Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 Fréttir 0V Mogginn og bíóin Það er rosalega áberandi hvað það er miklu meira af auglýsingum í Fréttablaðinu en Mogganum fyrir þessi jól. Manni virðist að Frétta- blaðið sé endanlega búið að taka yfir markaðinn. Það hlýtur að vera sárt fyrir þá á Morgunblaðinu sem til skamms tíma gátu deilt og drottnað í auglýs- ingaheiminum. Mér hefur alltaf þótt fjárhagsstaða Fréttablaðsins * dálítil ráðgáta - að það geti yfirleitt staðið undir sér? En með öllu þessu auglýsingaflóði og aukablöðum má vel vera að allt sé í sómanum. Óveðursský yfir Morgunblað- inu? Nú ædar Mogginn að selja frá sér eignir á besta stað í bænum, flytja úr Kringlunni í ... Hádegismóa. Þessi staður mun vera fýrir norðan Rauðavam. Þar hefur þegar risið prentsmiðjan sem sögð er vera að sliga blaðið. Ég veit ósköp lítið um rekstur Morgunbiaðsins, ekki um- fram það sem bæjarrómur segir. Móðgaður rithöfundur sem ekki fær inni í blaðinu skrifar á bloggsíðu ^ sína í gær: „Það skyldi þó aldrei vera að ég yrði langlífari en Mogginn? Ekkert er varanlegt í tilverunni og ég veit ekki betur en óveðursskýin hlaðist upp yfir blaðinu." Fyrirtæki á mjög asnalegum stað Ég trúi ekki að mikill fögnuður verði á Morgunblaðinu við flum- ingana. Sjálfur vinn ég í fyrirtæki sem er á mjög asnalegum stað, í miðju verksmiðjuhverfi, ekki langt frá ffamtíðarstað Moggans. Þar braust út mikill fögnuður nýskeð þegar opnaði konditori í hverfinu - áður hafði ekki verið neitt nema dekkjaverkstæði, jú, og svo Ríkið hinum megin við götuna. Eitt sinn var talið sjálfsagt að fjölmiðlar væru sem næst hring- iðu bæjarlífsins. Blöðin vom niðri í bæ. Blaðamenn gengu einfald- lega út og hittu viðmælendur sína. Á bæjarröltinu. Það er erfitt að hugsa sér blaðamann á röltinu við Rauðavatn - þá væntanlega í goretex að tala við rjúpu sem er að villast eða mink. Það var svo um miðjan áttunda áratuginn að þau tóku að flytja upp í Síðumúla þar sem á næstu árum myndaðist vísir að einhvers konar „Fleet Street". Þcima vom á mestu velmektarárunum Tíminn, Þjóðvilj- inn, Vísir, Dagblaðið, Alþýðublaðið og Helgarpósturinn. Morgunblaðið var enn á sfnum stað, í höllinni við Aðalstrætí. Það er pínulítill hópur bissnessmanna sem hef- ur lagt undirsig kvikmyndahúsin hér. Yfirleitt eru sömu myndirnar sýndar í sölum úti um aii- an bæ. Þær eru yfirleitt allar amerískar... Tsr i Léttgreiðslur 'JB- bilkohs - Betri verð! Smiðjuvegi 34 | Rauó gata | bilko.is | Sími 557-9110 tækifærið! 155/80R13 frá kr. 4.335 185/65R14 frá kr. 5.300 195/65R15 frá kr. 5.900 195/70R15 8 pr. sendib.frá kr. 8.415 J&TöO ac 6uSSm ****** 'Jkiíáufii^unniutnjá. Burrtvfom C! Ö« töitíJMK Mtjnnnirfr^ En það er svo kátiegt að fjölmiðillinn sem á sínum tíma fjallaði mest um sprungusvæðið við Rauðavatn og hættuna við að byggja þar skuli einmitt velja sér stað, tuttugu og fimm árum síðar, á sprungusvæðinu við Rauðavatn. Egill Helgason hefurað glugga í Moggann og kvikmyndahúsin. Laugar dagskj allari Algjört stemmningsleysi í Síðumúla Svo flosnaði þetta allt upp. Ég bind ekki neitt söknuð við það, eyddi mörgum ámm í og við Síðu- múlann og get seint sagt að það sé skemmtileg gata. Þama vom tvær ljótar og leiðinlegar sjoppur. Hægt að labba á bjórkrá í Skipholti. Al- gjört stemmningsleysi. Margt skemmtilegt fólk vann í hverfinu, en það hittist aldrei. Flest þessara blaða fóm á hausinn, DV flutti í hús við Þverholt en Mogginn var allt í einu farinn úr bænum upp í Kringlu. Dettur Mogginn niður um sprungu? Og nú er þetta blað