Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 22
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR Á ÍSLANDI.
1 þriðja dálki hvfrs mánaðar, sem hefir yfirskriftina „T. í h.“ (tungl í hásuðrí),
og í töfiunni á blaðsíðu (15) er sýnt, hvað klukkan er eftir íslenzkum miðtíma, þegar
tungtið og sólin eru í hásuðri í Reykjavík. En komast má að því, hvað klukkan er
eftir íslenzkum miðtíma, þegar tunglið eða sólin er í hásuðri annars staðar á íslandi,
með því að gera svo nefnda „lengdarleiðréttingu“ á Reykjavíkurtölunni. Verður bán
+ 4 mínútur fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavík, og
— 4 mínútur fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík. T. d.
er Raufarhöfn ura sex lengdarstigum austar en Reykjavík; lengdarleiðréttingin þar
er þá — 24 mín., og 2. júlí er sól í hásuðri frá Raufarhöfn þeas vegna kl. 12 08 (12 32 —
0 24 = 12 08). Flatey á Breiðafirði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavík, og
lengdarleiðréttingin er þar + 4 mín. Þann 8. febrúar er því tungl í hásuðri frá Flatey
kl. 13 18 (13 14 + 0 04 = 13 18).
Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvern miðvikudag. Sólar-
uppkoma (su.) telst, þá er sólmiðjan er á uppleið 50 bogamínútum undir láréttum
sjóndeildarhring, en vegna ljósbrotsins er þá efri rönd sólar að verða sýnileg, eða því
sem næst. Sólarlag (sl.) telst á sama hátt, þegar sólin á niðurleið er 50 bogamínútum
fyrir neðan láréttan sjóndeildarhring, og hverfur sólin þá sjónum. Til þess að finna
sólarganginn annars staðar á landinu, þarf að gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkur-
tölunni á sama hátt sem við sól eða tungl í básuðri, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi aðeins eftir breiddarstigi staðarins, heldur er hún
einnig komin undir sólarganginum í Reykjavík. í eftirfarandi töflu er sýnd breiddar-
leiðrétting fyrir hvert hálft stig, norðar og sunnar en Reykjavík, þcgar sólargangurinn
( Reykjavík stendur á heilli stundu. Leiðréttingin er pósittf ( + ), þegar sólargangur
lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólargangurinn styttist. Breiddarleið-
rétting töfiunnar er því lögð við tíma BÓlarlagsins í Reykjavík, en dregin frá sólarupp-
komutímanum. Sé breiddarleiðréttingin negatíf (—), verður að taka forteiknið til
greina.
Dœmi: Sólargangur 22. apríl á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar og 21/, stigi
norðar en Reykjavík.
Þenna dag er sólargangur í Reykjavík 15 st. 47 mín. Breiddarleiðrétting töflunnar
fyrir 2*/* stig norður og sóiargang 16 st. er + 16 mín., en fyrir 15 st. sólargang + 12
mín.; hún telst því hér + 15 min.
Lengdarleiðréttingin er — 24 mín.
í Reykjavík................ su. 4 34 sl. 20 21
Breiddarleiðrétting ..... — 15 +15
Lengdarleiðrétting....... — 24 — 24
Á Raufarhöfn............... su. 3 55 sl. 20 12
Annad dœmi: Sólargangur 14. október í Flatey á Breiðaíirði, sem er 1 stigi
vestar og ll/t stigi norðar en Reykjavík. Sólargangur í Reykjavík er 10 st. 01 min.
í Reykjavík................ su. 7 13 sl. 17 14
Breiddarleiðrétting ..... +3 — 3
Lengdarleiðrétting....... +4 +4
Flatey .................. su. 7 20 sl. 17 15
(20)