Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1971, Síða 128
Mannað geimflug.
Eftir hina sögulegu og vel heppnuðu för Apolló 8
umhverfis tunglið í árslok 1968, áttu Sovétmenn
fyrsta leikinn í bessari grein árið 1969. Hinn 14.
janúar skutu þeir á braut geimskipinu Soyuz 4 frá
Tyuratam-Baikonur skotstöðinni í Kazakhstan. í
skipinu var einn geimfari, Vladimir Shatalov. Braut-
in sem skipið fór eftir hafði jarðnánd við 173 km
hæð og jarðfirð við 225 km hæð. Degi síðar var
öðru geimskipi, Soyuz 5, skotið á mjög svipaða
braut með þrjá geimfara um borð, þá Boris Volynov,
Alexei Yeliseyev og Yevgeny Khrunov. Geimskipin
tvö breyttu nokkrum sinnum um brautir, í fyrstu
sitt í hvoru lagi, en síðar voru þau látin mætast og
að lokum tengd saman. Var það fyrsta tenging
tveggja mannaðra geimskipa á braut um jörðu. Á
meðan skipin tvö svifu samtengd á braut sinni fóru
þeir Khrunov og Yeliseyev út úr Soyuz 5 og dvöld-
ust utan skips í nær klukkustund. Gerðu þeir ýmsar
tilraunir, svipaðar þeim sem bandarískir geim-
farar gerðu í Gemini ferðunum nokkrum árum áð-
ur. Að þessu loknu fóru þeir félagar inn í Soyuz 4
og urðu þar með fyrstir manna til að skipta um
farkost í himingeimnum.
Stjórnfar Soyuzar 4, með Shatalov, Khrunov og
Yeliseyev, lenti síðan að morgni 17. janúar á stepp-
um Kazakhstan, skammt frá borginni Karganda, en
stjórnfar Soyuzar 5 lenti daginn eftir um 800 km
vestar, með Volynov einan innanborðs.
Fyrsta mannaða geimflug Bandaríkjamanna á ár-
inu hafði þann megintilgang að fullreyna tungl-
ferjuna, sem nú er fræg orðin, en þegar hér var
komið sögu hafði henni aðeins verið flogið einu sinni
í geimnum og þá ómannaðri. Hinn 3. marz lyfti
(126)