Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2004, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004
Fréttir BV
Hundrað ára
byggingar-
fulltrúi
Embætti bygging-
arfulitrúans í Reykja-.
vík er 100 ára á þessu
ári. Af því tilefni verð-
ur haldið opið mál-
þing á íostudaginn.
Frummælendur þar
eru Andri Snær Magnason
rithöfundur, Áslaug Thor-
lacius myndlistarmaður, Eg-
ill Ólafsson tónlistarmaður,
Hilmar Þór Bjömsson arki-
tekt og Ómar Ragnarsson.
Svara á spumingunni um
það hvort Reykjavík sé falleg
borg. Ný borgarstjóriinn,
Steinunn Valdís Oskarsdótti
mun ávara gestina. Bygging-
arfulltrúi síðustu ellefu ár er
Magnús Sædal Svavarsson.
Seinkun
olli skilnaði
Saudi-arabi skildi við
eiginkonu sina eftir að
hún krafðist þess að bíða
í 13 tíma á flugvellinum
eftir flugi sem stöðugt var
seinkað. Að sögn dag-
blaðsins al-Yaum biðu
hjónin eftir fluginu frá því
um níu-leytið um morg-
uninn til ellefu um kvöld-
ið á Bisha flugvellinum.
Ættingjr segja að konan
hafi neitað að fara heim
með manni sínum og
taka svo annað flug.
Hann skildi þá við hana á
staðnum en slíkt er auð-
velt í Saudi-Arabíu fyrir
karlmann. Hann þarf að-
eins að segja við konu
sína þrisvar sinnum: Við
erum skilin. Ef kona ætlar
að skilja hinsvegar kostar
það hana málaferli.
Þrjátíu og tvo þingmenn vantaði í hátíðarveislu Ólafs Ragnars Grímssonar forseta ís-
lands á fullveldisdaginn. Fimm sjálfstæðismenn af 24 mættu en allar þingkonur Fram-
sóknar létu sig vanta. Ómar Ragnarsson sagði brandara um forsetann og þingmenn.
hunsaði forsetaveislu
Morgunkorn
ílíkiET
Maður í Sydney hefur
grætt um 50.000 kr. á því að
setja morgunkorn í
liki ET tii sölu á eBay.
Chris Doyle fékk
hugmyndina að
þessu eftir að hann
frétti af sölu banda-
rískrar konu á tíu ára
gamalli grillsamloku
með andliti af Maríu
mey. Doyle kom auga á
morgunkomið í Nutri-Grain
pakkanum sínum er hann
borðaði morgunverð. Safn-
arar víða um heim buðu alls
fjörutíu sinnum í komið
sem er á stærð við fingur-
nögl. Doyle er að vonum
glaður eftir velheppnað
uppboð.
„Hér er allt rólegt eins og er
eftir stanslausa vinnu ímeira
en tvo mánuði i síldarfrysting-
unni. Menn eiga alveg inni
fyrir fríi og fyrir salti í grautinn
lika. Jólaundirbúningurinn er
kom-
inn á
fullt og
það er mikið búið að skreyta.
Verslunin Kauptún er flutt í
hús kaupfélagins sem fór á
hausinn og opnar þar sína
verslun í fyrramálið [ídag].
Sjálfur er ég að mála vinnu-
stofu fyrir eldri borgara og
Sjálfsbjörgu. Og svo má bæta
því við að hér er rjómabtíða."
Landsíminn
Meira en helmingur þingmanna lét sig vanta í forsetaveislu á
fullveldisdaginn. Einungis einn ráðherra Sjálfstæðisflokksins
mætti og allar þingkonur Framsóknarflokksins voru vant við
látnar.
Stjómarandstæðingar fengu að
njóta þess að vera í meirihluta al-
þingismanna í fullveldisveislu Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta íslands,
í fyrrakvöld. Töluvert var um forföll
hjá þingmönnum í forsetaveisluna.
Forseti hefur ávallt haldið veislu fyrir
þingmenn og starfsmenn þingsins,
áttatíu til hundrað manns með mök-
um, á fullveldisdaginn. Þetta hefur
verið einn af hápunktum ársins hjá
þingmönnum.
DV greindi frá því í gær að tölu-
vert hefði verið um forföll hjá sjálf-
stæðismönnum. Enginn þeirra sem
DV náði í sá sér fært að mæta. Guð-
laugur Þór Þórðarson var á fundi að
tala um stjórnmálaástandið og Einar
Oddur Kristjánsson var heima á
Sólbakka. Þegar upp var staðið vom
einungis fimm mættir úr stærsta
þingflokknum, þar af einn varaþing-
maður. Tuttugu og tveir em í þing-
flokki sjálfstæðismanna.
Einn sjálfstæðisráðherra
Aðeins einn ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins mættí, Sturla Böðvarsson.
Davíð Oddsson, Geir H. Haarde,
Björn Bjarnason, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir og Sigríður Anna
Þórðardóttir vom öll annars staðar.
