Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1971, Page 129
Satúrnus 5 risaflaug geimskipinu Apolló 9 á hring-
laga braut um jörðu í 190 km hæð. Skoti þessu
hafði áður verið frestað um 3 daga vegna þess að
áhöfnin, þeir James McDivitt, David Scott og Russell
Schweickart, hafði smitazt af kvefi. Fyrstu dagana
eftir skotið voru þolrifin í Apolló-samstæðunni
reynd, goshreyflunum beitt til að breyta braut geim-
skipsins á margvíslegan hátt, og stjórn- og leið-
sögukerfi þrautreynd. Loks fór Schweickart út úr
geimskipinu og dvaldist þar hálfa klukkustund til
eð prófa Apolló-tunglbúninginn.
Hinn 7. marz gerðu þeir McDivitt og Schweickart
mikilvægustu tilraunina í ferð Apolló 9. Skildu þeir
tunglferjuna frá móðurskipinu og létu sem þeir væru
að gera aðflug og flugtak frá tunglinu. Að því loknu
leituðu þeir uppi móðurskipið á ný og tengdu tungl-
ferjuna við það. Við stefnumótið og tenginguna
studdust þeir félagar við ratsjár og tölvur tungl-
ferjunnar, og gekk allt að óskum. Varð það mörgum
léttir hve vel tókst til, því að tunglferjan er fyrsta
Seimskipið sem ekki er búið hitaverjum til innflugs
1 gufuholf jarðar, og var því lífsnauðsyn fyrir geim-
farana að ná til móðurskipsins á ný. Eftir tenging-
Una fóru þeir félagar aftur yfir í móðurskipið, en
tnnglferjan var skilin frá og sett á aðra braut.
Naestu dögum var varið til að æfa frekari braut-
arbreytingar. Jafnframt voru teknar innrauðar ljós-
^uyndir af jörðu til að sannreyna notagildi slíkra
^synda til könnunar á gróðri, jarðlögum, landslagi,
s.]avarstraumum o. fl. Förinni lauk síðan 13. marz
^eð lendingu Apolló 9 á Atlantshafi um 1100 km
suðaustur af Kennedyhöfða. Tókst ferðin í alla staði
!el. °g var nú tunglferjan talin fullreynd til tungl-
ferða.
(127)