Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Síða 13
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004 13
Natalía Wium á heimili
sfnu í Kópavogi „Þetta
hjónaband er búið,' segir hún.
Viðtal við hjónin f
tímaritinu Birtu
Hérna sá þjóðin
Natalíu I fyrsta skipti.
„Hann varð
mjög reiður
þegarégsagði
honum að ég
vildi skilja.
Ástþór vili
vera sá sem
ræður. Sá sem
hefur valdið."
Astþór og tómatsósan
Vakti þjóðarathygli íréttarsal.
mm
mm
am
...að eiga ekki sjónvarp?
„Það er bara ljómandi fínt. Það
hefur aldrei truflað mig neitt að
vera ekki með sjónvarp. Ég hef átt
sjónvarp um ævina en síðustu tíu
mánuðina hefur heimili mitt verið
sjónvarpslaust og ég sakna þess
ekki. Fyrst hélt ég að ég myndi sjá
eftir föstum þáttum sem ég hafði
fylgst með, eins og Sopranos og
Bráðavaktin, en öðru nær, ég var
fljót að komast yfir það. Ég hef áttað
mig á því að sjónvarpið er rosalegur
tímaþjófur, það tekur frá þér enda-
lausan tíma. Ég hef nóg annað við
minn tíma að gera en að glápa á
sjónvarp.
Sjónvarp er athyglisþjófur
Ástæða þess
að ég á ekki sjón-
varp er í raun val.
Ég bjó erlendis
um tíma og þegar
við fluttum hing-
að heim vorum
við ekki með
sjónvarp. Við
ákváðum að á
meðan við vær-
um að koma okk-
ur fyrir í nýju
íbúðinni mynd-
um við ekki fá
okkur sjónvarp
strax, reyna að taka frekar upp úr
kössunum og einbeita okkur að því
að koma okkur fyrir. Svo áttuðum
við okkur á því að best væri að hafa
ekki sjónvarp yfir höfuð. Maður
hefur þá meiri tíma til annarra
hluta. Á kvöldin er alltaf brjálað að
gera hjá mér, ég á tvö litla stráka, tíu
mánaða og þriggja ára, og hef nóg
með þá. Sjónvarp er svo mikill at-
hyglisþjófur, fólk hefur alltaf kveikt
á því og getur ekki einbeitt sér að
neinu. Ég les frekar bækur og fer
fyrr að sofa á kvöldin. Því er ég
orkumeiri og á ekki lengur í vand-
ræðum með að vakna á morgn-
anna.
Hlusta á útvarpið
Ég hlusta mikið á útvarp og þá
aðallega gömlu gufuna. Þegar mað-
ur fer virkilega að hlusta á útvarp
vill maður ekki hafa neina síbylgju.
Innlend þáttagerð er áhugaverð í
útvarpinu, mikið af fróðlegum og
skemmtilegum þáttum, eins og
Víðsjá, og svo er miðdegissagan líka
góð. Ég held að fólk hlusti almennt
alltof lítið á útvarp. Útvarpsþætt-
imir sem ég hlusta á skilja örugg-
lega meira eftir sig en bandarískar
sápuóperur.
Veit ekkert um þetta Idol
Ég hef nú ekki lent í því að fólki
finnist það vera skrítið að ég sé
sjónvarpslaus. Ég ségi bara að þetta
sé mitt val og þá skilur fólk það al-
veg. Ég er eðlilega svolítið útundan í
umræðum um sjónvarpsþætti, ég
veit ekkert hvað er að gerast í þess-
um þáttum sem allir tala um, þess-
um raunveru-
leikaþáttum og
Idolinu. Það
háir mér ekkert,
ég hef engan
áhuga á að fylgj-
ast með þessu.
Þegar við bjugg-
um úti vorum
við með sjötíu
stöðvar. Það var
alltof mikið,
maður bara
sogaðist inn í
þetta allt og það
getur ekki verið
Fjölskyldan vill skaupið
Við höfum planað að fjölskyldan
verði hér hjá okkur á gamlárskvöld.
Fólki fannst náttúrulega ómögulegt
að ekki væri hægt að horfa á ára-
mótaskaupið svo að tengda-
mamma ætlar að láta okkur fá sjón-
varp yfir hátíðarnar. Þá geta krakk-
amir fylgst með jóladagatalinu og
allir horft á skaupið. Mér finnst
ágætt að fá sjónvarpstæki inn á
heimilið yfir hátíðarnar en ég skila
því strax eftir áramót. Krakkar horfa
allt of mikið á sjónvarp nú til dags.
Ég man eftir því þegar það var ekk-
ert sjónvarp á fimmtudögum og í
júh'. Maður varð aldrei háður þessu
eins og oft er með böm í dag. Ég
held að allir ættu að prófa að sleppa
því að vera með sjónvarp. Eftir viku
sérðu að það margborgar sig."
áÍílandi («rsjónvarpsáholf
virðist taka meiri tíma en hollt ^“Xta oq leto sér úti Inni I nánast hverju
atssrS-aíssr
„Fólki fannst nátt-
úrulega ómögulegt
að ekki væri hægt að
horfa á áramóta-
skaupið svo að
tengdamamma ætlar
að láta okkur fá sjón-
varp yfír hátíðarnar."
hollt."