Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1971, Síða 99
Belgíu. 32 skip voru tekin út af skipaskrá, en 16
skip bættust í íslenzka flotann. Nýtt íslenzkt haf-
rannsóknaskip, Bjarni Sæmundsson, var í smíðum
í Bremerhaven. 39 íslenzk skip voru endurmæld sam-
kvæmt breyttum alþjóðareglum um skipamæling-
ar, og minnkaði lestatalan samkvæmt því um 1125
brúttólestir. Rekstur allra skipa í eigu ríkisins var
settur undir eina yfirstjórn, og fjármálastjóri sett-
ur til að annast hann. Hið nýskipaða fiskimálaráð,
sem er skipað 19 mönnum, hélt fyrsta fund sinn
6. febrúar. 95 íslendingar, sem vinna að útvegs-
málum, fóru um haustið til Bandaríkjanna í boði
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.
Útflutningur sjávarafurða var sem hér segir í
millj. kr. (í svigum eru tölur frá 1968):
Fryst fiskflök 2923,9 (1390,5)
Óverkaður saltfiskur 733,1 ( 630,7)
ísfiskur 513,3 ( 226,8)
Skreið 412,6 ( 172,2)
Fiskmjöl 396,5 ( 162,3)
Síldarmjöl 375,2 ( 249,8)
Rækjur og humar 345,1 ( 178,0)
Síldarlýsi 239,5 ( 145,6)
Venjuleg saltsíld 221,5 ( 222,3)
Isvarin síld 215,1 ( 48,0)
Þurrkaður saltfiskur 201,4 ( 71,8)
Sérverkuð saltsíld 198,6 ( 407,7)
Heilfrystur fiskur 197,1 ( 119,2)
Niðursoðinn fiskur 123,0 ( 64,7)
Söltuð matarhrogn 115,0 ( 48,5)
Saltfiskflök 64,8 ( 25,7)
Fryst hrogn 59,0 ( 30,5)
Ókaldhreinsað þorskalýsi .. 59,0 ( 30,7)
Söltuð grásleppuhrogn .... 55,2 ( 24,8)
(97)
7