Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Síða 13
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÚVEMBER 2004 13
Hótelið
fullt ár fram
í tímann
Gríðarleg aðsókn er í
hótelgistingu í sveitum
landsins. Nú er svo búið að
fullbókað er í Hótel Skafta-
felli í Freysnesi allt næsta
sumar og byrjað er að
bóka fyrir árið 2006. Fram
kemur á samfélagsvef
Ilornafjarðar að mikil
ánægja sé með aðsókn
túrista. Hefur ferðamanna-
tíminn lengst, en skemmst
er þess að minna að fjöldi
fólks var á hótelinu þegar
þak rifnaði af því í óveðri
fyrr í haust. Pláss er fyrir
110 manns á hótelinu og
eru biðlistar þegar teknir
að lengjast fyrir sumarið.
Reykjanesbrautin Hérók
seinheppinn ökumaður út af
um helgina, ölvaður og með
amfetamín I bílnum.
Keyrði út af, fullur og með dóp í bílnum.
Spíttaður út af
Reykjanesbrautinni
Lögreglan í Haötarfirði var kölluð
út aðfaranótt laugardags vegna bfls
sem farið hafði út af Reykjanesbraut.
"Þegar lögregla kom á vettvang vökn-
uðu fljótlega grunsemdir um að ekki
væri allt með felldu varðandi ástand
mannsins sem menn töldu að væri
ölvaður undir stýri.
Lögreglan hafði afskipti af mann-
inum og handtók hann grunaðann
um ölvun. Þegar verið var að draga
bflinn, sem var að sögn lögreglu tals-
vert skemmdur, upp á veg tóku
glöggir laganna verðir eftir nokkru
sem vakti grunsemdir um að hugs-
anlega væri ölið ekki það eina sem
ökumaðurinn hafði innbyrt. Við eft-
irgrennslan í bflnum fannst enda
talsvert magn af hvítu efni sem lög-
regla telur að sé amfetamín, eða
spítt eins og það er jafnan kallað.
Að sögn lögreglu var ekki um
mikið magn af efninu að ræða en
málið telst nú upplýst og sein-
heppni ökumaðurinn þarf að öllum
líkindum að ganga suður með sjó í
næstu ferð því hann missir ökuskír-
teinið.
helgi@dv.is
Tvíburarnir Arnar og Borgar Þórissynir fluttu til Danmerkur
eftir skrautlegan feril á íslandi. Þeir voru þekktir fyrir að
skipuleggja árás á lögregluna og stela af nemendafélagi Iðn-
skólans. Ingi Þór Kjartansson segir Borgar reka verktakafyr-
irtæki í Kaupmannahöfn með islenskum verkamönnum sem
ekki fái greidd laun.
Borgar borgar okki
„Hann skuldar okkur öllum peninga," segir Ingi Þór Kjartansson
sem starfaði hjá verktakafyrirtækinu Apartments sem Borgar
Þórisson rekur í Kaupmannahöfn. Ingi Þór var einn af sjö fs-
lendingum sem vann hjá Borgari, mest við að mála íbúðir sem
Borgar tók að sér að gera upp fyrir fólk.
Ingi Þór segir engan af mönn-
unum sjö hafa fengið launin sín:
„Borgar leigði okkur íbúð, lét
okkur fá gsm-síma og svoleiðis. Við
vorum þannig algerlega upp á hann
komnir á meðan við vorum þarna
hjá honum. Hann lofaði alltaf að
borga, lét mann kannski fá svona
þúsund kall á dag til þess að róa
mann niður. Einu sinni þegar við
vorum að rukka hann sagðist hann
borga eftir viku en hækkaði launin
til þess að bæta okkur óþægindin,"
segir Ingi Þór sem sett hefur sitt mál
í innheimtu hjá Intrum.
Ber sig eins og milljónamær-
ingur
Ingi Þór segir Borgar skulda sér
400.000 krónur og fullyrðir að hann
skuldi hinum mönnunum sex líka
peninga, jafnvel meiri en honum.
Hann segir að slimað hafi upp úr
áður órjúfanlegri vinátm tvíburanna
Amars og Borgars. „Hann er útúr
kókaður á hverjum degi. Lifir mjög
hátt og hagar sér eins og milljóna-
mæringur. Býr í risastórri „Pent-
house íbúð á besta stað í Kaup-
mannahöfn og keyrir um á glænýjum
Audi. Hann lifir á svikum þessi mað-
ur,“ segir Ingi Þór. Hann segir Borgar
hafa verið með skæting þegar hann
reyndi að rukka hann. „Hann sagði
mér að hann kæmist upp með að
borga mér ekki vegna þess að ég
hefði gefið reikningana út á íslandi.
