Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Síða 41
 40 LAUGARDAGUR I1. DESEMBER 2004 Helgarblað DV DV Helgarblað LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 200 41 Jakob Bjarnar Grétarsson fylgist áhugasamur með hvernig hinum svokölluðu plöggurum reiðir af í þeim ólgusjó sem jólabóka- og plötuflóðið er. í flest- um fjölmiðlum og þáttum er nú standandi partí en ekki er öllum boðið til veislu. Sumir sleppa inn, aðrir ekki. Hér eru menn metnir eftir því hversu duglegir þeir eru að komast inn í veisluna og hvern- ig til tekst að vekja á sér athygli. Nú er árstíð plöggaranna - þeirra sem fást við það að koma sér og öðrum á framfæri við landslýð. Fljótlega upp úr þessu fer að grípa um sig örvinglan og þeir sem eru að senda frá sér plötu eða bók knýja dyra sem óðir hjá öllum helstu fjölmiðl- um landsins, blaðamönnum, þáttastjórnendum... og selja sig ódýrt. Fyrir viku skrifaði dr. Gunni, pistlahöfundur blaðsins, at- hyglisverða grein, grátbroslega og sjálfshæðna, þar sem hann lýsir því hvernig það er að vera plöggari en dagskrárgerðar- menn vilja ekki tala um neitt nema „skilnaðinn". Dr. Gunni er nú sem útspýtt hundsskinn við að koma sínu Popppunkts- spili á framfæri. Grein sína end- ar hann ákalli: „Á íslandi eru fjórar sjónvarpsstöðvar í fullum rekstri, 16 útvarpsstöðvar, 3 dagblöð og 14 aukablöð sam- hliða þeim, 20 mánaðarblöð sem eru gefin á kaffihúsum, 30 tímarit og 80 landsmálablöð. Samtals koma út 700 bækur og 350 plötur á hverju ári. Hvað búa margir á íslandi? Undir 300.000 manns. Snúum því bökum saman og tökum vel á móti þeim sem þurfa að plögga fyrir jólin." Standandi partí í þessari grein er hugmyndin sú að gefa mönnum einkunn eftir því hvernig þeir hafa staðið sig sem standa í því að koma sinni vöru að. Og stuðst er við meðfylgjandi lista - sem ætti að reynast útgefendum og kynn- ingarstjórum góður tékklisti fyr- ir næstu jól að því tilskyldu að fjölmiðlalandslagið verði svip- að. Þannig gefur til dæmis fullt hús að komast í partíið hjá Gísla Marteini en það skilar engan veginn eins miklu að vera hjá Jóa Fel. svo dæmi sé tekið. Þáttagerðarmenn og fjölmiðlar flestir eru með opið í hálfa gátt, það er partí, og sumir fá að koma inn - aðrir ekki. Þátta- gerðarmenn standa og hleypa hinum frægu inn en hinum ekki. Þannig er innbyggð í þetta ákveðin mótsögn. Catch 22. Menn verða að vera frægir til að komast í partíið - frægðin bygg- ir á því að vera í partíinu. Rétt er að taka fram að vita- skuld er hér ekki um tæmandi lista að ræða en hafi einhver gleymst þá er það hugsanlega vegna þess að sá hinn sami hefur ekki verið að gera miklar rósir við að koma sér á framfæri eða gera sig minnisstæðan. Plögg er vísindagrein út af fyrir sig Að mörgu er að hyggja þegar plögg er annars vegar. Þannig er rétt að kunna „tékklista plögg- arans" utanbókar, mjög gott er að koma sér í fréttir með einum eða öðrum hætti og vera í umræðunni. Og svo er náttúr- lega skurðgröftur á borð við það að standa í búðum og árita, upplestrar, tónleikar og vera sjáanlegur á götum úti. Reyndar umdeilanlegt hversu miklu þetta skilar og þeir menn sem ota sínu fólki um of út í það þykja oft ekki alveg vita hvað þeir eru að gera. Og það er ekki sama hvenær menn eru á kreiki. Ekki má byrja of snemma, þó undirbún- ingurinn verði að hefjast með góðum fyrirvara, og alls ekki of seint. Koma sér á gjafalistana. Sumir gætu til dæmis haldið að gott væri að vera á skjánum á Þorláksmessukvöldi. En þá er enginn að horfa - allir að kaupa þær afurðir þess sem var í sjón- varpinu fýrir viku. Þetta er vísindagrein. Þannig að þó menn fái hér stig sem miðast við „tékklistann" þá skipta aðrir þættir einnig máli. Og menn eiga misjafnlega auðvelt með að ganga í bæinn. 