Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Qupperneq 48
Helgarblað DV
;\N^S
e C' ^
M fi*. ^
^ H ^ t,
&&&%
3 8 ® *
Saga ráðherranna okkar, frá Hannesi Hafstein
til Davíðs Oddsonar, er sannarlega ómissandi
bók ðllum sem hafa áhuga á pólitík og sögu.
Umdeild en fróðleg. Dæmið af eigin raun.
ÐLAUMABQK
í loftinu lýsa stjömur fékk August-
verðlaunin 2003 sem í Svíþjóð ganga
næst sjálfum Nóbelsverðlaununum.
Sjaldan eða aldrei hefur verið skrifuð
áhrifameiri unglingabók en höfund-
urinn, Johanna Thydell, er aðeins
24 ára gömul. Verðlaunabók sem
lætur engan ósnortinn
Árni Magnússon er krossfari í Landinu helga
og borgarstjóri í Gaza. Hann er Al Ghouti.
Blóðugir bardagar eru háðir.
Óvinurinn er sjálfur Saladin.
Musterissriddarinn heldur lesandanum
rígbundnum til seinustu blaðsíðu.
VERÐLAUNABQK
Spennandi, vel skrifuð og fléttan ein-
staklega vel úthugsuð, enda var Týnd
valin besta norræna glæpasagan.
.Þessi bók tekur al öll tvímæli um
frábæra hæfileika Alvtegen ..."
The Quardian
spennan eins og hjá Hitchcock ...'
Vouge
YNDISLEC BOK
Tilsvörum barna og athugasemdum þeirra
um lífið og tilveruna hefur hér verið
safnað á einn stað.
Hve glöð er vor aeska, dásamleg bók
um heiminn eins og börnin okkar
sjá hann.
DULRÆNIR ATBURÐIR
Hvernig skal útskýra það sem henti
útvarpskonuna, Önnu Kristine,
efahyggjukonuna Ragnheiði Tryggva-
dóttur, Sverri Hermannsson eða
Unu Sveinsdóttur sem fékk að velja
á milli lífs og dauða?
Dýrmæt reynsla, einstök bók um
yfirskilvitlega atburði.
SPENNUBÆKUR
UNCHNCANNA
Brad Pitt var hinn guðdómlegi Akkilles,
Eric Bana var Hektor og Orlando Bloom
lék París. Stríðið um Trójuborg segir frá
þessum grísku hetjum og baráttu þeirra
um Helenu fögru.
Einstaklega spennandi.
72-
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Þaö er liðin tíð að bankaræningjar í Bandaríkjunum séu ein-
tóm hörkutól sem sveifla byssum og gera hvað sem er til að
gjaldkerarnir tæmi skúffurnar fyrir þá. Nú virðist hver sem
er geta rænt banka. Hin góðhjartaða Pamela Kaichen er gott
dæmi um það.
Ljóshærð Bonnie sem
bupfli engan Clyde
Lögregla lýsti henni sem nútíma
Bonnie, sem var of frjáls til að þurfa
á nokkrum Clyde að halda. Hún var
einnig kölluð „Fótboltamamman
sem varð glæpamaður” og „Ljós-
hærði bankaræninginn” þar til að
lögregla uppgötvaði að hún var með
hárkollu.
Konan dularfulla þótti ótrúlega
róleg þegar hún rændi tvo banka á
tveimur dögum í úthverfí New York-
borgar á síðasta ári. Hún sagði þetta
við gjaldkerann í einum bankanna:
„Ég missti ástvin í Tvíburaturnunum
11. september. Þetta hefur verið
hræðilegur tími, ég er viss um að þú
skilur það. Vertu nú væn og settu
alla peningana úr efstu skúffunni í
töskuna. Eg er með byssu í hægri
hönd en ég vil helst ekki þurfa að
nota hana. Þakka þér fyrir.”
Sex bankarán á tveimur dög-
um
Eftir að gjaldkerinn og samstarfs-
maður hans tæmdu fjórar skúffur
sagði ræninginn starfsfólkinu að
hringja ekki á lögreglu næstu fimm
mínúturnar, ellegar kæmi hún aftur
og myndi nota byssuna.
Daginn áður en Pamela var
handtekin hringdi hiin f dagblað í
Connecticut til að leiðrétta rang-
færslur í frétt þeirra af ránunum. „Ég
var ekki með neina byssu, ég myndi
aldrei meiða neinn. Ég hef eytt stór-
um hluta lífs míns í að hjálpa öðr-
um,“ sagði hún f símtalinu. Ræning-
inn lýsti sjálfum sér sem „fótbolta-
mömmu sem ætti tvö börn”. Hún
sagðist hafa framið ránin til að
hjálpa fátæku fólki í New York.