Hinir þingmenn flokksins sem
mættu vom Kjartan Ólafsson af
Suðurlandi, Pétur Blöndal og Katrín
Fjeldsted varaþingmaður að
Þetta hefur ekkert
með persónu gest-
gjafans að gera.
ógleymdum forseta þingsins, Hall-
dóri Blöndal, sem flutti ræðu.
Menn hafa leitt að því líkur að um
samantekin ráð hafi verið að ræða
enda veislan sú fyrsta sem Ólafur
Ragnar Grímsson heldur þingmönn-
um eftir lætin í kringum fjölmiðla-
ffumvarpið og heimastjórnarafmæl-
ið. í þeim rimmum vönduðu margir
forsetanum ekki kveðjurnar. Þing-
menn sem DV ræddi við aftaka þetta
með öllu, eða eins og Sigurður Kári
Kristjánsson orðaði það: „Þetta hefur
ekkert með persónu gestgjafans að
gera.“
Vantaði framsóknarkonur
Úr Framsóknarflokknum mættu
aliir karlráðherrarnir með mökum
en Valgerður Sverrisdóttir komst
ekki. Siv Friðleifsdóttir, Jónína Bjart-
marz og Dagný Jónsdóttir komust
ekki heldur. Siv var á fundi hjá Evr-
ópuráðinu í Strassborg en Dagný var
fýrir austan í kjördæmi sínu. „Ég
skelltí mér í nokkrar vinnustaða-
heimsóknir, fór á fund og útréttaði
fýrir sjálfa mig. Það var yndislegt
veður fyrir austan og bara góður andi
í fólki," sagði hún.
Ýmsa stjórnarandstæðinga vant-
aði líka en Steingrímur J. Sigfússon
hafði orð á því hversu gaman væri
þegar fátt væri um hægrimenn.
Ómar Ragnarsson tróð upp og fór
með gamanmál. Hann sagði
brandara um forsetann, þingmenn
og ráðherra. HjálmarÁmason fékk á
baukinn hjá honum en svo sagði
Ómar brandara um Guðna Ágústs-
son og kýrnar á Brúnastöðum.
kgb@dv.is
Uppreisnarmenn í Kólumbíu
Ætluðu sér að
myrða George Bush
Rfkisstjóm Kólumbíu ásakar nú
uppreisnarmenn FARC-hreyfingar-
innar um að hafa ætlað sér að myrða
George Bush Bandaríkjaforseta er
hann kom í fjögurra klukkustunda
heimsókn til landsins í síðasta mán-
uði. FARC neitar þessum ásökunum
og segir að stjórnin sé einungis að
reyna að sverta málstað þeirra.
Það var vamarmálaráðherra Kól-
umbíu, Jorge Alberto Uribe, sem
fýrstur hafði orð á því að FARC hefði
skipulagt niorðtilræðið og bar fyrir
sér ónefhda heimildarmenn. FÁRC
svaraði á móti að ásökunin kæmi úr
höfði manns sem væri orðinn
geðveilcur af stolti.
FARC telur nú um 17.000 manns
og hefur hreyfingin barist gegn
Dýr hótelgisting í Mexíkó
Þrjár nætur kosta
hálfan milljarð króna
Ferðamannastaður í Mexíkó býð-
ur nú þeim ofurríku upp á þriggja
daga hótelpakka sem kostar um hálf-
an milljarð króna. Innifalið er meðal
annars einkaþota, Michelin-stjörnu-
kokkur og möguleikinn á að spila golf
með sjálfum Jack Nicklaus. Forráða-
menn Marquis Los Cabos-hótelsins í
Baja Califomia segja að þegar hafi
borist nokkrar fýrirspumir um pakk-
ann.
Ella Messerli, forstjóri Los Cabos,
segir að pakkinn sé peninganna virði
því „einstæð upplifun" sé í boði. Til-
boðið gildir fyrir par með tvö böm.
Einkaþota mun ná í viðkomandi hvar
sem er í heiminum og er svo til ráð-
stöfunar í þrjá daga. Ef um golfspilara
er að ræða mun hótelið útvega Jack
stjómvöldum í Kólumbíu undanfarin
40 ár. Hreyfingin lítur á Bandaríkin
sem annan höfuðóvin sinn vegna
þess hve dyggilega Bandaríkjamenn
styðja við bakið á stjórnvöldum.
Þegar Bill Clinton heimsótti Kól-
ombíu á sínum tíma farmst mikið
magn sprengiefha rétt
hjá þeim stað sem
Clinton bjó á. Yfir-
völd sökuðu FARC'
einnig þá um að
hafa ætlað að kálal
Clinton.
George Bush FARC
neitar ásökunum um
aö hafaætlaösérað
myröa forsetann.
Jack Hótelið útvegarJack Nickiaus til aö
taka einn eða fieiri hringi á nærliggjandi
golfvelli.
Nicklaus til að taka einn eða fleiri
hringi á nærliggjandi golfvelli og
deginum lýkur með einkatónleikum
gítarsnillingsins Santana.
Venjulegt verð á forsetasvítunni á
Los Cabos er tæplega 200.000 krónur
á nóttina en innifalið í því verði er 24
tíma þjónusta yfirþjóns.