Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 26
ÚR LÖGUM UM TÍMATAL OG ALMANÖK.
Samkvœmt lögum um ákvörðun tímans 16. nóv. 1907 skal hvarvetna á íslandi
telja tímann eftir miðtíma á 15. lengdarstigi fyrir vestan Greenwich. í almanaki
þessu eru því allar stundir taldar eftir þessum svonefnda íslenzka midlíma, 27 mínútum
43,2 sekúndum á undan miðtíma Reykjavíkur.
Með lðgum nr. 8, 16. febr. 1917, er ríkisstjóminni heimilað að flýta klukkunni,
ef það þykir henta (,,sumartími‘(), og verður, ef það er gert, að sjálfsögðu að taka
tillit til þess við notkun almanaksins.
í lðgum nr. 25, 27. júní 1921, segir m. a. svo:
1. gr.
Háskóli íslands skal hafa einkarétt til þess að gefa út og selja eða afhenda með
öðrum hœtti almanök og dagatöl á íslandi.
5. gr.
í»að er brot á einkarétti háskólans samkvæmt 1. gr., ef maður:
1. Flytur inn í landið til sölu eða afhendingar með öðrum hætti önnur almanök
eða dagatðl en þau, er í 1. gr. segir.
2. Selur hér í landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eða dagatöl en þau
sem einkaréttur háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða með öðmm hætti almanök eða dagatðl eða
kafla úr þeim.
4. Prentar upp eða fjólritar almanök háskólans eða dagatöl eða kafla úr þeim til
þess að selja eða láta af hendi með öðmm hætti.
Hið íslenzka þjóðvinafélag hefur með samningi keypt einkaleyfl þetta í ár (1959),
og nær það til allra almanaka í bókarformi.
Árið 1960 ber páskana upp á 17. apríl.