Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1971, Page 91
var unnið að margvíslegum veirurannsóknum í sam-
bandi við búfjársjúkdóma. Við Raunvísindastofnun
Háskólans var unnið að rannsóknum í stærðfræði,
eðlisfræði, efnafræði og jarðvísindum. Jarðfræði-
starfsemi sú, sem áður hafði verið við iðnaðardeild
Atvinnudeildar háskólans og síðar við Rannsókna-
stofnun iðnaðarins, var flutt yfir til Rannsókna-
stofnunarinnar á árinu. Bættust þá tveir jarðfræð-
ingar við starfslið stofnunarinnar. Stofnunin fékk
til umráða húsnæði í byggingu Atvinnudeildar fyrir
þessa starfsemi. Þorbirni Karlssyni verkfræðingi var
veittur Bauerstyrkur til að stunda rannsóknir í haf-
eðlisfræði, og vann hann að undirbúningi að öldu-
spá fyrir hafsvæðið kringum ísland.
Gervitunglastöðin í Gufunesi tók til starfa, og
var byrjað að taka á móti merkjum frá þýzka gervi-
tunglinu Azur, sem skotið var upp í nóvember.
Landssími íslands sér um rekstur stöðvarinnar í
samvinnu við Raunvísindastofnunina.
Við Reiknistofnun Háskólans var unnið að ýms-
um reikniverkefnum með tölvu stofnunarinnar, bæði
fyrir aðila innan Háskólans og utan. Meðal annars
var gerð athugun á hagkvæmni í hráefnisöflun fyrir
frystihús á Norðurlandi í samvinnu við Fiskifélag
Islands og gengið frá bráðabirgðaskýrslu um þá
athugun.
Samgöngur og ferðalög.
44 099 útlendingar komu til íslands á árinu (árið
áður 40 447). Af þeim voru 17 934 Bandaríkjamenn
(árið áður 15 278), 4 637 Bretar (3 986), 4 621 Þjóð-
Verji (4 231), 4112 Danir (4 519), 2 697 Svíar
(2 855) 1674 Frakkar (1310), 1641 Norðmaður
(89)