Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 Helgarblað DV Helstu myndir Afflecks Surviving Christmas (2004) Það var hart í ári hjá Ben Affleck áður en hann og Matt Damon slógu í gegn með Good Will Hunting. Síðan hefur frægð hans aukist jafnt og þétt og það er ekki síst sambandi hans og Jennifer Lopez að þakka. FjölmiðlaumQöllun um parið var slík að Affleck þarf að hafa fyrir því að minna fólk á að hann er leikari, en ekki bara fjölmiðlafigúra. Ben Affleck leikur í Surviving Christmas sem nú er sýnd í kvik- myndahúsum. sambandi við. Fjölmiðlar gerðu mikið úr sambandi þeirra og þegar myndin fékk hræðilega dóma var sambandi þeirra meðal annars kennt um. Mynd- in var kölluð versta mynd allra tíma og aðsókn hrapaði um 81,9% eftir fyrstu vikuna. Gerð Gigli kostaði 54 milljónir dollara en innkoman var aðeins 6 milljónir. Myndin var tekin úr sýning- um eftir eina viku í Bretíandi. Margir spurðu hvort samband Afflecks við Jennifer Lopez væri að eyðileggja feril hans. Hafði hún fengið hann til að leika í L’Oreal-sjampóauglýsingunni? Var stripparinn sem sakaði hann um kynferðislega áreitni heima hjá Christ- ian Slater bara að reyna að ná sér í peninga? Fjölmiðlafárið náði hámarki þegar tilkynnt var að Affleck og Lopez ætíuðu að gifta sig en hættu svo fljót- lega við allt saman. Affleck lýsti því op- inberlega yflr að h'f sitt væri í rust. Affleck hélt þó áfram að leika í bíó- myndum. Hann lék í Paycheck sem John Woo leikstýrði en tók svo enn og aftur höndum saman við Kevin Smith í Jersey Girl. Sú mynd hefði að lfkind- um gengið vel ef ekki hefði verið fýrir einn mótíeikara Afflecks; Jennifer nokkur Lopez. Aftur voru fjölmiðlar í stuði og þúsundir aðdáenda þeirra stilltu sér upp á götum úti þegar tökur stóðuyfir. Framleiðendur myndarinn- ar voru hræddir við „Gigli-áhrifin” eins og þau voru nú kölluð og reyndu að gera lítið úr hlutverki Lopez í myndinni. Allt kom fyrir ekki og myndin kolféll. Affleck sagði að hann og Lopez myndu aldrei leika saman aftur. Elskar að fá sér í glas Þrátt fyrir alla fjölmiðlaumfjöllun- ina er ekkert sérstaklega mikið vitað um Ben Affleck. Hann elskar mótor- hjól og á fimm slík. Hann reykir Camel Lights og drekkur mikið Diet Coke. Ben er mikill lestrarhestur, og það hef- ur hann fr á móður sinni. Hann er mik- ið fýrir að fá sér í glas, svo mikið að hann skellti sér í meðferð árið 2001. Eftir að upp úr sambandi hans og Jennifer Lopez slitnaði byrjaði hann að spila póker af miklum móð og tók meira að segja þátt í heimsmeistara- mótinu í póker fýrr á árinu. Á næsta ári mun hann svo leika í kvikmynd sem gerist á heimsmeistaramótinu í póker. Ben Affleck elskar vinnu sína en er ekki hrifinn af því hversu litíum tíma hann getur eytt með vinum sín- um vegna hennar. Þar sem honum gekk lengi vel illa að ná sér í fasta kærustu hefur hann eytt talsverðlum tíma og peningum í vinnu að stjórn- málum og mannúðarmálum. Hann tók þátt í baráttu Als Gore gegn Ge- orge W. Bush og hefur haldið fyrir- lestra í Harvard ásamt Damon um hækkun lágmarkslauna. Þeir félagar reka einnig internetfyrirtækið LivePlanet. í dag er Affleck á föstu með