Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1971, Page 41

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1971, Page 41
Venus (?) er morgunstjama í byrjun árs, en fremur lágt á lofti. Hinn 20. janúar er hún lengst í vestur frá sólu (47°). Það sem eftir er ársins ber lítið á henni frá íslandi séð. Hún gengur bak við sól yfir á kvöldhimin 27. ágúst. Mars (d) er morgunstjama fyrri hluta árs, en lágt á lofti og lítið áberandi. Hinn 10. ágúst kemst hann í gagnstöðu við sól og er þá í hásuðri um lágnættið. Um sama leyti er hann næst jörðu, í aðeins 56 milljón km fjarlægð. Hefur hann ekki verið svo nærri síðan 1956, og verður það ekki aftur fyrr en 1988. Undir slíkum kringumstæðum er Mars afar bjartur, svo að engin stjarna á himninum er bjartari nema Venus, en athugunarskilyrði hérlendis eru þó ekki góð, vegna þess hve Mars er lágt á lofti (sjá bls. 19). Síðustu mánuði ársins 1971 er Mars kvöldstjama og fer hækkandi á himni, en verður jafnframt daufari. Við árslok er hann þó enn ámóta bjartur og björtustu fastastjömur. Mars er í vogarmerki í byrjun ársins, reikar þaðan til austurs itm í sporðdrekamerki (í jan.), naðurvalda (í feb.) og bogmannsmerki (í marz). I september er hann í steingeitarmerki og reikar þaðan til austurs inn í vatnsberamerki (í okt.) og fiskamerki (í des.). Júpíter (2|) er lágt á lofti allt árið. í ársbyrjun er hann morgun- stjarna, kemst í gagnstöðu við sól 23. maí og er þá í hásuðri um lágnættið. Það sem eftir er ársins sést hann ekki að heitið geti. Hinn 10. des. gengur hann bak við sól yfir á morgunhimin. Júpíter er í vogarmerki í byrjun ársins, reikar þaðan inn í sporðdrekamerki (í jan.) og heldur sig þar fram til vors. Fjögur stærstu tungl Júpíters eru sýnileg í litlum sjónauka, en sjaldan öll í einu. Satúmus (h) er kvöldstjarna í byrjun árs og hátt á lofti. Þegar líður að vori nálgast hann sól á kvöldhimninum og gengur bak við hana yfir á morgunhimin 17. maí. Verður hann áberandi þar að hausti. Hinn 25. nóvember er Satúmus í gagnstöðu við sól og þá í hásuðri um lágnættið. í ársbyrjun er Satúmus í hrútsmerki, en í apríl er hann kominn inn í nautsmerki og heldur sig þar til ársloka. I góðum sjónauka sjást hinir frægu hringir Satúrnusar, sem auðkenna hann frá öðrum reikistjömum. Halli hringflatarins í átt frá jörðu fer nú vaxandi (er 21° í ársbyrjun en 24° í árslok). Þegar hallinn er enginn og hringimir sjást á rönd, eru þeir nær ósýnilegir. Gerðist það síðast árið 1966, og mun næst gerast árið 1980. Cranus ($) er í meyjarmerki allt árið. Hann er gagnstætt sól 1. apríl, en verður tæplega fundinn án sjónauka, því að birtustigið er nálægt +6. Neptúnus ('j/) er á mörkum vogarmerkis og sporðdrekamerkis allt árið. Birtustig hans er nálægt +8, svo að hann sést aðeins í sjónauka. Plútó (E) er allt árið í stjömumerkinu Bereníkuhaddi, rétt við norðurmörk meyjarmerkis. Birtustig Plútós er nálægt +15, svo að hann sést aðeins í öflugum stjömusjónaukum. (39)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.