Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Page 21
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 21
Lt
Róbert ekki í
liði mótsins
Róbert Gunnarsson, línu-
maður íslenska landsliðsins, i
handknattleik, var ekki valinn í
úrvalslið World Cup í Svíþjóð
eins og greint var frá í DV í gær.
Róbert spilaði hreint út sagt
frábærlega á mótinu og var
markakóngur þess með 45
mörk en hlaut ekki náð fyrir
augum dómefndar. Þess í stað
var danski h'numaðurinn,
Michael Knudsen, valinn. Auk
hans voru sænski mark-
vörðurinn Thomas Svensson,
homamennirnir Lars Christi-
ansen frá Danmörku og Mirza
Dzomba frá Króatíu, skyttumar
Siarhei Rutenka frá Slóveníu og
Holger Glandorf ffá Þýskalandi
og leikstjórnandinn Jonas
Larholm frá Svíþjóð.
Atburðarásin í Detroit á
lostudagskvöldið
braut af tileftuslausu á Ben
yaUatt þegar 45,9 sekúndur voru til ;
Iuksloka. Staðan var 97-82 fyrir Indiana. j j ^
2 WaUace svaraöi fyTÍr sig með því að
htiiida Artest og upphófust þá töluverð- v 1
stimpingar Ieikmanna á milli. \ ">»5
3 WaS8ðÍSt d ritaraborðið °R ögraði ^ ''
SAitesu,,^ upp f stúku og réðist á einn
inn 01,11 ‘ni að sá væri sökudólgur-
6Stephen Jackson fór í humátt á eftir Art
est og iet hncfanna tala. **
8heiknum var ekki haldið áfram og var bað í
>r ta sinn í sögu NRA sem dómari nevdd- A
st nl að flauta leik afvegna óláta. '
9iermaine O’Neal kom hlaupandi og \\
,ky,dl hhorfanda á ferðmni en ^ S&jfiU
.^10
11 í,eiðinni f á« að búningsher-
\ I I \gRuuimvar0llu lauslegu
jg SDht í átt að O’Neal 8
~^á 11 "fygortMsiglfldegan
■» [W I <• ítí7 Vm sinn mann með
íft' ■ ;. ðn' ^K'ssköflu sem barefli en
„ unn ;!( aðstoðítrþjálfurum
Pacers náði að siíww, u.! ’ n
> náði að stöðva hann.
Ágúst Jóhannsson,
þjálfari Gróttu/KR.
Á eftir að gera góða hluti
„Mér þótti flest varðandi þetta
mót jákvætt. Það var mikill stígandi
í leik íslenska liðsins allt mótiö og
nýir leikmenn eins og Markús Máni
Michaelsson og Einar Hólmgeirs-
son vora mjög góðir eins og reyndar
Róbert Gunnarsson sem var frábær.
Markverðimir Hreiðar Guðmunds-
son og Roland Eradze vora mjög
góðir og það er vonandi að mark-
varslan, sem hefur verið veikleiki
liðsins á undanförnum mótum, sé
komin í lag. Viggó fer sínar eigin
leiðir og trúir á þær og mér fannst
skína í gegn á mótinu í Svíþjóð að
leikmenn trúðu einnig á það sem
hann lagði fyrir þá. Ég er því ekki í
vafa um að hann á eftir að gera góða
hluti," sagði Ágúst Jóhannsson.
Hann sagði að vamarleikurinn
ætti eftir að slfpast til og hrósaði
Viggó fyrir að spila framliggjandi 3:3
vörn. „Það eru ekki margir þjálfarar
í heiminum sem þora því en það
tekur mikinn tíma að æfa svona
vörn. Ég hef hins vegar fulla trú á
því að hún verði klár í Túnis," sagði
Ágúst sem vill fá Alexander Peter-
son með til Túnis.
„Hann myndi leysa hægri horna-
stöðuna með glans."
Viggó Sigurðssyni eftir World Cup í Svíþjóð?
Lengsta keppnisbann í sögu NBA-deildarinnar var sett í fyrra-
kvöld á hendur Ron Artest, hjá Indiana Pacers, fyrir slagsmál við
áhorfendur í leik við Detroit Pistons á föstudaginn var. David
Stern, framkvæmdastjóri NBA, brá skjótt við og felldi dóm strax
tveimur kvöldrun seinna. Tveir aðrir leikmenn hjá Pacers voru
dæmdir í 25 og 30 leikja bann.
Eftirmálar verstu slagsmála sem
komið hafa upp í sögu NBA-deildar-
innar, hafa vakið mikla athygli í
íþróttaheiminum. Aldrei hafa áhorf-
endur NBA-leiks fengið að kenna
jafn harkalega á því og í leik Detroit
Pistons gegn Indiana Pacers. Þrír
leikmenn hjá Pacers fengu harða
dóma en spekingar um allan heima
kölluðu á hörð viðbrögð af hálfu
David Stern, ffamkvæmdastjóra
NBA, sem létu ekki á sér standa.
