Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2004, Síða 27
DV Síðast en ekki síst
FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004 27
Saga um mann sem þurfti að plögga fyrir jólin
Slrrý „Svona svona, láttu það bara koma, sagði Sirrý.“
Það voru að koma jól. Hann var
með bók. Það þurfti að plögga.
Útgefandinn lagði hart að hon-
um. Hamaðist á honum með fras-
ann: Öll kynning er góð kynning.
Honum fannst það hljóma eins og:
Ég tími ekki að borga auglýsingar
fyrir þig.
Hann var látinn hringja í Séð og
heyrt. Hvað ertu með? spurðu þeir.
Ég er náttúrlega með bók.
Séð og heyrt fussaði. Bók, lók.
Það nennir engin að lesa eitthvað
kjaftæði um bók. Komdu með eitt-
hvað betra.
Hann fór í vöm. Tafsaði: Ég var
að skilja.
Mmm, gott. Meira?
Ég get sagt frá skilnaðinum og
sýnt börnin mín.
Ókei, frábært. Komdu kl. tvö.
Honum var klínt á forsíðuna.
Bókin algjört aukaatriði auðvitað, en
skilnaðinum slegið upp. Honum
fannst þetta dálítið skrítið, en útgef-
andinn stappaði í hann stáUnu: TU
hamingju vinur, fimm hundmð ein-
tök pottþétt.
Hann var sendur í ísland í bítið.
Dáhtið vandræðalegt að karlum-
sjónarmaðurinn hélt aUan tíman að
hann væri að kynna matreiðslubók.
Spurði aftur og aftur: Er auðvelt að
elda eftir þessum uppskriftum? Þeg-
ar hann ætlaði varfærnislega að leið-
rétta mistökin spurði konan: En nú
varst þú að ganga í gegnum erfiðan
skilnað... Jú, svaraði hann. Konan
horfði á hann skilningsrík. Svo var
skipt yfir í auglýsingar.
Birta vUdi forsíðuviðtal, helst ein-
göngu um skilnaðinn.
Já, en ég var að gefa út bók,
stundi maðurinn.
Jú jú, blessaður vertu, við kom-
um því að.
Hann hitti blaðakonu á kaffrhúsi
og hún sýndi svo einlægan áhuga að
hann sagði henni aUt af létta. AUtof
mikið, fannst honum, þegar hann
las viðtaUð. Hvern djöfulinn kemur
það fólki við hvernig samband okkar
var orðið undir það síðasta, hrópaði
Kiallari
hann á útgefandann sem var himin-
Ufandi: Blessaður vertu maður, Birta
er vinsælasta tímaritið og við erum
að tala um þúsund eintök pottþétt.
Skömmu síðar tók Sirrý á móti
honum. Hann mætti órakaður,
slompaður og fúU. KeUingamar frá
kvennadeUd Kívanis sem sátu í saln-
um uxu honum í augum. Hann datt
hálfþartinn út þegar flóðljósin
skuUu á honum. Sefandi rödd Sirrýj-
ar barst honum tíl eyrna og fyrr en
varði var hann farinn að hágráta.
Svona svona, láttu það bara koma,
sagði Sirrý.
Ég elska hana ennþá! æpti mað-
urinn á milh ekkasoga.
Við skulum skipta yfir í auglýs-
ingar, sagði Sirrý og tók utan um öxl-
ina á honum, hugsandi: Nú hlýt ég
að fá helvítis Edduna.
í leigubflnum heim hringdi út-
gefandinn. KaUinn minn! Nú erum
við að dansa! Tvö þúsund eintök í
viðbót. Og það sem meira er, GísU
Marteinn var að hringja og viU taka
þig inn sem aðalgest á laugardaginn.
Drífðu þig heim í sturtu og svo er
það bara upptaka á þættinum á
morgun.
Æ, er nú ekki komið nóg af þessu?
reyndi hann að andmæla.
