Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2004, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004
Kvikmyndahús DV
m m Sýnd kl. 5.15 og 7.15
— i —_—■í—i—wBsmm Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15 ‘.iiiIIJiiiIuiIIi i! '.kuijgolttjja í llinllvelijiliiilil
. V ’ íslenska f, x sueítin Niuír iiin l‘t’iiiir - "O P E N W A T E R
m * 'hV' Sýnd kl. 6, 8 & 10 Film Noir Kvikmyndahátíð (allar myndir með enskilm texta)
Sýnd kl. 6, 8 & 10
SHALL WE DANCE? SÝND KL 5.50 St 8
LADDER 49 SÝND KL 10.10 Sýnd kl. 10
SmHfífí^ BÍÚ
srówr
^Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15 b.i. 14 Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15
H«n> Pultfr - . HWK~ Aloncl
SÝND kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 4
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10
SÝND I LÚXUS Id. 4, 6, 8 og 10
b.L 16
□ÍJDolby JDD/ . ' Thx SfMI 564 0000 - www.smarabio.is
»
Nú er hægt að fara í Garð-
heima og föndra lampa.
Lampinn er
mjög einfaldur
og efniskostn-
aður er Iftill.
Láttu ímyndun-
arafiið ráð og
búðu til lampa í
uppáhaldslitn-
um þínum f
hvaða formi
sem þú vilt.
Starfsfólk að-
stoðar þig við gerðina.
Skemmtileg og persónuleg
jólagjöf.
Nýi disk-
urinn með
Eivöru Páls
ertilvalinn
til að spila
heima fyrir
meðan stað-
ið er í
bakstri. Þeg-
ar jólalagasfbylgjan er orðin
of mikil er gott að hvíla eyrum
með Ijúfum
söng Eivarar
sem syngur á
ensku,færeysku, íslensku og
sænsku.Alþjóðleg stemning (
jólaundirbúninginn.
Jæja
Ef þú ert ekki búin/n að
fara á Ijósmyndasýningu Ara
Sigvalda í Gerðubergi ættir þú
að skella þér þangað sem
fyrst. Ara hefur tekist að fanga
augnablikin og er sýningin
einstaklega áhrifamikil. Flestar
eru myndirnar teknar (Aust-
ur-Evrópu en Ari hefur ferðast
mikið undanfarin ár.Aðgang-
ur er ókeypis.
Sarah Ferguson og dóttir hennar, Beatrice prinsessa, eru á
báðar að leita að hinum eina rétta. Sarah segir engar líkur á
að hún taki aftur saman við Andrés prins.
Malar gull hjá
Versace
Mæðgurnar Fergie með dætr-
um sínum Beatrice og Eugenie.
Þær eru tlðir gestir á frumsýningum
kvikmynda í Bandarikjunum.
Hertogaynjan af Jórvík, Sarah
Ferguson, er orðin leið á einlífinu
og vill umfram allt finna sér lífs-
förunaut. Hún segir dóttur sína,
Beatrice prinsessu, vera sama
sinnis. Fergie, eins og hún er oftast
kölluð, hefur átt nokkra ástmenn
síðustu ár en hún skildi við Andrés
prins fyrir tólf árum. Um samband
sitt við Beatrice segir hún: „Við töl-
um mikið saman um hugsanlega
kærasta. Hana dreymir um að ég
finni mér mann og mig dreymir
um að hún finni sér lífsförunaut."
Fergie viðurkennir líka að hafa
farið á „karlaveiðar" með dóttur
sinni. Það sé hin besta skemmtan.
„Við skemmtum okkur vel þegar
við förum saman út. Ég bendi
henni þá kannski á einhvern og
spyr hvernig henni lítist á - og hún
svarar oftast: mamma, nei! Við
erum afskaplega nánar, við eru
bestu vinkonur og kunnum að
hlæja saman," segir Fergie.
Hertogaynjan kveðst halda
góðu vinsambandi við Andrés
prins en þrátt fyrir langa og góða
vináttu séu engar líkur á að þau
taki saman á ný. „Okkur kemur
mjög vel saman en við höfum
þroskast hvort í sína áttina. Við
styðjum hvort annað og ef ég á við
vanda að etja þá er Andrés sá fyrsti
sem ég hringi í. Við erum alvöru
fjölskylda."