1. Kristján Jóhannsson Tenórinn kom til landsins til að syngja á styrktartónleikum fyrir krabba- meinsveik börn en notaði auðvit- Fað tækifærið og kynnti nýja plötu sína. Ekki þarf að rekja hávaðann og F lætin sem verið hafa í tengslum við Kristján [ að undanförnu. En hann sagði sjálfur í einu iaf ljölmörgum viðtölum að betra væri illt I umtal en ekkert. Kristján skoraði grimmt á 1 þeim stutta tíma sem hann var hér og þeir Skífunni, útgefendur Kristjáns, mega vel I við una. Kristján var hjá Gísla Marteini, í f Kastíjósinu, íslandi í Bítið, Mogganum og svo vitanlega var tenórinn efst á ' baugi umræðunnar í heila viku. 2. Nylon Stúlknaflokkurinn sá býr auðvitað að plöggara dauðans, Einari Bárðarsyni. Hann hefur komið stúlkunum í nánast alla þætti og fjölmiðla sem máli skipta í þessu samhengi: Gísla Martein, Birtu, Fréttablaðið, Séð . og heyrt, 70 mínútur... það hefur enginn landsmaður farið varhluta af Nylon. Og þá er takmarkinu náð. fc:4 - 3. Geröur Kristný Gerður Kristný er með tvær bækur fyrir þessi jólin. Hún þekkir fjölmiðla og útgáfubransann mæta vel og það hefur gagnast henni vel. Auk þess býr hún svo vel að vera gift einhverjum snjallasta plöggara bak við tjöldin, Kristjáni B. hjá Eddu. Gerður flaug sem gestur í aðalpartíið hjá Gísla Marteini, hún fór létt með að segja þeim Birtustelpum hvernig forsíðuviðtalið við sig ætti að vera og meira að segja Jónatan Garðarsson í Mósaík fór með kvikmynda- tökumanni og fylgdist með Gerði lesa upp j. fyrir gamla fólkið. Glæsilegt. 6. Þráinn Bertelsson Hann hefur vitanlega þá JPV-feðga (les1 Corleone-feðga) á bak við sig. Þegar spurð-’ ist að bók hans, Dauðans óvissi tími, væri lyk-^ ilróman, tímasprengja sem lögfræðingurinn', Ragnar Aðalsteinsson hefði lesið til að ekki kæmil til meiðyrðamála, sendu fjölmiðiarnir Þráni^ boðskort í gleðina - hann þurfti ekki að standa íl röð. Og það má heita snilldarleg markaðssetning. 7. Birgitta Haukdal Birgitta hefur sennilega gengið einna lengst ailra þeirra sem hér eru nefndir með því að gerð hefur verið af henni dúkka sem var opinberuð landi og þjóð hjá Gísla Marteini. Þessi dúkka ætíar reyndar að reynast hið mesta ólíkinda- tól: Þykir líkari Ruth Reginalds, Dorrit eða jafnvel Jóhannesi í Bónus en Birgittu sjálfri. En kannski einmitt það hefúr fleytt Birgittu í umræðuna og vel það. Og til þess er leikurinn gerður. Mjög frumlegur og góður leikur. 8. Njöröur P. Njarövfk Þessi prófessor er gamaU í hett- unni en þrátt fyrir það hefur hann komið verulega á óvart með góðum hreyfingum á dansgólfi markaðs- torgsins. Hann hefúr bæði komið fram í Birtu, hjá Sirrí og í Kastíjósinu svo eitthvað sé nefnt og rætt um sína fínu bók, Eftirmál. Og það færir hon- um ófá stigin. 4. Ólafur Jóhann ólafsson Þessi sonur íslands hefur náttúrlega minna fyrir sínu plöggi en flestir aðrir. Votasti draumur sérhvers plöggara er auðvitað að koma til Gísla Marteins. Ólafur Jóhann gerði gott betur - Gísli Marteinn kom til hans alla leið til New York! Geri aðrir betur. 5. Sammi og Jagúar Kyntáknið Sammi hefur bæði verið hjá Marteini þar sem hann söng með Harry Belafonte sem og svolgrað í sig ógeðisdrykk í 70 mínútum. Allt þetta telur. Auk þess hefur hann verið í ófáum blaðaviðtölum. Þeir Jagúardrengir hafa verið mjög duglegir að koma sér og sínum nýja diski á fram- færi - staðið sig verulega vel og eiga skilið að komast á þennan lista. 