Hann sagðist komast upp með allt
sem hann ætlar sér,“ segir Ingi Þór.
Varar við Borgari sem ekki
borgar
Ingi Þór ásakar Borgar um að
svíkja jaínvel sína bestu vini sjái
hann sér hag í því. Hann segir Borg-
ar hafa sett einn besta vin sinn á
hausinn með því að fá hann og fjöl-
skyldu hans til þess að skrifa upp á
skuldbindingar vegna kaffihúss sem
þeir opnuðu og fór á hausinn
skömmu síðar.
„Maður þrælaði fyrir hann í
margar vikur án þess að fá borgað.
Um leið og ég hætti að vinna vegna
Hann lofaði alltafað
borga, lét mann
kannski fá svona þús-
und kall á dag tíl þess
að róa mann niður.
launaleysis, þá tók hann af mér sím-
ann og henti mér út á götu,“ segir
Ingi Þór sem varar aðra íslendinga
við að vinna hjá verktakanum Borg-
ari sem borgar ekki. Ingi Þór segir að
Vítisenglarnir hafi verið komnir í
mál bræðranna í Kaupmannahöfn
sem þeir hafi boðist til að rukka með
sínum aðferðum.
Ekki náðist í Borgar Þórisson.
... að vera rokkari?
„Það er alltaf gaman að vera
rokkari, auðvitað er það misjafn-
lega gaman en það er samt alltaf
gaman,“ segir Rúnar lúlíusson,
rokkari íslands. „Ég er nú búinn
að vera í þessu starfi, sem tónlist-
in og rokMð er, frá árinu 1963 og
til dagsins í dag og samanlagt ger-
ir það rúmlega fjörtíu ár. Ætli ég
sé ekki alveg að fara ná tökum á
þessu starfi, ég held samt alltaf
áfram að vinna í
þessu verkefni
sem tónlistin er.
Ég hef alltaf gam-
an af tónlistinni
og fylgifiski henn-
ar rokkinu. Aðal-
kosturinn við að
starfa við þetta
tvennt er að mað-
ur er sjálfs síns
herra, frjáls eins
og fuglinn og
maður getur verið
í stöðugri þróun
með sig sjálfan
samhliða starfinu.
maður bara upptekin við að
skapa sína eigin en maður reynir
hvað maður getur að skanna flór-
una hverju sinni, svona til að vera
með á nótunum. Tónlist er bara
nokkuð sem ég hef alltaf svo
gaman af tíminn mætti bara vera
lengri.
„Ætíi það lýsi því
ekkibesthvað
mér fínnst gaman
að vera rokkari
aðégheldég
verði i því að
eilífu hvað sem
hún er nú löng."
Tónlistin í blóðinu
Maður getur verið í stanslausri
þróun með starf sitt. Þetta er lík-
lega í blóðinu, ég spila og flest all-
ir í fjölskyldunni tengjast tónlist
meira og minna og á einhverju
stigi, hvort sem það eru börnin
mín tvö eða barnabörnin sex. Ég
hlusta og fylgist mikið með mjög
fjölbreytilegri tónlist bæði nýrri
og eldri. Það eru lflca ákveðnir
listamenn sem maður fylgist
alltaf vel með. Það verður þó að
viðurkennast að oftast er
Held að ég spili að eilífu
Ég hef alltaf spilað mjög mik-
ið, síðast í gær
vorum við í
Hljómum að hita
upp fyrir strák-
ana í Beach Boys
og höfðum við
allir gaman af.
Það er alltaf mik-
ið að gerast og
alltaf koma fleiri
plötur og auðvit-
að breytast þær
með tímanum
það væri nú verra
ef tónlistin sem
við erum að gera
í dag væri alveg eins og hún var
hjá okkur 1963, maður er alltaf að
reyna að verða skárri og skárri í
þessu verkefni sem tónlistin er.
Fyrr á árinu gaf ég út plötu sem ég
kallaði Trúbrotin 13 svo var nátt-
úrulega að koma út ný plata með
okkur í Hljómum fyrir viku síðan,
sem hefur nú bara hlotið nafnið
Hljómar. Ætli að lýsi því ekki best
hvað mér finnst gaman að vera
rokkari er að ég held ég verði
rokkari og tónlistamaður að
eilífu, hvað sem hún er nú löng.“