Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1971, Page 56
lands. Aðalfundur Skógræktarfélags íslands var
haldinn í Stykkishólmi í sept. Berjaspretta var víða
góð, og ágæt á Norður- og Norðausturlandi. Einkum
spruttu krækiber vel, en bláber og aðalbláber einnig
sums staðar. Ræktunarframkvæmdir voru með
minna móti, og enn dró úr innflutningi landbún-
aðarvéla. Flutt var inn 161 hjóladráttarvél (árið
áður 328), 100 áburðardreifarar (249), 133 snún-
ingsvélar (376), 261 sláttuvél (212) og 51 ámokst-
urstæki (187). Gerðar voru tilraunir með hrað-
sláttuvélar og nýjar gerðir af fóðurflutningabílum.
í sláturhúsinu á Selfossi voru gerðar tilraunir með
nýjar fláningaraðferðir. Teknar voru í notkun nýj-
ar gerðir umbúða á ost. Minna var um tvílembinga
en á undanförnum árum. Hvanneyrarveiki í sauðfé
varð vart, einkum í Vestur-Skaftafellssýslu. Slátr-
að var 827 606 fjár (árið áður 837 577). Af því voru
757 613 dilkar (778 005) og 69 993 fullorðið fé
(59 572). Kjötmagn var 11983 tonn (12 377). Með-
alþungi dilka var 13,98 kg. (14,13). — Mjólkurfram-
leiðslan var 6,8% minni en árið áður. Stofnuð var
djúpfrystistöð fyrir nautgripasæðingar á Hvann-
eyri. 1 júlí voru haldin hestamannamót í Skógar-
hólum á Þingvöllum og á Einarsstöðum í Reykja-
dal. Gerð var heimildarkvikmynd um íslenzka hest-
inn. Út kom fyrsta bindi ritverksins „Ættbók og
saga íslenzka hestsins á 20. öld“ eftir Gunnar
Bjarnason ráðunaut og kennara. Gerður var skeið-
völlur á Vindheimamelum í Lýtingsstaðahreppi. Ný
löggjöf var sett um loðdýrarækt, og var unnið að
undirbúningi að stofnun loðdýrabúa. Alifuglaslátur-
hús var reist í Miðfelli í Hrunamannahreppi. Stofn-
að var Æðarræktarfélag Islands. Búnaðarþing var
haldið í Reykjavík í febrúar og marz. Aðalfundur
(54)