Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Side 34
34 LAUGARDAGUR 1L DESEMBER 2004
Helgarblað DV
Andri Steinþór Björnsson er í doktorsnámi í sálfræðum í Bandaríkjunum en hefur um leið gefið sér
tíma til að skrifa og senda frá sér bók um Vísindabyltinguna og rætur hennar í fornöld og á miðöld-
um. Þar er saga vísinda frá fornöld og fram á 18. öld sögð almennum lesendum i einu bindi.
VISINDA
^tingin
Andri Steinþór Björnsson „Skrifaöi sögu
vlsindanna gjörsamlega óumbeðinn
„Vinur minn Guðmundur Stein-
grímsson hefur verið að liðsinna
mér undanfarið í kynningarmálun-
um,“ segir Andri Steinþór kampa-
kátur. „Hann orðar þetta svona:
Skrifaði sögu vísindanna gjörsam-
lega óumbeðinn. Og eiginlega er
þetta satt, þetta er eiginlega bara
aff akstur leitar minnar að svörunum
við stóru spurningunum. Hvað eru
vísindi? Hvernig urðu þau til? Og
vísindabyltingin, af hverju varð hún
þá og þar?“
Vísindakenningarnar sjö
Andri Steinþór segir áhugann
hafa kviknað þegar hann skrifaði um
þróunarkenningu Darwins til
BA-prófs. „Ég ritstýrði með öðrum
bókinni Er vitívísindum?- sex fyrir-
lestrum um vísindahyggju og vís-
indatrú, en hún kom út árið 1996 og
sá um vísindaþætti í Ríkisútvarpinu
tveimur árum síðar. Var algjörlega
dottinn í vísindi handa almenningi
og fékk þá hugmynd að skrifa bók
um sjö merkustu vísindakenningar
okkar daga; sólmiðjukenninguna,
afstæðiskenninguna, skammtafræð-
ina, Miklahvell, þróunarkenning-
una, kenninguna um erfðaefnið og
flekakenninguna.
Hugðist skrifa stuttan sögulegan
inngang að hverri þeirra og útskýra
þær svo á mannamáli. Mér tókst að
sannfæra Jörund Guðmundsson hjá
t
¥
¥
GITARINN EHF.
www.gitarinn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125 git»rinn#gitarinn.i*
Trommusett með öllu,
*
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
ásamt kennslu-
myndbandi og
æfingaplöttum á
allt settið.
Rétt verð
73.900. -
Tilboðsverð
54.900. -
ÞJÓÐLAGAGÍTAR: KR. 14.900.-
M/ POKA. ÓL. STILLIFLAUTU OG NÖCl
ÞJÓÐLAGAGÍTAR: KR. 17.900.-
M/ PICK-UP (HÆCT AÐ TENGJA ( MAGNARA)
M/ÖLLU AÐ OFAN.
KLASSÍSKUR GÍTAR
FRÁ
KR. 9.900.-
RAFMAGNSSETT: KR. 27.900 -
(RAFMACNSGlTAR - MACNARi - POKI - KENNSLUBÓK -
STILUFLAUTA - OÍTARNECLUR OG 2 SNÚRUR!!!!)
{
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
Háskólaútgáfunni um ágæti þessa
og nauðsyn.
En smám saman áttaði ég mig á
hvað þetta var mikið verk, hvað það
í raun og veru þýðir að skilja
kenningu og geta útskýrt hana fyrir
öðrum. Ég ákvað því fyrst að skrifa
einungis um kenningar innan eðlis-
vísindanna en ári síðar sá ég að
meira að segja það var of mikið. En
þá hafði áhugi minn á vísindasög-
unni kviknað og mér þótti skiljan-
legra og skemmtilegra að rekja hana.
Og mér þótti nokkur kostur að vera í
sálfræðinni og ekki með formlega
menntun £ eðlis-, stærð-, líf- eða
jarðfræði, þannig hefði ég sennilega
betri skilning en innvígðir á hvað
þyrfti að skýra fyrir hinum almenna
lesanda."
Vísindin og miðlun þeirra
Andri Steinþór segist skilgreina
hugtakið vísindi nokkuð vítt.
„Sálfræðin er ágætt dæmi, sögulega
hefur hún litið til greina eins og
eðlis- og efnafræði um leið oghún er
á mörkum þess að vera siðfræði og
ýmislegt annað. Þegar þróun
einstakra vísindagreina er skoðuð
kemur í ljós mun flóknari
mynd af vísindunum en
við almennt gerum
okkur grein fyrir. Nú
er ég ekki vísinda-
sagnfræðingur en
hef stundað
sjálfsnám í þeirri
grein grimmt en
að mínu mati,
og reyndar fjölda
vísindasagn-
fræðinga líka,
ætti eitt af
helstu hlut-
verkum þeirra
að vera miðl-
un fræðanna til
almennings en
mjög oft er það bara ekki þannig.
