Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Side 66
REIKISTJORNURNAR 1997
Teikningin á næstu síðu sýnir hvenær björtustu reikistjörnurnar eru í
hásuðri að sönnum sóltíma árið 1997. Sólin er alltaf í hásuðri kl. 12 að
sönnum sóltíma hvar sem er á landinu, og ferill hennar fylgir því jaðri
myndarinnar (hægri eða vinstri jaðrinum sem báðir eru merktir með
„12“ og eru í rauninni sama línan). Á myndinni kemur fram hvaða af-
stöðu reikistjörnurnar hafa hver til annarrar á himinhvolfinu og hvar
þær eru miðað við sól. Þegar stjörnur eru vinstra megin á myndinni eru
þær á morgunhimni, en þegar þær eru hægra megin eru þær á kvöld-
himni. Á myndina hafa verið dregnar línur til að gefa vísbendingu um
hvenær auðveldast sé að sjá reikistjörnurnar. Er það á þeim tveimur
svæðum sem merkt eru „dimmt“ á myndinni. Á svæðinu sem merkt er
„bjart“ eru reikistjörnurnar annaðhvort mjög nærri sól (innan við 45
mínútur í stjörnulengd) eða þær koma ekki upp í Reykjavík meðan
dimmt er. Ef markalína svæðanna er sýnd sem brotin lína merkir það
að einhver reikistjarnanna sést betur eða verr en ætla mætti af afstöðu
hennar til línunnar.
Ef við viljum t.d. vita hvaða reikistjörnur muni sjást í september-
mánuði lítum við á þann reit sem liggur þvert yfir kortið og afmarkast
af stöfunum SEP til hægri og vinstri. Þá sjáum við að Iengst til vinstri,
þ.e. á morgunhimninum næst sól, er Merkúríus. Hann sést þó ekki í
byrjun mánaðar því að þá er hann of nærri sól, á svæðinu sem merkt er
„bjart“. Lengra til hægri, á næturhimninum, sjáum við Satúrnus og síð-
an Júpíter. Á kvöldhimninum lengst til hægri eru Mars og Venus, en
þær reikistjörnur eru á bjarta svæðinu og sjást því tæpast. Við hægri
jaðar myndarinnar erum við aftur komin að sól.
Á eftir hverjum mánuði í dagatalinu (á bls. 7, 11 o.s.frv.) eru töflur
sem eiga að gera mönnum auðveldara að þekkja björtustu reiki-
stjörnurnar. Skýringar við töflur þessar er að finna á bls. 3. í töflunum
er hæð yfir sjóndeildarhring tilgreind í gráðum sem reiknast frá 0 við
sjónbaug upp í 90 í hvirfilpunkti. Ef reglustiku er haldið lóðrétt í út-
réttri hendi svarar hver sentimetri nokkurn veginn til einnar gráðu á
himninum.
Þótt fyrrnefndar töflur miðist við Reykjavík má yfirleitt nota þær
annars staðar á landinu án mikillar skekkju. Tölurnar sem sýna hvenær
reikistjörnurnar eru í hásuðri verður þó að leiðrétta um 4 mínútur fyrir
hverja gráðu sem munar á lengd staðarins og lengd Reykjavíkur (bæta
við ef staðurinn er vestar en Reykjavík en draga frá ef hann er austar).
Til frekari glöggvunar fer hér á eftir mánaðarlegt yfirlit um stöðu
þessara björtustu reikistjarna eins og þær munu sjást frá Islandi á árinu
1997. Stjörnurnar eru (talið frá sól): Merkúríus, Venus, Mars, Júpíter
og Satúrnus. Á eftir þessu yfirliti er svo fjallað sérstaklega um hinar
daufari reikistjörnur sem eru lengra frá sól: Úranus, Neptúnus og
Plútó.
(64)