En hver var þessi góðhjartaði
ræningi? Þegar lögregla fann
konuna á endanum kom í Ijós að
hún hét Pamela Kaichen. Hún var 43
ára og hafði komið að góðgerðar-
málum áður en hún gerðist glæpa-
maður og útlagi. Pamela játaði að
hafa rænt sex banka í finurn úthverf-
umNewYork.
Sjálfboðaliði á Ground Zero
Þessir verknaðir pössuðu ekki við
þá Pamelu sem fjölskylda og vinir
þekktu. Hún kom fyrir sem góð-
hjartaður einfari sem elskaði hesta
og lagði sig fram um að hjálpa bág-
stöddum. „Hún getur ekki verið
Sakamál
glæpamaður," sagði Cheryl Wood-
man, nágranni Pamelu. „Hún var
sérfræðingur í hestum. Ég vissi að
hún átti í peningavandræðum í
tengslum við markaðsfýrirtækið
sem hún stofnaði en ég tnii ekki að
hún hafi rænt banka. Reyndar, þeg-
ar ég hugsa um það, þá tnii ég því
varla að þetta markaðsfýrirtæki hafi
nokkurn tíma verið til. Hún sagðist
oft vera að fara í viðskiptaferðir en
svo sá maður hana í bænum daginn
eftir.“
Eftir árásirnar á World Trade
Center starfaði Pamel sem sjálf-
boðaliði í rústunum í sex mánuði.
Yfirmaður hennar þar, Debra
Jackson, sagði að Pamela hefði gert
allt sem hún var beðin um. „Hún
sagði að hún hefði misst einhvern í
árásunum og ég trúði henni. Hún
sagðist þó ekki vilja tala um það,
hún vildi bara hjálpa. Það líkaði öll-
um vel við hana, hún var svo hjálp-
söm.“
Bjó á lélegu gistiheimili
En þessar sögur Pamelu reyndust
ekki sannar, hún hafði engan ástvin
misst þann 11. september. Um þetta
leyti var hún í fjárhagsvandræðum,
sagði leigusala sínum að eiginmaður
viðskiptafélaga síns hefði stolið
spamaði sínum. „Hún var svo miður
sín að maður komst ekki hjá þvf að
kenna í brjósti um hana,“ sagði
leigusalinn, Carol Halperin.
„Hún var góður leigjandi, borg-
aði á réttum tíma og var hljóðlát. Eg
treysti henni fyrir heimih mínu þeg-
ar ég fór í frí. Hún var vel máli farin
og sagðist vera með gráðu frá Yale,
ég skil ekki hvemig þetta gat gerst.
Þegar hún flutti úr íbúðinni sagði
hún mér að hún væri búin að fá aðra
íbúð en ég komst að því að hún væri
flutt inn á lélegt gistiheimili. Líf
hennar hefur væntanlega bara hald-
ið áfram að versna eftir þetta," sagði
leigusahnn.
Sektuð á flótta frá bankaráni
Þann 22. maí á síðasta ári var lög-
regluþjónninn Paul Carroccio við
vinnu sína sem fólst í því að kanna
bílbeltanotkun ökumanna í smá-
bænum Danbury. Um klukkan 10
Pamela Kaichen Rændisex banka á tveimur
dögum og sagðist ætla að gefa fátæku fólki í
New York ránsfenginn.
fýrir hádegi stöðvaði hann konu sem
var ekki í bílbelti. Hann sektaði hana
og sagði henni að spenna beltið í
framtíðinni.
Ekkert virtist óvenjulegt þar tU
lögregluþjónninn kom sér letilega
fyrir f sófanum heima um kvöldið og
horfði á fréttir í sjónvarpinu. Þar
vom sýndar myndir úr eftirlits-
myndavél í bankanum sem Pamela
hafði rænt um morguninn. Hann sá
strax að þetta var konan sem hann
hafði sektað. Hún var með afar há
kinnbein og grannt nef og Carroccio
var ekki í neinum vafa. Hann keyrði
strax á lögreglustöð, fann sektar-
miðann og kom honum tU rann-
sóknarlögreglumannanna sem vom
með máUð, en þeir fóm með hann
tU Alríkislögreglunnar.
120 árafangelsi
Pamela var handtekin 27. maí í
fýrra á pósthúsi sínu án mótspyrnu.
Hún leiddi lögreglu í leiguherbergi
sitt þar sem fundust ljós hárkoUa og
taska með rúmum 43 þúsund doU-
urum í. Yfirvöld uppgötvuðu að hún
hafði tvisvar verið dæmd fyrfr búða-
hnupl en það var aUt og sumt.
Pamela játaði strax á sig bankaránin
sex. EkH hefur enn verið dæmt f
máU hennar en hún gæti átt von á
aUt að 120 ára fangelsisdómi. Það
hefur væntanlega tafið málið nokk-
uð að mikið er deUt um hvort beita
eigi ströngustu refsingu tU að setja
öðmm fordæmi, eða gefa henni færi
á að takast á við augljós vandamál
sín.