sem eitt sinn virtist stöðugra en allt sem stöðugt er í tilvemnni aftur að flytja. Ég veit ekki - kannski átti það aldrei að flytja úr bænum? Morgunblaðshöllin er tákn sem missti merkingu sína. Flestir em löngu búnir að sætta sig við húsið þótt það hafi verið stílbrot í byggð- inni á sínum tíma. En það er svo kát- legt að fjölmiðillinn sem á sínum tíma fjallaði mest um spmngusvæð- ið við Rauðavatn og hættuna við að byggja þar skuli einmitt velja sér stað, tuttugu og fimm árum síðar, á spmngusvæðinu við Rauðavam. Sjálfur vona ég innilega að Mogginn detti ekki niður um spmngu - við getum illa verið án hans. Lágar einkunnir myndanna í Lag bíó Er hætt að framleiða kvikmyndir nema fyrir unglinga eða em myndir fyrir fullorðið fólk einfaldlega ekki fluttar til íslands? Núna um helgina er verið að frumsýna þrjár myndir í bíóunum í Reykjavík. Fréttablaðið veitir okkur þá ágætu þjónustu að greina frá dómum sem þessar myndir hafa fengið fyrir vestan haf. Surviving Christmas fær 4,5/10 hjá Intemet Movie Database, 7% = rot- in hjá Rottentomatoes, 18/100 hjá Metacritic.com - þetta em fjarska nákvæmar einkunnagjafir. Saw fær 7,3/10 hjá Intemet Movie Databa- se, 46% hjá Rottentomatoes, 44/100 hjá Metacritic.com. Paparazzi fær 5,6/10, 30% og 36/100. Þessar myndir eru rusl Engum þarf sem sagt að bland- ast hugur um að þessar myndir em rusl. Þær ná ekki einu sinni að slefast yfir falleinkunn. í vikunni var líka fmmsýnd síðbúin viðbót úr flokknum um drápshneigðu brúðuna Chucky í nokkrum bíó- um borgarinnar. Hún fær eina stjörnu af fimm í Morgunblaðinu í morgun, gagnrýnandinn segir að hún sé „sorgleg lágkúra". Þetta er semsagt úr- valið. Það er pínulítill hópur biss- nessmanna sem hefur lagt undir sig kvikmynda- húsin hér. Yfirleitt eru sömu mynd- irnar sýndar í sölum úti um allan bæ. Þær em yfirleitt allar amerískar - þarf ekki að taka fram að ofannnefnd- ar myndir em allar það- an. Stundum slæðist með bresk mynd, en þá er hún yfirleitt fram- leidd með amerískan smekk í huga, líkt og serían um Bridget Jones. Myndir fyrir full- orðiðfólk Fyrir tíu árum skrif- aði ég um kvikmyndir. í vikublað sem er löngu dautt. Eitt árið taldist mér til að ég hefði séð 155 myndir. Eig- endur kvik- myndahúsa kveinkuðu sér oft undan skrifum mínum, þótt aldrei kæmi til þess að mér væri ekki hleypt inn í bíóin. Eftir á sé ég að á þess- um tíma vom oft ágætar myndir í bíó, sumar teljast jafhvel klassík núorðið. Ég nefni Rauðan eftir BCieslowski, nýsjálensku myndina Heavenly Creatures, The Piano, The Shawshank Redemption og Quiz Show. Allt myndir fyrir full- orðið fólk. Hollywood eins og Flórens á endurreisnartímanum? Heimspekingur hér í bæ tók til varna fyrir kvikmyndir og Hollywood í grein sem hann skrif- aði fyrir nokkrum árum. Sagði að einhvern tíma yrði litið á blóma- skeið Hollywood eins og Flórens á endurreisnartímanum - sem tíma taumlausrar sköpunargleði og mikill krafta sem leystust úr læðingi. Má rétt vera. En þá má lika ætla að tími hnignunarinnar sé runninn upp og að fallið verði stórt. Þarf maður að fara til útlanda til að komast í bíó? Alltént hefur mig langað í bíó í marga mánuði en aldrei komið auga á neina mynd sem ég get hugsað mér að sjá. Þarf maður kannski að fara til útlanda til að komast í bíó? Það væri kannski hug- mynd fyrir flugfélögin: Icelandair býður bíóferð til Parísar, London og NewYork. KOKKABÓKASTANOUR KR. 1,900 GLIU OG EOIKSTANOUR KR, 1,400 BOLLASTANDUR KR.1.Ó0Ö VINREKK! KR. 2,400
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.