Fergie heldur að mestu til í
Bandaríkjunum um þessar mund-
ir. Hún kom fram í heimildamynd-
inni Big Fat Documentary fýrr á
þessu ári og ekki er útilokað að
hún taki að sér fleiri verkefni fyrir
sjónvarp. Fergie kveðst hafa greitt
niður skuldir sínar á Bretlandi og
hefur ekki hug á að starfa þar í
nánustu framtíð. „Það myndu
margir halda að ég væri að mis-
nota tengsl mín við konungsfjöl-
skylduna. Ég elska London en eins
og staðan er nú þá kem ég bara í
heimsókn."
Söngkonan Madonna er ekki
að deyja úr blankheitum frekar
en fyrri daginn. Madonna hefur
nefnilega gert samning við
tískurisann Versace - samning
sem mun færa
henni rúmar
600 milljónir
króna í aðra
hönd. Og ekki
nóg með það
heidur getur
Madonna vaiið sér fatnað að vild
næstu tvö árin og svo getur hún
boðið Guy og börnum í glæsi-
villu fyrirtækisins í Mílanó,
hvenær sem henni hentar. Það
var Mario Testino sem tók aug-
lýsingamyndimar af Madonnu
en hann tók lfka myndirnar af
henni þegar hún auglýsti fyrir-
tækið fyrir níu árum.
Nennir ekki
að taka
myndir
Móðir Angelinu
Jolie hefúr þurft að
grípa til þess ör-
þrifaráðs að Idippa
myndir af barna-
baminu, Maddox,
út úr slúðurbiöð-
um og glanstíma-
ritum. Marcheline
Bertrand er í öng-
um sínum yfir
hversu fáar ijós-
myndir hún á af
piltinum. Hún segir Angelinu sí-
fellt biðjast afsökunar á þessu og
bera því við að hún sé alltof löt
að taka myndir. „Mamma er
með myndir af mér og Mad upp
um alla veggi. Þetta em skrýtnar
myndir sem papparassar af náð
af okkur mæðginunum," segir
Angelina og lofar að bæta sig.
Sykurpúðinn Hugh Grant er brjálaður vegna nýrrar vaxmyndastyttu
Eins og Julie Andrews á heróíni
Breski leikarinn Hugh Grant hugsar starfs-
mönnum vaxmyndasafns Madame Tussaud’s
þegjandi þörfina þessa dagana. Ástæðan er sú
að ný vaxmynd af leikaranum er ekki vel
heppnuð - vægast sagt hræðileg að mati Hugh.
„Árið 1994 báðu þeir mig að vinna með þeim að
nýrri vaxmynd. Ég leyfði þeim að taka mál af mér
í von um árangur. Því miður er styttan hræðileg og
á heima í hryllingskjallaranum þar sem
fjöldamorðingjar standa uppi. Ég lít
út eins og Julie Andrews á heróini,"
segir Hugh og er augljóslega mikið
niðri fyrir.
sónu
Vaxmyndin er sumsé ekki lýsandi fyr-
ir útlit Hugh Grant. Sjálfur segist hann
líka vera breyttur maður, farinn að
stunda Pilates með konum. „Ég er kom-
inn með stálvöðva og gæti hæglega fætt
barn, væri ég kona," segir Hugh Grant.
Hugh Grant Leikarinn íeigin per-
og ekkert iikur vaxmyndinni.
Geir Ólafsson og Furstarnir
efna til jólatónleika á Póstbarnum
í lcvöld. Efnisskráin verður fjöl-
breytt að sögn Geirs: jólalatín eins
og það gerist best og djass í anda jólanna. „Við lofum stemningu sem er
engri l£k. Þetta eru ekki styrktartónleikar og við tökum laun fyrir okkar
vinnu. Að sjálfsögðu vil ég sjá sem flesta í kvöld, öðrum óska ég gleðilegra
jóla og farsældar á komandi ári," segir Geir.
Furstana skipa Guðmundur Steingrímsson, Ámi Scheving og Jón Páll
Bjarnason. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 23.30.