Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 164
innanlandsflugi (244.027) og 20.605 í leiguflugi (18.153).
Heildarfarþegafjöldi var því 788.831, og er það 5,5% aukning frá
árinu á undan. Sætanýting var 82,4% í Norður-Atlantshafsflugi
(79,2% árið áður), 67,6% í Evrópuflugi (66,1%), 64,1% í
innanlandsflugi (63,0%) og 84,0% í leiguflugi (88,3%). Á árinu
keypti félagið tvær Fokker Friendship F-27 200 vélar en seldi eina
F-27 500. - Miklar sviptingar voru í rekstri Amarflugs á árinu. Hinn
16. apríl seldu FlugleiðirHelga Jónssyni hótelhaldarahlutabréf sín,
og skömmu seinna var hlutafé í Amarflugi aukið. Félagið tók að sér
umfangsmikið pílagrímaflug fyrir Alsírmenn, en ekki varð sá
hagnaður af því, sem menn gerðu sér vonir um. Amarflug hóf á
árinu áætlunarflug til Hamborgar.
Siglingar. Hagnaður varð á rekstri Eimskipafélags Islands á
árinu, og nam hann 238,8 milljónum króna, sem er 6,5% af
heildartekjum félagsins. Árið áður hafði verið 46,7 millj. kr. tap.
Þessi góði árangur er talinn stafa af aukinni markaðshlutdeild, en
þetta var fyrsta heila árið, eftir að Hafskip hættu starfsemi sinni.
Eimskip keypti eignir Hafskipa 6. janúar fyrir 316 millj. kr.
Heildarflutningar félagsins á árinu vom 792.000 tonn (árið áður
704.000 tonn), og er það 13% aukning frá fyrra ári. Innflutningur
var 374.000 tonn (320.000), útflutningur 346.000 tonn (299.000),
flutningur milli erlendra hafna 50.000 tonn (66.000) og
strandflutningur 22.000 tonn (19.000). Töluverðar breytingar urðu
á skipastól félagsins á árinu. Selfoss (áður Selá) og írafoss (áður
Rangá) vom seld til Grikklands og Skaftá, sem Eimskip keypti af
Utvegsbankanum, var síðar seld til Bretlands. Stuðlafoss var seldur
til Bandaríkjanna. í júlí tók Eimskip á leigu þýzkt gámaskip, sem
var síðar gefið nafnið Mánafoss. Hinn 1. október vom gerðar
breytingar á stjómskipulagi Eimskips og stofnað nýtt svið innan
félagsins. Það nefnist rekstrarsvið og bætist við fjármálasvið og
flutningasvið, sem fyrir voru.-Flutningar hjá Skipaútgerð ríkisins
námu 118.095 tonnum á árinu og var það nokkur samdráttur frá
árinu á undan, en þá vom þeir 136.763 tonn. Var samdráttur þessi
í stórflutningum og þá einkum í flutningi á kísilgúr. Einni nýrn
áætlunarhöfn var bætt við á árinu, og var það Grímsey. - Bílferjan
Norröna flutti 6.489 farþega til landsins (5.600 árið áður) og 1.425
vélknúin ökutæki (1.324).
(162)