Jennifer Garner sem lék á móti honum í Daredevil en hefur einnig gert það gott í þáttunum Alias. Þau hafa haldið sambandi sínu eins leyndu og hægt er sem sýnir að hann hefur eitthvað lært af reynslunni. Affleck þarf ekki að hafa áhyggjur af peningamálunum, hann fékk til dæm- is 12,5 milljónir dollara fyrir Bounce, en vill engu að síður vinna. Helsta vandamál hans þessa dagana er að sannfæra fólk um að hann sé leikari, en ekki bara fjölmiðlafígúra. hdm@dv.is Jersey Girl (2004) Leikarin Benjamin Geza Affleck fæddist 15. ágúst 1972 í Berkeley í Kaliformu en fjölskylda hans fluttist fljótíega til Cambridge í Massachusetts, sem er úthverfi hinna ríku í Boston. Ben á einn bróður, Casey, sem er líka leik- ari. Faðir hans, Tom, var leikari og leikstjóri en móðirin var kennari. Ben kom snemma fram í sjón- varpi. Hann lék í Burger King-auglýs- ingu áður en hann varð tíu ára og tólf ára lék hann í sjónvarpsþáttunum The Voyage of the Mimi. Foreldrar hans skildu þegar hann var 12 ára, aðalástæðan var mikil drykkja Toms. Komst ekki inn í Harvard Draumur Ben um að verða leikari hvarf ekki þótt faðirinn hyrfi á braut. Átta ára gamall hafði hann kynnst Matt Paycheck (2003) Gigli (2003) Daredevil (2003) TheThird Wheel (2002) The Sum of All Fears (2002) Changing Lanes (2002) Jay and Silent Bob Strike Back (2001) Daddy and Them (2001) Pearl Harbor(2001) Bounce (2000) Reindeer Games (2000) Boiler Room (2000) Dogma (1999) Forces of Nature (1999) 200 Cigarettes (1999) Shakespeare in Love (1998) Armageddon (1998) Good Will Hunting (1997) Chasing Amy (1997) Mallrats (1995) Dazed and Confused (1993) Ben Affleck Einn eftirsóttasti leikarinn / Hollywood þrátt fyri nokkra skandala og efasemdir margra um leikhæfileika hans. Damon. í gagnfræðiskóla voru þeir saman í leikhópi sem vann til verð- launa fyrir uppsetningar sínar og þeir félagar stofnuðu saman bankareikn- ing til að eiga peninga þegar þeir færu að ferðast og fara í leikprufur. Metnaðurinn, drifkrafturinn og skipulagningin í sambandi þeirra fé- laga kom ffá Damon. Affleck hafði þegar komið ffam í nokkrum sjón- varpsmyndum en Damon kom á móti með vinnugleðina. Þegar Damon komst inn í Harvard fór skólaferli Affleck að hraka. Hann komst ekki inn í Harvard en fór þess í stað í Háskólann í Vermont. Þar entist hann eina önn og ákvað að hætta til þess að einbeita sér að leikferlinum. Ben vildi fara til Hollywood og móðir hans samþykkti það, að því gefnu að hann byggi hjá vinafólki hennar og héldi áfrarn námi. Ben samþykkti þetta og skráði sig í nám í ffæðum Miðausturlanda. Kevin Smith bjargaði ferlinum í byrjun tíunda áratugarins gekk lítið upp hjá Affleck. Hann fékk hlut- verk í einni mynd eftir sögu Danielle Steele og var körfuboltamaður númer 13 í myndinni Buffý The Vampire Slayer. Svo fékk hann nokkur Iilutverk í sjónvarpi en þetta var ekki nóg. Ben ákvað að reyna fyrir sér í óháðum kvik- myndum. Árið 1992 var Damon hættur í Harvard og fluttur til Affleck í LA. Þeir voru báðir aukaleikarar í Field of Dreams en síðan fékk Affleck lilutverk í hinni ffábæru Dazed And Con- fused. Ákvörðun Af- flecks að færa sig yfir