Ertu brjálaður?!, æpti útgefand-
inn. Veistu hvað margir eru að
kvabba í Gísla þessa dagana að kom-
ast í þáttinn hans? Þú sem aðalgest-
ur eru nú bara 5000 eintök pottþétt.
Gísli Marteinn var góðmennskan
uppmáluð. Tók á móti honum í
smínkinu. Sagðist hafa lesið bókina
og fundist hún góð. Honum létti.
Sagði: Ég vfl helst ekkert tala meira
um þennan skilnað, en sá strax eftir
því þegar hann sá hvað GísU Mart-
einn varð fúU. Dró í land, jú jú, við
getum svo sem eitthvað tæpt á því.
Gísli brosti. Sagði: Þú kemur á eftir
Guddu óperusöngkonu og strákun-
um í Þvaglegg. Sestu bara og fáðu
þér kafíi á meðan þau koma úr
smínkinu.
Hann hitti Guddu og strákana í
Þvaglegg baksviðs. AUt hið almenni-
legasta fólk, fannst honum, nema
kannski söngvarinn í Þvaglegg sem
glotti fullmikið framan í hann. Næst
voru þau öU leidd inn í stúdíó og lát-
in sitja á koUum og drekka ríkis-
starfsmannakaffi á meðan GísU gerði
þáttinn. Gudda var fyrst leidd inn í
settið í miðju stúdíóinu. GísU Mart-
einn og hún náðu geysivel saman.
Gísli hló aftur að sögunni sem hún
hafði sagt honum í smínkinu. Svo
var komið að Þvaglegg. Söngvarinn
settist hjá Gísla, glennti sig töffara-
lega í stólnum og horfði beint í gegn-
inn myrkrið á hann þar sem hann
beið lotinn með kalt kaffi í frauð-
plastglasi. Söngvarahelvítið sagði
eitthvað rosafýndið svo GísU greip
um lærið á sér og hristist, en bætti
svo við á meðan GísU var ennþá
hlæjandi: Ég æda að vona að enginn
fari að grenja en lagið sem við ædum
að taka heitír Ég vfl skilnað, drusla.
Það komu vöflur á Gísla en hann
gat þó bjargað andlitinu: Gjöriði svo
vel, hér er Þvagleggur með Ég vil
skilnað, drusla.
Skriftan hnippti í hann þegar
strákamir í Þvaglegg voru búnir að
þykjast spila lagið. Hann var grút-
máttíaus og sveittur, en einhvem
veginn komst hann í settið, tók
máttlaust í útrétta hönd Gísla Mart-
eins og hlúnkaðist í sætið. Hann
heyrði fyrstu spurninguna bergmála
í hausnum á sér, eins og hún kæmi
úr órafjarlægð eða annari vídd: Nú
varst þú að skilja, það hlýtur að hafa
verið erfið lífsreynsla...
Útgefandinn hafði ekki ennþá
svarað skilaboðunum hans á
sprengidag. Hann hafði annað slag-
ið reynt að hringja í hann ofan af
StaðarfelU. í fyrsta bæjarleyfinu
rakst hann á hann á Mokka.
Jæja, mikið að maður hittir á þig.
Era komnar sölutölur?
Ja, en við eram nú reyndar ennþá
að fá bókina inn. Mér sýnist þetta
verða eitthvað í kringum 300 eintök
og þar af þurfum við náttúralega að
draga frá auglýsingakosnað.
Kæri lesandi: Á íslandi eru fjórar
sjónvarpsstöðvar í fuilurn rekstri, 16
útvarpsstöðvar, 3 dagblöð og 14
aukablöð samhliða þeim, 20 mán-
aðarblöð sem eru gefín á kafBhús-
um, 30 tímarit og 80 landsmálablöð.
Samtals koma út 700 bækur og 350
plötur á hverju ári. Hvað búa margir
á íslandi? Undir 300.000 manns.
Snúum því bökum saman og tökum
vel á móti þeim sem þurfa að plögga
fyrir jólin. Hver veit nema að ein-
hver úr þinni fjölskyldu þurfi að
plögga einhverju næst.