9. Þorgrímur Þráinsson Þorgrímur Þráinsson er fyrirtaksplöggari og veður í þau verk eins og alit annað sem hann tekur sér fyrir hendur. Þannig var eftirminnilegt forsíðuviðtalið við Birtu og þar var gert betur því að í sama tölublaði og forsíðuviðtalið var í var jafnframt birt heilsíðuauglýsing fýrir hans nýjustu bók. Þorgrímur er alls stað- ar aufúsugestur, hjá Jóni Ársæli sem varð ástfanginn af þessum heilbrigða manni, ísland í bítið hefur notið heimsóknar hans og harðduglegur fer hann um víðan völl og les upp úr bók sinni. Þá er forvitnileg sagan um miðilinn sem leitaði til Þorgríms með það erindi að ffamliðin stúika fengi ekki frið fyrr en hann skrif- aði sögu hennar. Mjög gott. 10. Dr.Gunni Gunnar L. Fljálmarsson á skilið að komast á þennan lista með sitt Popppunktsspil þó ekki sé nema bara fyrir að hafa greint frá þrautargöngu sinni á hinni vinsælu blogg- síðu sem hann heldur úti. Svo tókst honum að komast á forsíðu Birtu sem má heita gott... farið um rófulaus hundur... meira að segja dúkkaði hann upp hjá Bingó-Villa á Skjá einum. Og svo fýrir það sem er innbyggt í1 þessa tilteknu umfjöliun - að kom- ast á topp tíu listann. Vitanlega hafa ýmsir aðrir sýnt góða frammistöðu þessa vertíðina með dugnaði og útsjónarsemi við að vekja á sér athygli. HljómsveitinÁ móti sól kom til dæmis fram hjá Gísla Marteini ásamt Gerði G. Bjarklind, Mugison er músin sem læðist því maður veitir því vart athygli hversu mikið plögg er þar í gangi, Halldór Guðmundsson tók upp á því að hand- leggsbrjóta sig, Bubbi Morthens er náttúr- lega þrautþjálfaður plöggari, Margrét Eir var mjög sæt og skemmtileg hjá Gísla Mart- eini sem og Davíð Þór Jóns- son sem smellti sér á forstíðu Séð og heyrt eins og ekkert væri. Hall- grímur Helgason er reyndar ekki með neitt sérstakt til að plögga en hann var þó aðal í salnum þegar tilnefningarnar til bókmenntaverðlaunanna voru gerðar opin- berar. Idolstjörnurnar Kalli Bjarni og Jón Sig. voru hins vegar ekki að skora mikið þegar þeir voru hjá Jóa Fel sem spilaði tónlist þeirra undir borðum - dinner- músík? Erpur Eyvindar- son er duglegur einnig en það er kannski ekki beint fyrir rapparann að vera hjá.Gísla Marteini eða í Birtu. Hann var hins vegar á forsíðu F2. Eiríkur örn Norðdahl gerði sér lítið fyrir og smellti sér í Silfur Egils sem má heita gott. Sigmundur Ernir birtist í opnuvið- tali í Fréttablaðinu þar sem hann er fréttastjóri, Guðmundur Sesar fór of fljótt af stað með sitt handrukkara- Plögg og þær Lárusdætur hituðu upp í Birtu en eiga án efa eftir að vera úti um allt þegar nær dregur jólum - enda ein- staklega jólalegar. Þannig má áfram teija en látið gott heita í bili. n □ □ D Meðfylgjandi er iisti yfir menn sem ýmist ota sínu fólki út á foraðið og/eða greiða leið þeirra að fjölmiðlunum. Þetta em mennirnir á bak við tjöldin og þeirra verk dæmast vitanlega af því hvernig til tekst að koma þeirra fólki á framfæri. Vitanlega em það sölutölurnar sem em stóri dómurinn þegar upp verður staðið. En þær em ekki fyrirliggjandi á þessu stigi. Næsti hálfi mán- uður mun skera úr um það hvernig til tókst. Þær kenningar em til sem snúa að því að hægt sé að halda listamönnum um of að fólki. Að almenningur fái einfaidlega nóg af viðkomandi. Nánast ógeð. Og því þurfi að aka seglum eftir vindi. Eða eins og sagt er á ensku: Less is more. Þannig hef- ur Arnaldur Indriðason rithöfundur, sem selur sínar bækur í bílförmum, ávaiit forðast það að vera í viðtölum. En þeir menn sem hér em nefndir em sennilega fæstír á því að sú sé rétta leið- in. Því meira því betra. Og í því Ijósinu ber að meta árangur þessara sem hér em nefndir. 