í óháðar kvik- myndir sáu ekki bara til þess Módel Mílanó 3+1+1 verö aóeins 179.000,- stgr gæöahusgögn GP gaeðahúsgógn ehf Bæjarhrauni 12 sími 565 1234 opið alla daga til jóla að hann fékk einhverja vinnu um miðjan tíunda áratuginn, heldur komst hann í samband við þá sem áttu á endanum eftir að koma honum áfram. Árið 1995lékhanníMallrats,mynd Kevins Smith sem hafði þegar gert það gott með Clerks. Smith var svo hrifinn af Affleck í hlutverki framkvæmda- stjóra tískubúðar að hann ákvað að skrifa næstu mynd sína með Affleck eyrnamerktan í aðalhlutverkið. Sú mynd var Chasing Amy sem vakti tals- verða athygli, þó óneitanlega sé hún ein af slakari myndum Kevin Smith. Kraftaverkið Good Will Hunting En það var svoh'tið annað í bígerð. Þegar hann var í Harvard hafði Damon byrjað að skrifa sögu í ensku- tíma, en hafði geymt hugmyndina í ár eða svo. Hann gróf hana upp aftur, ákvað að breyta henni í kvikmynda- handrit og fékk Affleck til að hjálpa sér við skrifin. Þeir skiptust á hugmynd- um uns verkið var tilbúið. Það fékk nafrúð Good Will Hunting. Kvik- myndafyrirtækið Castíe Rock leist vel á handritið og vildi kaupa það, en gegn því að fá listræna stjóm yfir því sem hefði þýtt að handritshöfundamir hefðu ekki fengið aðalhlutverkin. Þama komu nýtilkomin sambönd Affleck til góða. Kevin Smith var hrif- inn af handritinu og sýndi Harvey Weinstein hjá Miramax það. Allt í einu fóm öll hjól að snúast. Robin Wiiliams vildi vera með og sömuleiðis leikstjór- inn Gus Van Sant. Damon og Affleck vom ekki bara komnir með aðalhlut- verkin í eigin mynd heldur vom þeir líka 600 þúsund dollurum ríkari. Armageddon og Pearl Harbor! Good Will Hunting halaði inn 130 milljónir og þeir félagar fengu Óskarinn fyrir handrit sitt. Damon og Affleck urðu stjömur meira að segja áður en myndin var ffumsýnd. Damon fékk aðalhlutverkið í Saving Private Ryan og Affleck í Armageddon sem halaði inn 200 milljónir dollara. Tilboð um hlutverk í stórmyndum streymdu inn og mörgum fannst Af- fleck bæta sig talsvert sem leikari. Hann og Damon léku kolgeggjaða engla í Dogma, mynd Kevins Smith, verðbréfamiðlara í hinni hálfmis- heppnuðu Boiler Room og fyrrverandi fanga í Reindeer Games. Síðan var það Bounce á móti Gwyneth Paltrow og mynd Billy Bob Thomton, Daddy And Them, áður en hann fékk aðalhlut- verkið í stórmyndinni Pearl Harbour. Miklir peningar komu í kassann en myndin fékk hræðilega dóma og það réttilega. Margir litu svo á að Affleck væri bú- imi að vera sem leikari. Hann var hins vegar ákveðinn í að svo væri ekki og sneri aftur með Changing Lanes á móti Samuel L. Jackson sem fékk góða aðsókn. Aftur var honum spáð falli með Sum Of All Fears þar sem hann tók við af Harrison Ford sem Jack Ryan. Myndin sló aftur á móti í gegn, þó fresta þyrfti frumsýningu hennar í kjölfar atburðanna 11. september. Lék í „verstu mynd allra tíma" Ben Affleck lék aðalhlutverkið í Daredevil en svo var komið að flopp- inu Gigli. Þar lék hann á móti A1 Pacino og Christopher Walken en meiri athygli vakti Jennifer Lopez sem Affleck átti um þær mundir í ástar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.