„Veistu hvað margir eru að kvabha í Gísla þessa
dagana að komast í þáttinn hans? Þú sem aðai-
gestur eru nú bara 5000 eintök pottþétt
Á öskuhaugum ríka fólksins
Jakob Jónatansson, fýrrverandi
sjómaður í Höfnum.
„Ég skil ekki hvernig það má vera
að einn söngvari fá 1,7 mflljónir
króna fyrir að syngja nokkur lög á
þremur kvöldum. Sjálfur er ég fyrr-
verandi sjómaður sem fæ aðeins 94
þúsund krónur á mánuði í eftirlaun.
Ég yrði eitt og hálft ár að ná nokkurra
kvölda launum svona stórmenna.
Lesendur
Vinur minn sem vinnur í fiski nær
ekki 22 þúsundum útborgað á viku
fyrir átta stunda vinnu. Sjálfur fæ ég
ekki séð hvemig ég á næ endum
saman nema kaupa bara það allra
ódýrasta í matinn og annað ekki. Ég
hef ekki drukkið brennivín í fimmtán
ár og hef ekki reykt síðan ‘64. Og ekki
hafa öryrkjamir það betra. Ég er ekki
áj*j 4JI m - s 1
í "' * Y*m
1
f
itF ^ f , .’i WB
rmBj
að öfundast yfir velgegni þessa fólks
sem er að koma sér áfram en mér
finnst mismununin verða orðin ansi
mikil. Þetta er að verða eins og í
Brasih'u þar sem bömin era skflin
eftir á öskuhaugunum á meðan rflca
fólkið spókar sig flott og fínt.“
Þórólfur á góðri stund Bréfritari saknar Þóróifs Árnasonar borgarstjóra.
Ekki kaupa diskinn
Ómar F. Dabney meindýraeyðir
hringdi:
„Kristján Jóhannsson gekk ger-
samlega fram af mér og konunni
minni í Kastíjósinu á miðvikudags-
kvöldið. Þetta var svo yfirgengileg
framkoma og fyrir neðan allar hell-
ur. Það var alger skömm að þessu
gaspri og gjammi í honum allan
þáttinn. En mér fannst stelpan
[Eyrún Magnúsdóttir] standa sig al-
veg frábærlega vel. Einhver hefði
bragðist öðravísi við. Síðan finnst
mér miður að Ólafur M. Magnússon
sktfli ekki sjá sér fært að halda áfram
sínu góða verki. Hann hélt ró sinni
allan tímann og var til fyrirmyndar.
Og ég er mjög ánægður með að
Kristján skuh kalla mig sveitalubba.
Það sýnir bara eðli manns sem held-
ur að hann sé einhver burgeis. Ég
skora á fólk sem hafði hugsað sér að
kaupa nýja diskinn hans að sleppa
þvi að styrkja frekar krabbameins-
sjúk börn um sömu upphæð."
Eftirsjá að Þórólfi
Reykvfldngur skrifar.
Það er eftirsjá að Þórólfi borgar-
stjóra. Ekki hef ég neitt út á eftir-
mann hans að setja, og óska henni
velfarnaðar í starfi. En Þórólfur var
maður okkar venjulegra borgarbúa.
Hann stóð sig ákaflega vel í starfi og
það þurfti ekki glöggt eyra til að
heyra meðal Reykvfldnga að hann
var afskaplega vel látinn. Hann kom
alltaf vel fyrir, hófstilltur og hógvær.
Hógværð er meira en hægt er að
segja um fyrirrennara hans, af
hvora kyninu sem var. Fólk var orð-
ið þreytt og leitt á yfirlætinu sem
einkenndi bæði Davíð og Ingi-
björgu. Þórólfur var lflca jafnan
mjög kíminn og skemmtilegur og
hafði þetta sérstaka glit í auganu
sem einkennir svo marga af Stóra-
Hraunskyninu. Mér finnst sárt að
þegar upp er staðið þá skifli hann
vera sá eini, sem axlar ábyrgð út af
olíumálinu. Þó er ég algerlega sann-
færð um að hann gerði ekkert mis-
jafnt, enda ábyrgðin algerlega yfir-
manna sem hvergi sjást axla sína
ábyrgð. Ég vil þakka Þórólfi góð
störf fyrir okkur borgarbúa og von-
ast til að hann gefi aftur kost á sér til
opinberra starfa. Ég vil helst að
hann verði borgarstjóri aftur, og bið
hann að hugleiða það þegar þetta
olíufár er gengið yfir.
