Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1971, Síða 65
ar trúmálafélagsskaparins World Fellowship of
Religions heimsótti ísland í júlí, en til mála hefur
komið, að félagsskapurinn flytji aðalstöðvar sínar
til íslands. Hinn heimsfrægi brezk-ástralski hjarta-
skurðlæknir W. P. Cleland heimsótti ísland í júlí.
Benedikta Danaprinsessa og maður hennar, Rich-
ard prins, komu við á íslandi á leið til Grænlands
í júlí. Tveir hópar Breta ferðuðust um söguslóðir
á íslandi í júlí og ágúst. Voru þetta nefndar sögu-
ferðir. Islenzkunámskeið fyrir erlenda stúdenta,
einkum frá Norðurlöndum, var haldið í Reykjavík
i júlí og ágúst, og voru þátttakendur um 50. Ráð-
stefna norrænna erfða- og frumufræðinga var hald-
in í Reykjavík í ágúst, og sóttu hana um 250 full-
trúar. Ársþing bifreiðasala á Norðurlöndum var
haldið í Reykjavík í ágúst, og um sama leyti héldu
eigendur bifreiðaverkstæða á Norðurlöndum þing
hér. Hópur aðventista frá Perú heimsótti ísland í
agúst. N. Acton, aðalframkvæmdastjóri alþjóða-
samtakanna um endurhæfingu öryrkja, kom hing-
að til lands í ágúst. Brezki rithöfundurinn D. Bag-
iey ferðaðist um ísland í ágúst til að viða að sér
efni í skáldsögu, sem á að gerast á íslandi. Banda-
fiski geimfarinn W. A. Anders, sem farið hafði um-
hverfis tunglið, hélt fyrirlestra hér á landi í ágúst.
Fundur samstarfsnefndar Norðurlandaráðs um
hrunavarnir var haldinn í Reykjavík í ágúst. Tólf
kunnir laxveiðimenn frá Norðurlöndum dvöldust í
agúst við veiðar í Laxá í S.-Þingeyjarsýslu, en sú
dvöl var verðlaun frá ABU-verksmiðjunum í Sví-
Þjóð. Sendiherra S-Vietnams í London, L. N. Chan,
heimsótti ísland í ágúst. Norræn ráðstefna um
iþróttamannvirki var haldin í Reykjavík í ágúst.
Norski vísindamaðurinn G. Randers, umsjónarmað-