Ron Artest, upphafsmaður áflog-
anna, var dæmdur í bann út tímabil-
ið, alls 73 leiki. Samheiji hans hjá
Pacers, Stephen Jackson, fékk 30
leikja bann og Jermaine O’Neal, sem
að tvímælalaust átti „tilþrif’ kvölds-
ins, fékk 25 leiki.
Aðrir leikmenn fengu vægari
dóma. Ben Wallace, leikmaður
Detroit, fékk 6 leikja bann fyrir að
hrinda Ron Artest eftir að Artest
braut á honum af tilefnislausu.
Anthony Johnson, bráðmyndarlegur
„Mörgum finnstþeir
geta gert hvað sem
er, hvenærsem, hvar
sem er, hvernig sem
er og hlusta ekki á
neinn sem reynir að
leiðrétta þá,"
í jakkafötum á bekk Pacers, fékk 5
leikja bann fyrir að láta höggin dynja
á áhorfanda sem átti í höggi við Ron
Artest. Þá fengu Elden Campbell,
Derrick Coleman og Chauncey
Billups hjá Detroit, eins leiks bann
fyrir að yfirgefa bekkinn og sömuleið-
is Reggie Miller, leikmaður Indiana.
Áhorfendur til skammar
Dómur Davids Stem ætti ekki að
koma á óvart ef tekið er mið af þeirri
ábyrgð sem að NBA-leikmenn bera.
Stjórn deildarinnar gerir miklar
kröfur hvað varðar fyrirmyndir og
fordæmi og er ljóst að NBA-deildin
hefur beðið mikla álitshnekki með
ffamkomu þremenninganna á
föstudagskvöldið.
Ron Artest hafði lengi verið til
vandræða og var nýlega skikkaður í
tveggja leikja bann hjá Pacers eftir
að hann bað um mánaðarfrí til að
geta gefið út rappplötu. Upp á síð-
kastið hefur Artest verið áltinn tíma-
sprengja og því ætti hegðun hans
ekki að koma neinum á óvart.
Ekki er ólíklegt að einhverjar lög-
sóknir á hendur þeirra leikmanna
sem stóðu fyrir ofbeldinu, munu líta
dagsins ljós. Þó að leikmenn beri
mikla ábyrgð og eigi að vera til fyrir-
myndar, vora áhorfendur í Detroit
til háborinnar skammar. öllu laus-
legu var hent að leikmönnum
Pacers, poppkorni, flöskum, stólum
og brúsum. Hingað til hefur ekki
verið þekkt að NBA-lið leiki fyrir
luktum dyrum, líkt eins og í fótbolt-
anum, en David Stern skoðar mögu-
leika á að refsa áhangendum Detroit
með þeim hætti.
Þá þykir gæsla vallarins hafa
bragðist í meira lagi. Viðstaddir
verðir áttu ekki möguleika gegn æst-
um áhorfendum og leikmönnum
sem slógust að vild og gátu áhorf-
endur valsað inn á völlinn, alveg ó-
áreittir. Forráðamenn Detroit hafa
nú þegar hert gæsluna í höllinni í
þeirri von um að þetta endurtaki sig
ekki.
Þeim er sama um afieiðing-
arnar
Larry Brown, þjálfari Detroit-
liðsins, fullyrti að atvikið væri sorg-
legt fyrir NBA og körfuboltann í
heild. „Sem þjálfarar og leikmenn
heyrum við og sjáum marga ógeð-
fellda hluti af hálfu áhorfenda. En á
vellinum ríkja aðrar reglur og ef þú
ædar að vaða upp í áhorfenda-
stúku, eins og gerðist á föstudag-
inn, þá þarf ástæðan að vera stærri
en þetta," sagði Brown.
Brown sagði atvikið sýna hina
réttu hlið margra leikmanna í
körfubolta nútímans. „Mörgum
finnst þeir geta gert hvað sem er,
hvenær sem, hvar sem er, hvernig
sem er og hlusta ekki á neinn sem
reynir að leiðrétta þá,“ sagði
Brown. „Kannski ætti ég bara að
sætta mig við það að ég lifi í heimi
þar sem er afit of margt þannig
fólk, og ég er ekki bara að tala um
íþróttamenn, sem finnst það eigi
rétt á að segja og gera hvað sem
því dettur til hugar."
sXe@dv.is
Derrick Coleman
1 leikur
Chauncy Billups
1 leikur
Elden Campbell
1 leikur
Idinni í bann