Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1971, Page 88
fyrirhugaðar stórvirkjanir á Austurlandi. — Smyrla-
bjargaárvirkjun í A.-Skaftafellssýslu var formlega
tekin í notkun 3. október. Gufuaflstöðin í Bjarnar-
flagi við Mývatn, hin fyrsta sinnar tegundar á ís-
landi, var tekin í notkun í október. Dieselstöðin á
Akureyri var stækkuð. Dieselvarastöð var tekin til
afnota á Húsavík. Rafmagn var leitt á allmarga
sveitabæi, t. d. á Síðu og í Hróarstungu. Umbætur
voru gerðar á Árbæjarstíflu í Elliðaánum. í nóv-
ember var haldin í Reykjavík sameiginleg ráðstefna
Sambands íslenzkra rafveitna og Sambands íslenzkra
sveitarfélaga um sveitarfélög og raforkumálin. [1968
var byggð ný dieselrafstöð á Sveinseyri í Tálkna-
firði, en stækkaðar voru dieselrafstöðvarnar í Búð-
ardal, Flateyri, Súðavík, Grímsey og Höfn í Horna-
firði].
Rannsóknir.
Haldið var áfram jarðfræðilegum og líffræðileg-
um rannsóknum í Surtsey, og unnu að þeim bæði
innlendir og erlendir fræðimenn. Unnið var að til-
raunum með saltvinnslu á Reykjanesi og þaravinnslu
á Reykhólum. Unnið var að rannsóknum á perlu-
steini í Loðmundarfirði, og var þar borað eftir sýn-
ishornum. Margir erlendir vísindaleiðangrar komu
hingað til lands. Júgóslafneskur sérfræðingur, S.
Jankovic, starfaði hér á landi á vegum Sameinuðu
þjóðanna í leit að verðmætum jarðefnum. Unnið
var að skipulegri málmleit á Suðausturlandi. Hafís-
ráðstefna var haldin í Reykjavík um mánaðamótin
janúar—febrúar, og voru þar flutt um þrjátíu fræði-
leg erindi.
Rannsóknastofnun landbúnaðarins vann m. a. að
(86)
j