Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2004, Page 75
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 7 7. DESEMBER 2004 75
Cliff hreinsar
kúnnana út
Eigendur kráa á Bret-
landi hafa fundið bestu
leiðina til að losna við gest-
ina á lokunartíma nú fyrir
jólin. Og það er einfalt,
setja lag með Cliff Richard
á fóninn og liðið streymir
út. Gerðar voru tilraunir
með ýmis lög. Topplag Cliff
frá árinu 1988, Mistletoe
and Wine, reyndist lang-
best til að fá kúnnana til að
klára úr glösum sínum og
yfirgefa staðinn. „Það eru
engin jól án Cliff en þetta
lag hans fær virkilega gesti
okkar til að klára úr glösun-
um og flýja staðinn," segir
John Barras, talsmaður eig-
endanna.
Stálu
stefnuljósi
Bíræfhir afbrotamenn
stálu hægra ste&iuljósinu
af Mercedes Benz-bíl við
Starmóa í Njarðvík að-
faranótt fimmtudagsins.
Ekki er vitað hveijir voru
þar á ferðinni eða hvert
þeir stefiidu eftir verknað-
inn. Líklegt er að mönn-
unum verði stefnt fyrir
dómstóla ef í þá næst.
Afríkumenn
heimsóttu
leikskóla
Sendinefnd frá Malaví
heimsótti leikskólabörn og
kennara í Lækjarborg á
dögunum til að kynna sér
leikskólamál á íslandi.
Leikskólinn hefur undan-
farið unnið að þróunar-
verkefni um fjölmenningu í
leikskólum. Það voru fram-
andi og góðir gestir sem
kynntu sér starfsemina á
Lækjarborg, við miklar
undirtektir barnanna.
Leitar að
rektor
Embætti rektors Há-
skóla íslands er laust tii
umsóknar. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra leitar
að góðum kandídat í starfið
til fimm ára, eftir að Páll
Skúlason heimspekipró-
fessor ákvað að beina kröft-
um sínum í aðrar áttir. Þor-
gerður á að skipa rektor
samkvæmt tilnefningu há-
skólaráðs 15. mars, en
hann starfar í umboði þess.
Aðeins prófessorar eða
dósentar við háskólann
mega verða rektor.
Stefán Jón Hafstein segir jólaboð menningarmálanefndar hafa verið ódýrt en 12
manns nutu veitingana sem Sigurveig Margrét Jónasdóttir eldaði heima hjá sér
fyrir fólkið. Boðið var upp á kavíar, kampavín, kökur og pottrétt. Stefán Jón segist
vera hagsýnn. Því hafi kostnaður verið í lágmarki.
Menningarmálanefnd Reykjavíkur var með jólafund í vikunni
þar sem nefndin bauð gestum sínum í jólamat. Stefán Jón Haf-
stein segir eðlilegt að nefndin bjóði mat á fundum sínum. Hann
segir það tíðkast að hafa mat á nefndarfundum hjá borginni fari
fundirnir fram á matmálstíma. Nefndin ákvað að bjóða fulltrú-
um Rithöfundasambands íslands, sem þáðu veitingar með
nefndinni auk þess sem blaðamaður frá Morgunblaðinu fékk að
njóta matar með nefndinni.
„Okkur þótti viðeigandi að bjóða
fulltrúum Rithöfundasambandsins í
mat þar sem þeir höfðu boðið okkur
að halda fundinn í sínu húsi. Við
þökkuðum
m 8BS fyrir
okkur með þessum hætti," segir
Stefán Jón. Hann segir ekki hafa ver-
ið bruðlað með matinn, sem var
ódýr, keyptur af Sigurlaugu Margréti
Jónasdóttir útvarpskonu sem eldaði
pottrétt heima hjá sér og kom með í
matarboðið.
Ódýrara en Pizza 67
Signý Pálsdóttir segir að
Sigurlaug hafi verið fengin til þess að
elda þar sem hún búi skammt frá
húsi Rithöfundasambandsins við
Dyngjuveg í Laugarásnum.
Tólf manns nutu matarins og var
boðið upp á rauðvín með matnum.
„Þetta var eins ódýrt og hægt er
að hugsa sér. Hefði sennilega verið
dýrara að fara með fólkið á Pizza
67,“ segir Stefán Jón. Sjálfur sé hann
hagsýnn og sparsamur að eðlisfari:
„Þetta var gert í anda hinnar hag-
sýnu húsmóður sem ég reyni að
vera,“ segir hann.
