Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 Fréttir DV Kona stal hjálpartækj- um ástarlífsins Aðfaranótt sunnudags- ins var lögregla kölluð til vegna þjófnaðar úr hjálpar- tækjaverslun sem rekin er á skemmtistað í miðborg- inni. Þar hafði kona verið tekin fyrir að stela margs konar tækjum til ástarleikja fyrir rúmar 40 þúsund krónur. Maðurinn sem með henni var hafði hins vegar ekki tekið neitt ófrjálsri hendi. Blóðið flóði Fjölskylda Þórðar Víðis Jónssonar var stöðvuð í tollinum þegar hún kom með Norrænu frá Danmörku á fimm bílum með búslóð móður hans, Petreu Emanúels- dóttur. Tollurinn tók þrjá kassa af Pepsíi sem keyptir voru í Þýskalandi, 40 kíló af kryddi og jólasælgætið. Petrea fær ekki sultur, graut og súrar gúrkur sem hún hef- ur lagt mikið í að búa til. Tollurinn tók Pepsí og jólasælgætiö of mömmu úrfingursári Um hálftvöleytið að- faranótt sunnudagsins hringdi kona í lögreglu og tilkynnti að blóð væri um alla rbúð hennar. Illa gekk að fá upplýsingar hjá konunni þannig að sjúkralið og lögregla voru send á staðinn. Konan reyndist vera með lítinn skurð á fingri og fékk hún plástur hjá sjúkraflutningamönn- um. Drakk hálfa aðra koníaks- flösku af stút Rétt fyrir miðnætti á laugardag var óskað að- stoðar lögreglu á veitinga- stað í austurborginni. Þar hafði matargestur drukkið eina og hálfa koníaksflösku og neitaði svo að greiða fyr- ir veitingarnar. Drukkið var af stút þannig að ekki reyndist unnt að bjóða það sem eftir var af flöskunni. Heildarverðmæti flaskn- anna er 85-90 þúsund krónur. „Það er allt á fullu hérna," segir Björn Mikaelsson yfír- lögregluþjónn á Sauöárkróki sem rannsakar bruna um helgina.„Það er ein lögregla I landinu og við þurftum hjálp bæði frá tæknideildarmönn- um í Reykjavik og mönnum wZmX tmHtwrw þaö brugðust ...... allir mjög vel við. Það eru allir boðnir og búnir að veita að- stoö þegarsvona mál koma upp. Við erum búnir að vera i stöðugum framburöarskýrsl- um og staðan er þannig að við erum að rannsaka alla anga. Við getum ekkert stað- fest en útilokum ekki neitt heldur bíðum fyrst eftir niöur- stöðum úr vettvangsrannsókn og krufningu." Leið eins og afbrotamanni „Við tæmdum íbúðina í Dan- mörku og tókum bara ísskápinn eins og hann stóð og settum í húsbílinn með öllu,“ segir Petrea sem hélt að hún hefði gengið úr skugga um að hún mætti taka með sér búslóðina með öllu. „Við vorum ekki með áfengi eða tóbak heldur bara sak- lausan heimilismat og jólavörur." Sælgætið sem tollurinn tók var fyrir íjölskylduna til að eiga um jólin. „Þetta var brjóstsykur, hlaup og Þórður Víðir Jónsson lagði í gær fram kvörtun hjá dómsmála- ráðuneytinu vegna framkomu Sýslumannsins á Seyðisfirði í sinn garð og fjölskyldu sinnar. „Hann lét okkur bíða í fjóra tíma á Seyðisfirði og tók af okkur sirka sex kassa af pepsí, jólasælgætið og kryddkassa og sektaði okkur um 40 þúsund krónur alls,“ segir Þórður. „Síðan vorum við látin skrifa upp á sátt um að gera ekkert í málinu, en það voru mistök að gera það. Við vorum búin að bíða í fjóra tíma og vildum losna," segir hann. Keyptu gos og nammi Þórður fór ásamt þremur fjöl- skyldumeðlimum á sendibifreið sinni til Danmerkur í nóvember til að sækja búslóð móður sinnar, Petreu Emanúelsdóttur, sem hefur búið þar í átta og hálft ár. í leiðinni óku Þórður og frændi hans til Þýskalands og keyptu þar húsbfl. Þar sem Petrea bjó skammt frá landamærunum við Þýskaland ákvað fjölskyldan að birgja sig upp af gosdrykkjum og sælgæti fyrir jól- in í landamæraverslununum. Til að mynda keyptu þau pepsíkassa á hagstæðu tilboði. Þrír kassar kost- uðu ekki nema 800 krónur. „Ég held að þeir hafi tekið svona hart á okkur af því þeir fundu hvorki bjór né brennivín," segir Þórður. „Það