Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 69
legur sem kvöldstjarna í sólarátt um miðjan mánuðinn. Frá 7. maí til
13. maí er hann í 5° hæð í norðvestri við myrkur í Reykjavík. Satúrnus
er enn sem fyrr morgunstjarna í bogmannsmerki, afar lágt á lofti og
sést því illa. Hann nær mest 3° hæð yfir sjónbaug í suð-suðaustri við
birtingu í Reykjavík.
Júní—júlí
Þótt erfitt sé að sjá reikistjörnur um hásumarið, er það ekki útilok-
að, sérstaklega ef sjónauki er notaður. Þegar kemur fram í júlímánuð
fer Venus að sjást sem morgunstjarna lágt í aust-norðaustri fyrir
sólarupprás. Undir júlOok fara Júpíter og Mars að verða sýnilegir um
lágnættið. Júpíter, sem er bjartari, verður þá í aust-norðaustri, en
Mars, sem er rauðleitari, verður í aust-suðaustri.
Ágúst
Satúrnus á að heita kvöldstjarna, en hann er í bogmannsmerki og
svo lágt á lofti að erfitt verður að sjá hann. Á morgunhimninum verða
þrjár bjartar reikistjörnur í þessari röð frá sól: Venus, Júpíter og Mars.
Venus er björtust en Mars daufastur. Birta Mars fer þó vaxandi, og
undir mánaðarlok er hann orðinn nærri því eins bjartur og Júpíter.
Júpíter er í nautsmerki en Mars í hvalsmerki.
September
Satúrnus er kvöldstjarna en er enn í bogmannsmerki og svo lágt á
lofti að hans gætir varla (hann er tæplega 3° yfir sjóndeildarhring í suð-
suðvestri við myrkur í Reykjavík). Mars og Júpíter koma upp um það
leyti sem dimmir og eru á lofti allar myrkurstundir sólarhringsins.
Hinn 28. september er Mars í gagnstöðu við sól. Hann verður þá í
hásuðri um lágnættið, ívið bjartari en Júpíter og rauðleitari. Hann er
þá á mörkum fiskamerkis og hvalsmerkis. Júpíter er austar, í nauts-
merki. Venus er morgunstjarna og skín skærast allra stjarna á austur-
himninum fyrir birtingu.
Október
Júpíter er í nautsmerki og er á lofti allar stundir þegar dimmt er í
Reykjavík. Mars er vestar, í fiskamerki, og sest fyrir birtingu. í byrjun
mánaðar eru þessar tvær reikistjörnur álíka bjartar, en í mánaðarlok
hefur Mars dofnað nokkuð. Hann þekkist sem fyrr á því að hann ber
rauðleitan blæ. Satúrnus er kvöldstjarna í bogmannsmerki og því svo
sunnarlega á himni að hans gætir vart. Hann nær mest 2° hæð yfir
sjónbaug í suð-suðvestri við myrkur í Reykjavík. Venus er morgun-
stjarna, björt og áberandi á austurhimni fyrir birtingu. Hinn 4. októ-
ber er hún mjög nærri stjörnunni Regúlusi (sjá bls. 43). Seint í
mánuðinum fer Merkúríus að sjást sem morgunstjarna. Frá 22. októ-
ber til mánaðamóta nær hann 8-9° hæð yfir sjónbaug í aust-suðaustri
við birtingu í Reykjavík. Birta hans fer vaxandi á þessu tímabili.
(67)