Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Síða 3
DV Fyrst og fremst MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004 3 Horfl í glogga ó Laugavegi Jens Péturs- son Klæðirsig eftir veðri. Það voru fáir á ferli á Lauga- veginum í gær. Enda rigning og snjór og rok á víxl. Ekta íslenskt veður myndu einhverjir segja. Gamall maður á göngu lét veðrið ekki hafa áhrif á sig. „Ef maður er vel klæddur er allt hægt,“ sagði hann og kynnti sig sem Jens Pétursson, íbúa á Grettisgötu. Jens stoppar til að horfa í upplýstan búðarglugga. Jólin eru að koma og verslunartörnin hafin. „Ég er lítið fyrir þessar verslunarmiðstöðvar. Uss, uss, suss," segir Jens. „Maður fær bara innilokunarkennd. Það er miklu betra að rölta héma eftir Laugaveginum.“ Klukkan er að nálgast fjögur og vindinn hefur eitthvað lægt. í veðurfféttum kvöldið áður hafði Siggi Stormur spáð auknum hita með deginum. Hann hafði ekkert minnst á snjóinn sem kyngdi niður um hádegisbilið. Sem betur fer bræddi rigningin snjóinn og spáin hélt. En bara rétt svo. Jens Pétursson sýnir á sér fararsnið. „Ég á pantaðan tíma hjá rakara,“ segir hann. Gömul kona gengur hjá með innkaupa- poka. Ungur maður með barnakerm fer varlega yfir götuna. Og Jens kveður. Röltir niður Laugavegirin. Framhjá Bónus og Svarta Kaffinu áleiðis til rakarans. Það er h'f á Laugaveginum þennan grámóskulega mánudag. Líf undir bemm himni. Ekki glerþaki mollanna. Spurning dagsins Er jólaundirbúningnum lokið? Stressa mig ekki lengurfyrirjólin „Nei, ég er að þessu eftir hendinni írólegheit- um. Ég er ekkert að stressa mig á þessu lengur og það gerir ekkert til þó að það leynist rykkorn hér og þar. Það er hægt að halda þess vegna." Sólveig Svavarsdóttir leikskóla- kennari. „Nei, ég er eig- inlega ekkert byrjaður. Það ersvomargt breytingum undirorpið hjá méren ég finn þegar engin eru börnin að minna er viðhaft. Minn undirbúningur er meira fólginn í að keyra um bæinn og skoða jólaskreytingar." Bjarni Hafþór Helgason fyrrv. sjónvarpsmaður. „Nei, honum er ekki lokið. Hann er bara rétt að byrja en í vinnunni er ég búinn að undirbúa það sem þarf. Ég er hins vegar ekki byrjaður að kaupa gjafír og á eftir að skreyta allt hjá mér." Guðmundur Sigurðsson organisti. „Hann er ekki byrjaðuren hann felst að- allega í að setja upp jóla- skraut og kaupa gjafír. Ég á eftir að kaupa þær allar en ég er byrjuð að hlusta á jólalög í bílnum." Anna Margrét Björnsson ritstjóri. „Nei, það er frekar að segja að hann sé ekki byrjaður. Konan sér um þetta að hluta en skiptingin er að mestu óljós á milli okkar. Annars er ég svo lítill jólakarl. “ Sigurgrímur Skúlason. Misjafnt er hve fólk er fljótt að gera allt sem þarffyrir jólin.Margir gera ekkert fyrr en á síðustu stundu. Aðrir eru búnir að öllu mjög snemma og njóta þess að vera til á aðventunni. Bandarísk enska og bresk / Bandaríkjum Noröur-Ameiíku og á Bretlandi er enska ríkjandi tungumál meö ótal blæbrígöum í íramburöi beggja vegna Atlantshafsins. En bundruö oröa bafa ólúca merkingu vestan hafs og austan ogbér eru nokk- urdæmi: i . mm 11 ORÐ BANDARÍSKA BRESKA (búð Apartment Flat Bifreið Automobile Motorcar Lyfta Elevator Lift ‘ Franskar kartöflur French fries Chips eða freedom fries öskukarl Garbage man Dustman Sokkabönd Garters Suspenders Bensih Gasoline Petrol Lögmaður Lawyer Solicitor Blaðasala Newsstand Kiosk Símaklefi Phone booth Call box Kartöfluflögur Potato chips Crisps SPAICMÆLI „Horfíð á feg- urðina alltí kringumykkur ogveríð ham- ingjusöm" AnneFrank 1929-1945. ÞAÐ ER STAÐREYND.. .. að Elísabet I. Eng- landsdrottning átti 3.000 kjóla. ÞAU ERU SYSTKINI Leikkonan og trommarinn Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og Kormdkur Geirharðsson trommari og vert á Ölstofunni eru systkini. Faðir þeirra er Geirharður Þorsteinsson arkltekt sem meðal annars er ábyrgur fyrirþvi að hafa hannað skipulag Breiöholtsins. J.Stóri bróðirþeirra Halldóru og Kormáks erÞorsteinn Geirharðsson arkltekt ogÁ r iðnhönnuður. Halldóra vakti fyrst athygli fyrir skemmtHega framkomu með hljómsveitinni Risaeðlunum og var þá oftast kölluð Dóra Wonder. Kormákur -------- , eða Kommi eins oghann er oftast kallaður hefur verið trommari íýmsum hljómsveitum jafnframt þvl sem hann hefur rekiö bari og fataverslun. Amerískar lúxus heilsudýnur Berðu saman verð og gæði Techm&wsy voadvdnccd. i* 's ITURN-FREE _____ „ . fff' . K > ■< T ... • ..!dtf*— ekkjan Skipholt 35 Simi 588 1955 www.rekkjan.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.