eina sem tollurinn fann var stykki af hráskinku og okkur finnst svo sem í lagi að þeir taki á því og við getum alveg borgað sanngjama sekt en þessi vinnubrögð voru fá- ránleg. Einn starfsmaður hjá tollin- um hristi líka höfuðið yfir þessu,“ segir hann. Petrea var undrandi á móttök- unum sem hún fékk í sínu heima- landi eftir svo langa fjaiveru. „Þeir vigtuðu alla matarafgangana úr ísskápnum. Ég bjóst ekki við því að mega ekki taka með mér það sem var í skápnum," segir hún. súkkulaði. Við emm stór fjölskylda," segir hún. Hún saknar einnig mat- væla sem tollurinn tók og hefur ekki skilað. „Þarna er sulta, ávaxtagraut- ur, súrsaðar gúrkur og rauðbeður sem ég bjó til sjálf og vil fá sem fyrst," segir Petrea. Petrea segir tollarana hafa verið reiða. „Þeir vom fúlir og leiðinlegir. Manni leið eins og afbrotamanni," segir hún. Sektaður fyrir olíu Þórður er einnig óánægður með hvernig komið var fram við hann út af olíu sem hann tók með sér í bfln- um. „Ég tók með mér olíu á tunnu Þeir voru fúlir og leið- inlegir. Manni leið eins og afbrotamanni. til að þyngja bflinn og svo er hún miklu ódýrari hér en úti. Þegar ég kom til baka átti ég 20 lítra eftir á brúsa og var sektaður fyrir það. Mér finnst það fáránlegt því það fer eng- inn að smygla olíu hingað sem er helmingi dýrari úti en hér. Það er ekki sektin sem skiptir máli heldur framkoman. Þetta er valdníðsla." segir Þórður. kgb&dv.is Petrea Emanúelsdóttir Vill fá sultur, grauta og afganginn afkryddinu sem tollurinn á Seyðisfirði tók afhenni. Árborg ályktar um sorphirðumál Óvænt orðsending til stöðumælavarða Bæjarstjóri vill ruslatunnu Sveitarstjóri Árborgar vill rusla- tunnur í bæinn. f nýlegri fundargerð umhverfisnefiidar bæjarins fagna nefndarmenn hugmyndum um tunnuvæðingu við sorphirðu í sveit- arfélaginu og telja að við tunnu- væðinguna muni sorp minnka og endurvinnsla aukast. Einar Njálsson, bæjarstjóri Árborgar, lýsir stöðunni í sorpmálum í dag: „Flestir eru bara með plast- poka,“ segir hann. „Sjálfur geymi ég pokann í timburkassa með hring en það getur vel ver- ið að einhveijir hafi pok- ana ofaní járntunnum." Einar segist ekki geta útskýrt af hverju svörtu plast- tunnurnar hafi ekki hafið innreið sfna í Árborg. „Við erum búin að vera að vinna að þessu núna í eitt og hálft ár og ég vona að þetta fari að ganga," segir Einar sem telur að fleiri sveitarfélög þurfi að tunnuvæðast. „Ég vona að Hvergerðingar fylgi okkur í þessu," bætir hann við. Einar Njálsson bæjarstjóri Vill plasttunnur I staðinn fyrir plastpoka. Hótel Borg borgar sektina f glugganum á rauðum bíl fyrir utan Hótel Borg var í gær miði sem á stóð eft- irfarandi: „Eigandi þessa bíls er gestur á Hótel Borg. Vinsamlegast rukkið inni." Var þessari orðsendingu beint til stöðu- mælavarða sem em að sögn Dagnýjar Birgisdóttur í lobbíinu á Borginni - afar sektar- glaðir. „Stöðumælirinn fyrir utan hótelið er bilaður. Þess vegna settum við þennan miða í bílinn," seg- ir hún." Við höfum stund- um lent í vand- ræðum þegar fá Miðinn umdeildi Stöðu mælirinn er bilaöur og þvi borgar hótelið brúsann. hótelgestir stöðumæla- sektir. Stund- um skella þeir miða á bílaleigubíla þeg- ar gestir koma inn til að sldla lyklunum." Dagný sagði í gær að enginn stöðu- mælavörður hefði gert sér ferð inn á Dagný Birgisdóttir f lobbf- inu Segir stöðumæ/averði afar sektarglaða. hótelið og við eftirgrennsl- an DV kom í ljós að eng- inn sektarmiði var á bíln- um. ,Ætli skilaboðin séu ekki að virka," segir Dagný sem sér um að borga í stöðumælinn fyrir gesti meðan mælir- inn sjálfur er bilaður. Hún tekur þó fram að Hótelið rukki gesti fyrir þann pening. Það er ekkert frítt í hundraðogeinum Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.