Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1988, Blaðsíða 116
til þess að kynna sér íslenzk menntamál. Þeir hétu: Joaquin Arango
frá Spáni, Thomas Robertsson frá Kanada, Anthony Faulkes frá
Bretlandi og Beresford Hayward, starfsmaður OECD.
I byrjun rnarz kom Jacques G. Maisonrouge, fyrrverandi forseti
alþjóðadeildar IBM, til íslands og flutti fyrirlestur hjá Verzlunar-
ráðinu. Síðar í sama mánuði kom bandaríski jassleikarinn Eddie
Harris ásamt tríói sínu og hélt tónleika. Gríska undrabamið
Dimitris Sgouros kom til Islands í marz og lék einleik á píanó með
Sinfóníuhljómsveitinni. I sama mánuði voru söngkonumar úr
Bobby Socks, Elisabet Andreasson og Hanne Krogh, á ferð. Brezki
rithöfundurinn Margaret Drabble og maður hennar Michael
Holroyd ævisagnahöfundur komu til íslands í marz og héldu fyrir-
lestra í HI. í lok mánaðarins var Carrington lávarður, framkvæmda-
stjóri NATÓ,á ferð og ræddi við hérlenda ráðamenn.
Danski rithöfundurinn Klaus Rifbjerg kom til Islands í byrjun
apríl og las upp úr verkum sínum í Norræna húsinu. I sama mánuði
var Eamonn Butler, framkvæmdastjóri Adam Smith Institute í
London, á ferð og flutti fyrirlestur um kosti einkareksturs. Rokk-
tónlistarmaðurinn Fats Domino hélt tónleika með hljómsveit sinni
í Reykjavík í apríl. í sama mánuði hélt franski orgelleikarinn
Jacques Taddéi tónleika. Doreen Bamett, varaforseti V. svæðis
málfreyja,kom til Islands í apríl. I lok mánaðarins kom José Ramon
Horta, áheymarfulltrúi Fretelinsamtakanna á Austur-Timor hjá SÞ,
og kynnti Islendingum málefni Timorbúa.
Heinz Westphal, varaforseti vestur-þýzka þingsins, kom í
heimsókn í byrjun maí. Litlu síðar kom sendinefnd frá grænlenzka
landsþinginu til íslands í boði Alþingis, og var Moses Olsen
formaður hennar. Peter Laslett, prófessor í sagnfræði við háskólann
í Cambridge, kom til íslands í maí og flutti fyrirlestur.
Listahátíð var haldin í Reykjavík í júní. Meðal gesta á henni vom
Doris Lessing rithöfundur, Ingmar Bergman kvikmyndaleikstjóri,
Thomas Lander barítónsöngvari, Dave Bmbeck og Herbie
Hancock jassleikarar, Claudio Arrau píanóleikari, Jacqueline
Picasso og hljómsveitin The Shadows. Ráðherrafundur EFTA var
haldinn í Reykjavík í byrjun júní. Margir erlendir ráðherrar sóttu
fundinn og var Per Kleppe, aðalritari EFTA, þeirra á meðal. Um
þær mundir var einnig á ferð einn af stjómarmönnum EBE, Willy
(114)