Fjölmiðlafólk á óskalista
skrópaði
Stefán Jón lætur vel af matargerð
útvarpskonunnar Sigurlaugar, sem
bauð upp á þríréttaða máltíð fyrir
menningarfólkið. í forrétt voru g/Q V&tG,
lummur með kavíar, aðalrétt
kjúklingapottréttur og í eftirrétt
frönsk súkkulaðikaka. Stefán segir
kostnaðinn hafa verið um 2.000
krónur á mann.
Stefán segir að auk gesta frá Rit-
höfundasambandinu hafi nefndin
ákveðið að bjóða fjölmiðlafólki til
veislunar. Enginn á upphaflega
gestahstanum hafi þekkst boðið.
Morgunblaðsmaður þrauta-
lending
„Við ætluðum að bjóða fólki úr
ljósvakamiðlum sem fjalla um
menningu á einhvern hátt,"
segir Stefán. Hann hafi æúað
að bjóða ríkisfjölmiðla-
mönnunum Jónatani Garð-
arssyni úr Mósaík, Eirfki
Guðmundssyni úr Víðsjá og
Hjálmari Sveinssyni úr
Speglinum. Enginn þeirra
hafi séð sér fært að mæta
hinnar hagsýnu hús-
móðut sem ég reyni
þannig að ákveðið hafi verið að
bjóða Bergþóru Jónsdóttir, blaða-
manni af Morgunblaðinu, í stað-
inn. „Við buðum til okkar gestum
sem við vildum ræða við,“ segir
formaður menningarmálanefndar.
freyr@dv.is
Sigurlaug eldaði kjúklinga-
pottrétt Stefán Jón bauð nefnd-
inni og gestum í veislu ÍGunnars-
húsi sem Rithöfundasamband ís-
lands lánaði.
Stefan Jón Hafstein Formaður
menningarmáianefndar segist ekki
bruðla með skattfé borgarbúa
heldur kaupa ódýr veisluföng fyrir
gestaboð nefndarinnar.
Fólk getur misnotað þráðlaus netkerfi nágranna sinna ef þau eru ekki rétt sett upp
Nágrannar misnota
þráðlaust net
Pétur Pétursson, for-
stöðumaður Og Voda-
fone „Það getur fallið
tatsverður kostnaður á
fólk ef það vararsig ekki."
Þeir sem setja upp þráðlaus net-
kerfi á heimilum sínum án þess að
stilla inn lykilorð geta átt von á því að
óprúttnir nágrannar fari inn á þeirra
kerfi. Tjónið getur numið tugþús-
undum króna því afar dýrt er að
hlaða niður efni af erlendum heima-
síðum. Forstöðumaður Og Vodafone
segir sérstakt átak á döfinni til að vara
fólkvið.
„Ef búnaðurinn er ekki settur upp
á réttan hátt er hann aðgengilegur
fyrir alla," segir Pétur Pétursson, for-
stöðumaður Og Vodafone. „Fólk
verður að passa upp á að aðgangs- og
lykilorð séu virk. Annars er kerfið
opið fyrir misnotkun."
Þráðlaus netkerfi em sögð verða
vinsælli með hverjum degi. Nýjustu
gerðir ná yfir stærri svæði en áður, jafh-
vel yfir götur og í fjölbýlishúsum getur
þráðlaust kerfi náð yfir nokkrar hæðir.
DV setti upp fartölvu með þráð-
lausu netkerfi í fjölbýlishúsi í mið-
borg Reykjavfkur. Undir eins var
hægt að velja á milli þriggja mismun-
andi netkerfa til að fara inn á. Aðeins
eitt af þeim var læst með lykilorði. Á
hinum tveimur var hægt að hlaða
niður efni að vild.
Pétur segir að fyrstu þráðlausu
netkerfin hafi komið án lykilorðs.
Notendur hafi hins vegar fengið ítar-
legar leiðbeiningar um hvemig eigi
að setja lykilorðið upp.
„Við höfum vakið athygli fólks á
þessu í leiðbeiningum," segir Pétur.
„í dag erum við svo byrjaðir að selja
allan búnað uppsettan með að-
gangstakmörkunum og ætlum að
vekja frekari athygli með því að
senda leiðbeiningar á alla við-
skiptavini."
Pétur játar því að ef óprúttnir
tölvuþrjótar komist inn í kerfin geti
þeir valdið töluverðu tjóni. ísland sé
eina landið í Evrópu þar sem borga
þurfi sérstaklega fyrir að hlaða niður
efni af erlendum síðum.
„Það getur fallið talsverður kosm-
aður á fólk ef það varar sig ekki," seg-
ir Pétur. „Ég ætla ekki að reyna að
draga dul á það."
simon@dv.is