Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 175
niðursuða á rækju 2.381 tonn (2.094), innanlandsneyzla o.fl.
10.238 tonn (8.099). Allar tölur eru miðaðar við fisk upp úr sjó.
Þorskafli var 365.730 tonn (319.819), ýsuafli 47.316 tonn
(47.111), ufsaafli 63.860 tonn (54.774), karfaafli 85.989 tonn
(91.035), lönguafli 4.711 tonn (4.316), keiluafli 2.550 tonn
(3.025), steinbítsafli 12.119 tonn (9.498), lúðuafli 1.618 tonn
(1.642), grálúðuafli 31.038 tonn (28.818), skarkolaafli 12.698 tonn
(13.094), síldarafli 65.757 tonn (48.829), loðnuafli 898.014 tonn
(997.323), humarafli 2.564 (2.391), rækjuafli 35.811 (24.933),
hörpudisksafli 16.429 (17.232). -Hvalveiðar í atvinnuskyni voru
bannaðar á árinu, en reknar voru nokkrar veiðar í vísindaskyni.
Veiddust á árinu 76 langreyðar og 40 sandreyðar. Hrefnuveiðar
féllu alveg niður.
Togarinn Vigri setti sölumet í Bretlandi 15. janúar, en þá seldist
upp úr skipinu 212,1 tonn fyrir 204.751 pund. - Aflahæsti bátur á
vertíðinni var Suðurey frá Vestmannaeyjum með 1.375 tonn upp úr
sjó. - Aflahæsti togarinn á árinu var Harðbakur frá Akureyri með
5.230,4 tonn, í 2. sæti var Guðbjörg frá ísafirði með 5.145,5 tonn
og Akureyrin í3. sæti með 5.007,1 tonn. Síðasttalda skipið varhins
vegar með verðmætasta aflann, en hann var allur frystur um borð.
Fiskiskipastóll íslendinga var í árslok 822 skip (árið áður 832),
og voru þau alls 112.391 lest brúttó (112.594). Bátaflotinn (þ.e.
fiskiskip önnur en togarar og hvalveiðiskip) var 714 skip (723),
59.869 lestir brúttó (59.797) eða 83,85 lestir að meðaltali. Minni
skuttogarar (250-499 lestir) voru 79 (83), stærri skuttogarar og
nótaveiðiskip voru 24 (21), síðutogari var einn og hvalveiðiskip
fjögur eins og árið áður. Meðalaldur allra fiskiskipa hækkaði enn
og var í árslok kominn í 19,5 ár (19,1).
Heildarskipastóll íslendinga var í árslok 1986 951 skip, samtals
179.005 lestir brúttó (í árslok 1985 963 skip, samtals 186.002 lestir
brúttó).
Útflutningur helztu sjávarafurða var sem hér segir í milljónum
króna (í svigum eru tölur frá 1985):
(173)