Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Page 70
70 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004
Fréttir 0V
Mogginn og bíóin
Það er rosalega áberandi hvað
það er miklu meira af auglýsingum í
Fréttablaðinu en Mogganum fyrir
þessi jól. Manni virðist að Frétta-
blaðið sé endanlega búið að taka
yfir markaðinn.
Það hlýtur að vera sárt fyrir þá á
Morgunblaðinu sem til skamms
tíma gátu deilt og drottnað í auglýs-
ingaheiminum. Mér hefur alltaf
þótt fjárhagsstaða Fréttablaðsins
* dálítil ráðgáta - að það geti yfirleitt
staðið undir sér? En með öllu þessu
auglýsingaflóði og aukablöðum má
vel vera að allt sé í sómanum.
Óveðursský yfir Morgunblað-
inu?
Nú ædar Mogginn að selja frá sér
eignir á besta stað í bænum, flytja
úr Kringlunni í ... Hádegismóa.
Þessi staður mun vera fýrir norðan
Rauðavam. Þar hefur þegar risið
prentsmiðjan sem sögð er vera að
sliga blaðið. Ég veit ósköp lítið um
rekstur Morgunbiaðsins, ekki um-
fram það sem bæjarrómur segir.
Móðgaður rithöfundur sem ekki
fær inni í blaðinu skrifar á bloggsíðu
^ sína í gær: „Það skyldi þó aldrei vera
að ég yrði langlífari en Mogginn?
Ekkert er varanlegt í tilverunni og ég
veit ekki betur en óveðursskýin
hlaðist upp yfir blaðinu."
Fyrirtæki á mjög asnalegum
stað
Ég trúi ekki að mikill fögnuður
verði á Morgunblaðinu við flum-
ingana. Sjálfur vinn ég í fyrirtæki
sem er á mjög asnalegum stað, í
miðju verksmiðjuhverfi, ekki langt
frá ffamtíðarstað Moggans. Þar
braust út mikill fögnuður nýskeð
þegar opnaði konditori í hverfinu -
áður hafði ekki verið neitt nema
dekkjaverkstæði, jú, og svo Ríkið
hinum megin við götuna.
Eitt sinn var talið sjálfsagt að
fjölmiðlar væru sem næst hring-
iðu bæjarlífsins. Blöðin vom niðri
í bæ. Blaðamenn gengu einfald-
lega út og hittu viðmælendur sína.
Á bæjarröltinu. Það er erfitt að
hugsa sér blaðamann á röltinu við
Rauðavatn - þá væntanlega í
goretex að tala við rjúpu sem er að
villast eða mink.
Það var svo um miðjan áttunda
áratuginn að þau tóku að flytja upp
í Síðumúla þar sem á næstu árum
myndaðist vísir að einhvers konar
„Fleet Street". Þcima vom á mestu
velmektarárunum Tíminn, Þjóðvilj-
inn, Vísir, Dagblaðið, Alþýðublaðið
og Helgarpósturinn. Morgunblaðið
var enn á sfnum stað, í höllinni við
Aðalstrætí.
Það er pínulítill hópur bissnessmanna sem hef-
ur lagt undirsig kvikmyndahúsin hér. Yfirleitt
eru sömu myndirnar sýndar í sölum úti um aii-
an bæ. Þær eru yfirleitt allar amerískar...
Tsr i
Léttgreiðslur
'JB-
bilkohs
- Betri verð!
Smiðjuvegi 34 | Rauó gata | bilko.is | Sími 557-9110
tækifærið!
155/80R13 frá kr. 4.335
185/65R14 frá kr. 5.300
195/65R15 frá kr. 5.900
195/70R15 8 pr. sendib.frá kr. 8.415 J&TöO
ac 6uSSm ******
'Jkiíáufii^unniutnjá.
Burrtvfom C!
Ö«
töitíJMK
Mtjnnnirfr^
En það er svo kátiegt að fjölmiðillinn sem á
sínum tíma fjallaði mest um sprungusvæðið
við Rauðavatn og hættuna við að byggja þar
skuli einmitt velja sér stað, tuttugu og fimm
árum síðar, á sprungusvæðinu
við Rauðavatn.
Egill Helgason
hefurað glugga í
Moggann og
kvikmyndahúsin.
Laugar dagskj allari
Algjört stemmningsleysi í
Síðumúla
Svo flosnaði þetta allt upp. Ég
bind ekki neitt söknuð við það,
eyddi mörgum ámm í og við Síðu-
múlann og get seint sagt að það sé
skemmtileg gata. Þama vom tvær
ljótar og leiðinlegar sjoppur. Hægt
að labba á bjórkrá í Skipholti. Al-
gjört stemmningsleysi. Margt
skemmtilegt fólk vann í hverfinu,
en það hittist aldrei. Flest þessara
blaða fóm á hausinn, DV flutti í hús
við Þverholt en Mogginn var allt í
einu farinn úr bænum upp í
Kringlu.