1. Eínar Bárðarson ... hefur fyrir margt löngu getið sér orð sem einhver mesti plöggari sem þetta land hefur séð. Og hann þekkir tékklistann. Nylonflokkurinn hefur farið fetað þá slóð ömgg- lega. Hæsta hendin, rappið hans Erps, er einnig á vegum Einars. Allt plögg leikur í höndum Einars sem er ein- hver sá ósínkasti á afurðir síns fólks þegar þeir sem hann sér sér einhvem hag í að hafa góða em annars vegar - hvort heldur em boðsmiðar á tónleika og uppákomur eða plötur og bækur. Þetta hétu náttúrlega mútur ef samhengið væri annað. Nokkuð sem óvanur plöggari áttar sig ekki ailtaf á. 2. Egill öm Jóhannsson ... hjá JPV útgáfunni. Karl faðir hans, JPV sjálfur, hef- ur löngum þótt einhver allra eitraðasti í bransanum hvað það varðar að mótivera fjöi- miðla til að fjalla um þær bækur sem hann gefur út. Og Egill öm fetar ömggum skrefum í fótspor hans. Þetta er svona svipað og Michael og Vito Corleone. Lýsandi dæmi gæti verið öli sú um- ræða sem þeir vöktu afar fagmannlega í tengslum við bók Þráins Bertelssonar. 3. Kristján B. Jónasson ... kynningarstjóri Eddu hefur verið lengi í brans- anum og er alveg eitur- snjall plöggari. Hann þekkir fjölmiðla og opnar augu partíhaldar- anna (blaða- og dagskrár- gerðarmanna) fyrir því að þessi og hinn hafi það sem til þarf að bera til að gera gleðskapinn gleðilegri. Hann er svo giftur Gerði Kristnýju sem er ofarlega á blaði yfir öfl- ugustu plöggarana. Að baki hverrar konu... Ekki er að efa að þar hefur Kristján lagt sitt lóð á vogarskálamar og hefur staðið sig vel þessa vertíðina: Ólöf Eskimói, Baggaiútsdreng- ir, Stefán Máni, Eiríkur örn og Þorsteinn Guðmundsson em meðal margra sem hann hefur bókað hér og þar við góða lukku. 4. Höskuldur Höskulds- son ... hjá Skífunni hlýtur að komast á þennan lista þó ekki sé nema fýrir það eitt að vera maðurinn á bakvið Kristján Jóhannsson. Glæsileg frammistaða. Að auki em Höskuldur og hans menn hjá Skffunni með fjölda annarra listamanna á sínum snæmm sem fljúga í fjölmiðlagleðina fýrirhafiiarlítíð. En Skífan hef- ur reyndar löngum þótt í ein- stakri aðstöðu til að koma sínu fólki að, til dæmis á Bylgjunni, en í það partí er reyndar sér- lega auðvelt að komast. 5. Óttar Felix Hauksson ... er höfðupaur Sonet-út- gáfunnar og er meðal annars með Hljómana á sínum snær- um, að ógleymdri ítölsku fyrmrn bamastjömunni Robertino. Virðist á stundum sem hann vanræki Keflvísku bítlana þegar Robertino er annars vegar. En Óttar á yfirleitt ekki í nokkmm vandræðum með að koma sínu fólki að í þessi partí sem nú standa yfir á fjölmiðl- unum. Þó svo að Óttar eigi ekki skjólstæðing á topp tíu listanum hér verða Hljómamir hjá Gísla Marteini í kvöld sem má heita góð tímasetning. Ýmsa aðra mættí nefna, menn á bak við tjöldin, en ekki er svigrúm til þess. Svo eru aðrir sem ekki hafa átt góðan leik að þessu sinni. Jón Gunnar Geirdal til dæmis sem hefur meðal annarra Kalla Bjarna á sín- um snærum. Þó svo að Kaili Bjarni hafi komið víða fram þá hefur hann verið í auka- hlutverki frekar en að vera aðal: Hjá Jóa Fel. og Völu Matt. Hér er Jón Gunnar dæmdur út frá því að vera með sjálfa Idolstjömuna í höndunum. Annar sem hefur síður en svo staðið sig er Jón Karl Helgason hjá Bjartí. Honum tókst til dæmis ekki að koma Braga Ólafssyni að á sjálft markaðstorgið - tilnefn- ingu til bókmenntaverðlaunanna. Þær til- nefriingar eiga vitaskuid ekkert skylt við bók- menntír heldur em plögg í sinni tæmstu og ósvffnustu mynd. Jón Karl virðist láta það bögglast fyrir sér að bókmenntir og markað- urinn eigi fátt eitt ef nokkuð sameiginlegt. En ekki tjóir að tvístíga á þeirri línunni ef menn vilja ná í gegn. Kastljósið ísland í dag \ Vala Matt Séð og heyrt Morgunblaðið 70 mínútur Silfur Egils 1 Tvíhöfði m fn % Bingó Villa Tímarit Morgunblaðsins %■■■•" Mannlíf i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.