Fræðimenn eru stundum langt
frá almenningi en smám saman eru
þeir að gera sér grein fyrir þörfinni á
miðlun til almennings um leið og
þeir skrifa ákaflega lærðar fræði-
greinar fyrir háskólasamfélagið.
Heimsmynd á hverfanda hveli eftir
Þorstein Vilhjálmsson er frábært
dæmi um þetta. Fræðimaðurinn
hefur þar einstakt lag á að gera erfið-
ar kenningar öllum skiljanlegar."
Vísindin og samfélagið
í bókinni fjallar Andri Steinþór
um vísindabyltinguna á 16. og 17.
öld og rætur hennar í fornöld, á mið-
öldum og endurreisnartímanum.
„Þannig má skipta þessari sögu í
stutt framfaraskeið með hnignunar-
skeiðum inni á milli. Grikkir gerðu
merkar uppgötvanir sem juku skiln-
ing þeirra á heiminum og mannin-
um en þeir hættu eiginlega þegar
lausnin var handan við hornið, eins
og þeir hefðu rekist á ósýnilegan
vegg.
A hinum svokölluðu myrku
miðöldum þróaðist verkmenning
iðnaðarmanna gríðarlega og
gerði komandi kyn-
slóðum kleift
að finna upp sjónauka og stækkun-
argler svo nokkuð sé nefnt. Skýring-
ar á hnignun vísindanna eiga eitt
sameiginlegt; þær ganga allar út frá
þeirri forsendu að vísindin hljóti
alltaf að halda áfram á framfara-
braut nema eitthvað sérstakt standi
hreinlega í veginum.
En undantekningin á þessari
reglu er vísindabyltingin í Vestur-
Evrópu á 16. og 17. öld, þaðan er
óslitinn þráður vísindastarfs fram á
okkar daga. Hvar er þá hnignunar-
skeiðið? Kreppa var allsráðandi í
flestum löndum Vestur-Evrópu,
borgarastétt og aðall tókust á, meira
að segja veðurfarið hríðversnaði um
tíma á 17. öld. Almenn menntun var
bágborin og skólaspekin lítils metin.
En samt fengu vísindin þá varanlegt
hlutverk í vestrænu samfélagi.
Félagsfræðingur að nafni Joseph
Ben-David segir nefnilega að vísindi
verði að hafa félagslegt hlutverk í
samfélaginu til að festa rætur."
Sjálfstætt gildi í samfélaginu
Andri Steinþór færist ailur í auk-
ana og skýrir málið frekar. „Áður
höfðu vísindin eiginlega verið að-
skotahlutur í samfélaginu. Vissulega
höfðu vísindin verið ótrúlega frjáls í
fornöld, menn kepptust við að setja
fram nýjar heimsmyndir og voru
ekki brenndir á báli fyrir, frjálsræðið
og frjósemin í hugsun þessara
manna var með ólfkindum. Síðan
hallar fólk sér meira að trúarbrögð-
unum, þau gegnsýrðu alla sýn,
vísindin skyldu kanna eðli guðs ef
ekki finna hann.
En á 16. og 17. öld kom fram
hugmyndin um að vísindi væru
nauðsynleg til þess að ffamfarir
gætu orðið í þekkingarleit og
menntun borgaranna. Innan vísind-
anna voru svo deilumál leyst með
skynsemi að vopni og vísun í athug-
anir, ólíkt aðferðum annarrar starf-
semi. Vísindabyltingarmennirnir
boðuðu að á grundvelli vísindanna
væri hægt að reisa trúverðuga
heimsmynd sem friður ríkti um og
boðskapurinn hitti beint í mark á
ófriðartímum. Vísindamenn öðluð-
ust hlutverk í samfélaginu eins og
prestar og iðnarmenn höfðu áður,
starfsemi þeirra þótti skipta máli
fyrir samfélagið. Þessi sýn á vísinda-
söguna gerbreytir henni eiginlega,
hún verður ekki línulaga heldur
margslungin og samsett.
Francis Bacon var eiginlega helsti
stjórnmálamaður vísindanna, hann
var ekki sérlega upptekinn af
vísindastörfum en rökstuddi og
boðaði því meira hvað vísindin væru
nauðsynleg til að endurbæta þekk-
inguna, gjörbreyta þyrfti menntun
með tilraunum og athugunum og
byggja þannig nýja heimsmynd,
óháða trúarbrögðum til dæmis.
Vísindafélögin urðu til og lögðu
grunninn að vísindasamfélaginu,"
segir Andri Steinþór Björnsson og er
roldnn vestur um haf að stúdera
sálfræði og halda jól.
rgj@dv.is