Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 Fréttir W Sæskjaldbökur átu svarta tómata og eðluðu sig mun oftar en áður Efni í sjampói og handáburði hættulegt Efni sem er aö fínna I sjampói og handáburöi getur veriö skaðlegt þroska taugakerfís ófæddra barna f móöurkviöi. Bandarískir vísindamenn rannsökuöu áhrif efnisins á þungaöar rottur og þá kom I ijós aöef rotturnar komust l námunda við efniö daglega haföiþaö áhrifá þroska taugakerfís unga þeirra. Efniö er ekki bara i sjampói og handáburöi heldur er það llka m.a. notaö I kæiikerfum ýmis konar og verksmiðjum. Vls- indamennirnir hafa ákveöið aö haida rannsóknunum áfram þvi notkun efnisins I ýmsar framleiðsluvörur og I iönaöi hefur aukist. Telja þeir llklegt aö efniö hafi sömu iam- andi áhrifá þroska taugakerf- is afkvæma manna og dýra. I Evrópu gilda mjög strangar regiur um notkun efnisins. Athugið ald- urstakmarkið Nú i desember eru foreldrar barna um allan heim hvattir til aö vera vel vakandi og kynna sér aldurstakmörkin á þeim fjöl- mörgu tölvuleikjum sem börnin setja á jólagjafa-óskalistann sinn. Margir leikjanna eru væg- ast sagt hrottafengnir og sumir hverjir bannaðir innan alltað 18 ára. Yfírvöld víöa hafa þó nokkr- ar áhyggjur því svo virðist vera aö fjölmargir foreldar geri sér ekki grein fyrir því að reglur um aldurstakmörk gildi varöandi tölvuleikina og sumir hafa ekki hugmynd um út á hvað leikirnir ganga, en þeir eru oftar en ekki mjög ofbeldisfullir. Á Bretlandi eiga þeir verslunareigendur sem selja börnum undir aldri tölvu- leiki á hættu að verða sektaðir um rúma hálfa milljón Islenskra króna eöa dæmdir í 6 mánaða' fangelsi fyrir brotið. SamkynhneigDiP eru jafn- velkomnir on aörir í kirkjuna Þorsteinn spyr: Blessaður og sæll. Þannig er mál með vexti að ég hef verið að velta fyrir mér stöðu fjölskyldna sam- kynhneigðra í kristinni trú. Datt þess vegna í hug aðskrifa þér. Ég er sjálfur samkynhneigður og flnnst ég oft hafa fengið heldur kaldar kveðjur frá kirkjunni og prest- um. Og maður heyr- ir fréttir utan úr heimi t.d. frá Banda- ríkjunum þar sem svo- kaliaðir kristnir bók- stafstrúarmenn hamast gegn sam- kynhneigðum. Hvernig er það, að þínu mati, erum við samkynhneigðir ekki velkomnir í kirkjuna? Erum við t.d. óæskilegir þar um aðvent- una og jólin? húmor fyrir mínum húmor ,Þessa dagana er araumaprinsinn minn að sjáli sögðu dálítiö klisjukenndur," segir Birna Anna Björnsdóttir rithöfund ur. „Draumaprinsinn hefur góðan húmor og verður líka að hafa húmor fyrir mínum húmor. Hann er góður inn að beini, öruggur í eigin skinni og ástríðufullur í þvi sem hann fæst við. Hvað útlitið varðar þá er hann er með afgerandi kjálka - samt enginn Ken." Draumaprinsinn ) íaugum Jesú erum við fyrst og fremst Guðs börn, hvort sem við erum hvít eða svört, karlar eða konur, samkyn- hneigð eða gagnkynhneigð. Sæll Þorsteinn! Já, þetta em góðar spumingar hjá þér og þarfar. Og svo ég svari nú strax þeirri síðustu, samkynhneigðir og þeirra fjölskyldur em að sjálfsögðu jafnvelkomnir og aðrir í Þjóðkirkjuna um jólin. Og alla daga reyndar! Um- ræðan um kirkju og samkynhneigð hefur oft farið ffam af miklum tilfinn- ingaþunga. Það em fika því miður margir öfgamenn sem hafa notað tækifærið, í skjóli umræðunnar, til þess að ráðast á einstaklinga og sam- tök sem þeir hafa fyrirfram verið á móti. Á það við bæði um þá sem vilja koma höggi á þjóðkirkjuna og sam- kynhneigða. Það er eins og með ann- að, fordómar em aldrei af hinu góða. Allt of lengi hafa fordómar ráðið för í þessari umræðu. Það er kominn tími til að endi sé bundinn á slíkt og að málefhi kirkju og samkynhneigðra séu rædd á málefnalegum gmnni. Rétt eins og málefni kirkju og samfé- lagsins yfirleitt. Kannski getum við tveir reynt það hér í DV í