Dettur Mogginn niður um
sprungu?
Og nú er þetta blað sem eitt sinn
virtist stöðugra en allt sem stöðugt er
í tilvemnni aftur að flytja. Ég veit ekki
- kannski átti það aldrei að flytja úr
bænum? Morgunblaðshöllin er tákn
sem missti merkingu sína. Flestir em
löngu búnir að sætta sig við húsið
þótt það hafi verið stílbrot í byggð-
inni á sínum tíma. En það er svo kát-
legt að fjölmiðillinn sem á sínum
tíma fjallaði mest um spmngusvæð-
ið við Rauðavatn og hættuna við að
byggja þar skuli einmitt velja sér
stað, tuttugu og fimm árum síðar, á
spmngusvæðinu við Rauðavam.
Sjálfur vona ég innilega að Mogginn
detti ekki niður um spmngu - við
getum illa verið án hans.
Lágar einkunnir myndanna í
Lag
bíó
Er hætt að framleiða kvikmyndir
nema fyrir unglinga eða em myndir
fyrir fullorðið fólk einfaldlega ekki
fluttar til íslands? Núna um helgina
er verið að frumsýna þrjár myndir í
bíóunum í Reykjavík. Fréttablaðið
veitir okkur þá ágætu þjónustu að
greina frá dómum sem þessar
myndir hafa fengið fyrir vestan haf.
Surviving Christmas fær 4,5/10 hjá
Intemet Movie Database, 7% = rot-
in hjá Rottentomatoes, 18/100 hjá
Metacritic.com - þetta em fjarska
nákvæmar einkunnagjafir. Saw fær
7,3/10 hjá Intemet Movie Databa-
se, 46% hjá Rottentomatoes, 44/100
hjá Metacritic.com. Paparazzi fær
5,6/10, 30% og 36/100.
Þessar myndir eru rusl
Engum þarf sem sagt að bland-
ast hugur um að þessar myndir
em rusl. Þær ná ekki einu sinni að
slefast yfir falleinkunn. í vikunni
var líka fmmsýnd síðbúin viðbót
úr flokknum um drápshneigðu
brúðuna Chucky í nokkrum bíó-
um borgarinnar. Hún fær eina
stjörnu af fimm í Morgunblaðinu í
morgun, gagnrýnandinn segir að
hún sé „sorgleg lágkúra". Þetta er
semsagt úr-
valið. Það er
pínulítill
hópur biss-
nessmanna
sem hefur
lagt undir sig
kvikmynda-
húsin hér.
Yfirleitt eru
sömu mynd-
irnar sýndar
í sölum úti
um allan
bæ. Þær em
yfirleitt allar
amerískar -
þarf ekki að
taka fram að
ofannnefnd-
ar myndir
em allar það-
an. Stundum
slæðist með
bresk mynd,
en þá er hún
yfirleitt fram-
leidd með
amerískan
smekk í huga,
líkt og serían
um Bridget
Jones.
Myndir
fyrir full-
orðiðfólk
Fyrir tíu
árum skrif-
aði ég um
kvikmyndir.
í vikublað
sem er löngu
dautt. Eitt
árið taldist
mér til að ég
hefði séð 155
myndir. Eig-
endur kvik-
myndahúsa
kveinkuðu sér
oft undan
skrifum mínum, þótt aldrei kæmi
til þess að mér væri ekki hleypt
inn í bíóin. Eftir á sé ég að á þess-
um tíma vom oft ágætar myndir í
bíó, sumar teljast jafhvel klassík
núorðið. Ég nefni Rauðan eftir
BCieslowski, nýsjálensku myndina
Heavenly Creatures, The Piano,
The Shawshank Redemption og
Quiz Show. Allt myndir fyrir full-
orðið fólk.
Hollywood eins og Flórens á
endurreisnartímanum?
Heimspekingur hér í bæ tók til
varna fyrir kvikmyndir og
Hollywood í grein sem hann skrif-
aði fyrir nokkrum árum. Sagði að
einhvern tíma yrði litið á blóma-
skeið Hollywood eins og Flórens
á endurreisnartímanum - sem
tíma taumlausrar sköpunargleði
og mikill krafta sem leystust úr
læðingi. Má rétt vera. En þá má
lika ætla að tími hnignunarinnar
sé runninn upp og að fallið verði
stórt.
Þarf maður að fara til útlanda
til að komast í bíó?
Alltént hefur mig langað í bíó í
marga mánuði en aldrei komið
auga á neina mynd sem ég get
hugsað mér að sjá. Þarf maður
kannski að fara til útlanda til að
komast í bíó? Það væri kannski hug-
mynd fyrir flugfélögin: Icelandair
býður bíóferð til Parísar, London og
NewYork.
KOKKABÓKASTANOUR
KR. 1,900
GLIU OG EOIKSTANOUR
KR, 1,400
BOLLASTANDUR
KR.1.Ó0Ö
VINREKK!
KR. 2,400