er að mín á ekki alltafeftir að njóta við og ég vil í það minnsta sjá son minn i öruggu umhverfi áður en ég erallur" Raðhús fyrir fatlaða af föðurást Ólafur Óskar Einarsson múrarameistari hefur sótt um leyfi til borgaryfirvalda til að byggja raðhús fyrir fatlaða á auðri lóð rétt ofan við Bústaðaveg, í námunda við Bústaðakirkju. Málið hefur verið tekið fyrir hjá borgaryfirvöldum en hlotið neikvæðar undirtektir með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa. „Þetta brennur á mér vegna þess að sjálfur á ég fatlaðan son. Ég veit sem er að mín á ekki alltaf eft- ir að njóta við og ég vil í það minnsta sjá son minn í öruggu umhverfi áður en ég er allur. Eg geri þetta ekki síst af föðurást,“ segir Ólafur Óskar en faúaður son- ur hans er nú um þrítugt; slasaðist það mikið þegar hann féll ofan úr stiga að aldrei verður hann samur. Hugmynd Ólafs Óskars er að byggja einnar hæðar há raðhús, 90 fermetra hvert, fyrir fatlaða á þeim reit sem lengi hefur staðið auður fyrir ofan Bústaðaveg: Góður staður „Ég vissi af þessari lóð og held reyndar að ástæðan fyrir því að ekki er búið að byggja þarna nú þegar sé að aðrir hafi ekki komið auga á hana. Þetta er besti staður í bænum, umvafinn gróðri og myndi henta ákaflega vel sem sérbýli fyrir fatlaða," segir Ólafur Óskar sem hefur þegar eytt stórfé í undirbún- ing og teikningar raðhúsanna sem yrðu án hliðstæðu í borgarlandinu. Samkvæmt teikningum gerir Ólaf- ur Óskar ráð fyrir 14 íbúðum í rað- húsunum en myndi sætta sig við færri ef út í það færi: Gefst ekki upp „Ég er að vísu ekki enn búinn að fá úrskurð yfirvalda en ég trúi ekki að gott fólk setji sig upp á móti þessu. Hvers vegna ættu fatlaðir ekki að fá að búa á þessum reit sem hentar þeim svo vel? Þá er næsta skref að útskýra málið betur fyrir borgaryfirvöldum. Alla vega var mér vel tekið þegar ég fyrst setti þessa hugmynd fram svo ég vona hið besta," segir Ólafur Óskar. Lóðin sem hér um ræðir er fyrir ofan Austurgerði, skáhalt upp frá gatnamótum Sogavegar og Bústaðavegar í hvarfi frá allri umferð: „Einstakur staður fyrir fatlaða," segir Ólafur Óskar Einars- son. Villiköttum að mestu útrýmt á Fáskrúðsfirði Mýsnar stíqa dans „Ég held að það sé ekkert meira um mýs en á hverju hausti. Við höf- um ekki verið með neina herðferð í gangi gegn kattaeigendum," segir Steinþór Pétursson, sveitarstjóri á Fáskrúðsfirði um að fækkun katta í bænum leiði til mikils músagangs. „Á hverju hausti er gert átak í að fækka útigangsköttum. Það kann að vera að þeim hafi eitthvað fækkað. Um samspilið þarna á milli veit ég ekki," segir sveitarstjórinn. Birgir Steinþórsson meindýra- eyðir staðfestir að músagangur sé talsvert meiri en oft áður. „Við höfum undanfarin ár gengið fram í að útrýma öllum villiköttum. Það er varla til villiköttur lengur. Þetta voru vannærðir kettir sem höfðu það ekki gott. Aldraðir bæjar- búar sem gefið hafa þeim ár eftir ár hafa sjálfir verið að falla frá," segir Sjást ekki lengur Átak Iað halda afturaf villiköttum er meðal annars ástæða þess aö músum fjölgar á Fáskrúðsfirði. Birgir og bendir þeim sem vilja útrýma músum hjá sér í útihúsum og bílskúrum á að fá hjá honum sérstaka bakka sem mýsnar festast í. „Fólk getur líka notað gildrur og veitt þær lifandi og sleppt. En það hefur ekkert upp á sig ef á að fækka þeim," segir Birgir. Ánægður með nýja ævisögu Laxness Hannes skorinn upp í desember Hannes Hólmsteinn Gissurarson segist ánægður með nýja ævisögu Halldórs Laxness sem Halldór Guðmundsson hef- ur nýverið sent frá sér: „Ég hef aðeins kíkt á hana og sýn- ist þetta vera falleg bók," segir Hannes Hólmsteinn sem lagður var á sjúkra- hús fyrir skemmstu með sprunginn botnlanga. Hefur hann síðan verið á sýklalyfjum en til stendur að skera hann upp vegna botnlangans í desember. Leggst Hannes þá aftur inn á sjúkrahús. Halldór Guð- mundsson Ævisaga hans um Laxness hefur fengið óvenju- góða dóma. Hannes Hólmsteinn Skrifar ekki fyrir söluna, heldur söguna. Aðspurður hvort góðir dómar sem Halldór Guðmundsson hefur fengið vegna ævisögu sinnar um Laxness eigi eftir að hafa áhrif á sölu á þeirri ævisögu sem hann sjálfur er að skrifa um skáldið, svarar Hannes Hólmsteinn: „Ég skrifa ekki fyrir söluna, ég skrifa fyrir söguna. En hins vegar hef ég ekkert á móti góðri sölu eðli málsins samkvæmt."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.