Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 108
(sjálfstæðisbændur) 520 atkvæði og tvo menn. - Aðalfundur
Stéttarsambands bænda var haldinn á Hvanneyri í júní. - í júlí var
stofnað Landssamband kanínubænda, en kanínurækt færist í vöxt.
Síðar á árinu var komið á laggimar á Álafossi verksmiðju til
úrvinnslu á kanínufiðu.
í lok febrúar var haldið á Hólum námskeið í refasæðingum, og
var það fyrsta námskeið af því tagi, sem haldið hefur verið hér á
landi. Á árinu voru stofnaðar þrjár högnastöðvar, og er þaðan dreift
refasæði. Stöðvar þessar eru á Hólum, Þórustöðum í Ölfusi og að
Glæsibæ í Eyjafirði. - í byrjun júní voru seld þrjú tonn af tómötum
til Svíþjóðar og var þetta fyrsti vísir að tómataútflutningi
Islendinga. - Skozk rannsóknastöð keypti í október nokkrar geitur
og lét flytja þær til Skotlands. Skulu þær notaðar til ræktunar á
geitastofni, en óvenjumikið er af þeli með kasmírhári á íslenzkum
geitum. - Kýrin Skvetta á Syðri-Bægisá í Öxnadal mjólkaði mest
allra kúa á landinu á árinu, 8.914 kg.
Búfjáreign Islendinga var í árslok (í svigum tölur frá 1985):
Nautgripir 71.383 (72.889)
Af þeim mjólkurkýr 33.872 (35.115)
Sauðfé 675.515 (709.257)
Hross 56.352 (54.132)
Svín 2.744 (2.575)
Hænsni 309.831 (322.600)
Minkar (fullorðin dýr) 20.100 (14.200)
Refir (fullorðin dýr) 21.700 (20.900)
Kanínur 5.900 (4.000)
Gæsir 3.200
Geitur 260
Útflutningur á landbúnaðarafurðum var sem hér segir í
milljónum króna (í svigum tölur frá 1985):
Fryst kindakjöt 226,6 (154,5)
Ostur 91,5 (76,1)
Refa- og minkaskinn 77,6 (71,5)
Lax, ísaður og frystur 69,1 (17,6)
Ull 54,1 (59,7)
Saltaðar naut- og hrosshúðir 38,6 (22,5)
Ymsar landbúnaðarvörur 36,8 (44,6)
(106)