dag? Jesús þekkti samkynhneigð En talandi um kirkju og samkyn- hneigð: Jesús Krismr minnist aidrei á samkynhneigð eða samkynhmeigða. Og hann talar reyndar aldrei um kyn- hneigð manna til eða frá. Þannig að það hvort menn væm samkynhneigð- ir eða gagnkynhneigðir hefur nú ekki legið þungt á honum. Það er merkilegt innlegg í þessa umræðu, finnst mér afla vega. í augum Jesú erum við fyrst og fhemst Guðs börn, hvort sem við erum hvít eða svört, karlar eða konur, samkynhneigð eða gagnkynhneigð. Nú er það ekki svo að samkyn- hneigð hafi ekki verið fyrir hendi í um- hverfi Jesú. Allt í kringum Júdeu á dögum Jesú vom margfalt fjölmenn- ari ríki en land Gyðinga. Þar vom til dæmis hinar svokölluðu „tiu borgir" þar sem Grikkir réðu ríkjum frá fomu fari. Hjá Grikkjum og í þeirra menn- ingarheimi var samkynhneigð ekkert tiltökumál. Jesú stytti sér meira að segja oft leið í gegnum borgimar tíu á ferðum sínum, en aldrei minnist hann samt á þetta atriði. Hann hefur samt eflaust þekkt vel fordæmingar- orð Gamla Testamentisins í garð sam- kynhneigðra. Um það vom helstu andstæðingar Jesú, ffæðimenn og farísear aftur á móti ekki jafn þögulir og fordæmdu þeir Grikkina m.a. vegna ffjálslyndis þeirra gagnvart samkynhneigðum. Spyrjið séra Þórhall DV hvetur lesendur til að senda inn spurningar um hvaöeina sem snýr að hjónabandinu og fjölskyldunni til séra Þórhalls Heimissonar. Séra Þórhallur svarar spurningum les- enda í DV á þriðjudögum. Netfang- ið er samband@dv.is. Séra Þórhallur Heimisson skrifarum fjölskyldumál. Fj ölskyldumaður inn Kærleikurinn að leiðarljósi Árásir á samkynhneigða í dag em oft dulbúnar í kristilegan búning eins og þú nefnir, með tilvimunum í Biblíu- texta, bæði úr Gamla Testamentinu og hinu Nýja. Þeir sem slíkt stunda gleyma því aftur á móti að við kristnir menn eigum að lesa lögmál hins gamla sáttmála í Ijósi Jesú. í fjallræðunni í Matteusar guðspjalli segir Jesús m.a. „Dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmdir," og „Allt sem þér því viljið að aðrir menn gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra." Hann undirstrikar þannig að kærleikurinn skuli vera hafður að leiðarljósi í lífinu, kærleikur- inn sem dæmir ekki á grundvelli for- dóma og vanþekkingar. Þessu vom samtímamenn Jesú margir ekki sam- mála og þess vegna m.a. var hann krossfestur. Enginn útskúfaður úr þjóð- kirkjunni Menn ættu þess vegna að varast að taka orð Jesú úr samhengi til að dæma náungann. Jesús leggur áherslu á verðmæti allra. Samkvæmt því á kirkj- an hans líka að starfa. Þess vegna er enginn útskúfaður úr Þjóðkirkjunni, hvorki um jól né í annan tíma. Það á við jafht um íslendinga og útlendinga, karla og kornu, samkynhneigða og gagnkynhneigða. Meðkveðju, si.ÞóihaUui Heimisson Svartir tómatar efla Neytendur á Bretlandseyjum hafa tekið svarta tómatinum, eða Kumato eins og hann er kallaður, opnum örmum. Ekki nóg með að tómaturinn sé fullur af C- vítamíni heldur ku hann virka afar hvetj- andi á kynkvötina. Tómaturinn er upp- runninn á Galapagoseyjum í Kyrrahafi og tóku menn eftir því að þær sæskjald- bökur sem átu svörtu tómatana eðluðu sig mun oftar en þær sem borðuðu bara þessu rauðu venjulegu. Sainbury's versl- anakeðjan ákvað að selja svörtu kynhvötina tómatana í 30 verslunum sínum í mánuð og ekki sátu neytendur með hendur í skauti því viðbrögð þeirra fóru fram úr björtustu vonum. Nú hefur verið ákveð- ið að selja svarta tómata í yfir 100 Sains- bury's verslunum um allt Bretland. Haft er eftir talsmanni verslanakeðjunnar að svörtu tómatarnir hafi selst mjög fljótt upp i verslunum 30 en því miður sé ekki vísindalega sannað að svörtu tómatarnir hafi sömu áhrif á kynhvöt manna og þeir hafa á sæskjaldbökur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.