Sandkorn
með Kristjánl Guy Burgess
• Þjóðarhreyfingin
sem kallar sig svo,
og lýtur forystu
Ólafs Hannibalsson-
ar og Hans Kristjáns
Ámasonar, kom
fram með trukki þar
sem boðuð var fjár-
söfnun til að kosta
auglýsingu í New York Times. Aug-
lýsingunni er ætlað að afneita
stuðningi íslendinga við innrásina í
frak. Nokkra athygli vakti hvaða
þjóðþekkta fólk kom fram á kynn-
ingarfundi söftiunarinnar, innan
um rithöfunda og afturhalds-
kommatittsflokksmenn úr Samfylk-
ingunni, sat þar stjómarþingmað-
urinn Kristinn H. Gunnarsson og
klappaði með...
• Mörgum þykir
það bjartsýni hjá
Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni að ætía
að koma með bók í
jólabókaflóðið svo
seint sem raun ber
vitni. Almenna
bókafélagið hætti við að gefa bók-
ina út, að sögn vegna tímaskorts og
að vinnslu væri ekki lokið. Enda
heyrðum við að fyrir örfáum dögtun
væri enn verið að safha myndum í
hana. En hvað um það, Hannes veit
öðram betur um lögmál framboðs
og eftirspurnar og gefur bókina út
sjálfur í samstarfi við félaga sína,
Sigurgeir Orra og Jónas Sigurgeirs-
syni. Bókin hefur væntanlega verið
vandlega yfirlesin hjá Eddu og þess
gætt að tilvísanir séu í lagi...
• Okkur er sagt ofan
úr háskóla að siða-
nefiid skólans hafi
gefist upp á að klára
máhð gegn Hannesi
og vísað því til Páls
Skúlasonar rektors.
Málið hefur þegar
kostað formúgur,
meðal annars var okkur sagt að mál-
sóknin í lögbannsmálinu sem
Hannes og Jón Steinar Gunnlaugs-
son höfðuðu, hafi kostað siðanefnd-
ina 700 þúsund krónur þar sem það
þurfti að fara bæði fyrir Hæstarétt
og héraðsdóm. Framhald málsins er
óljóst eins og staðan er...
• Við höldum áfram að spá í met-
sölulistana eins og bókafólkið. Það
era tveir hstar sem fólk er að pæla í.
Annars vegar er það
listi bókabúðanna
sem kemur á mið-
vikudögum og hins
vegar hstinn sem
Félagsvísindastofn-
un vinnur fyrir
moggann. Þegar sá
síðarnefhdi kom í
gær, gátu þau hjá Vöku-Helgafelh
aldeflis glaðst. Undir stjórn útgáfu-
stjórans Drafnar Þórisdóttur á for-
lagið nú fjórar af fimm mest seldu
bókunum á þessum lista og Amald-
ur efstur á báðum listum...
• Það sem vekur at-
hygli er upprisa
Ólafs Jóhanns Ólafs-
sonar sem var kom-
inn útaf listanum
yfir tíu vinsælustu
bækumar. Því er
slúðrað að útgef-
endur sætti sig ekki
við að selja mikið undir 10.000 ein-
tökum af þessari bók, enda Ólafur
Jóhann oft verið mjólkurkýr forlags-
ins. Þess vegna var hrun hans á
dögunum mikil vonbrigði. En nú
geta menn tekið gleði sína að nýju
þegar bókin er f fimmta sæti hjá
Félagsvísindastofhun og sjötta á
hinum hstanum...