Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Síða 130
stórsvigi, Alpatvíkeppni og samhliðasvigi og vann þannig
fern gullverðlaun. Daníel Jakobsson (Ólafsfirði) vann
þrenn gullverðlaun, Auður K. Ebenesersdóttir (ísafirði) og
Hlynur Þorsteinsson (ísafirði) unnu hvort um sig tvenn
gullverðlaun, öll í göngu. Kristinn Björnsson (Ólafsfirði)
sigraði í stórsvigi karla, Arnór Gunnarsson (ísafirði) í svigi
karla og Vilhelm Þorsteinsson (Akureyri) í samhliðasvigi.
Smáþjóðaleikarnir. íslendingar fengu 33 gullverðlaun, 17
silfurverðlaun og 28 bronsverðlaun á smáþjóðaleikunum,
sem haldnir voru í Lúxemborg um mánaðamótin maí-júní.
Sundfólkið var að venju sigursælast, og unnu Eydís Kon-
ráðsdóttir og Arnar Freyr Ólafsson sjö gullverðlaun hvort.
Frjálsíþróttafólkið fékk alls 25 verðlaun.
Sund. Sundmeistaramót Islands innanhúss var haldið í
Vestmannaeyjum í marz. Eydís Konráðsdóttir (Keflavík)
setti þrjú íslandsmet. Þau voru í 100 m baksundi 1:04,00, 200
m baksundi 2:18,58 og 100 m flugsundi 1:03,68. - Sundmeist-
aramót íslands utanhúss var í Laugardalslaug í júlí. Magnús
Konráðsson (Keflavík) vann bezta afrek mótsins með því að
synda 100 m bringusund á 1:05,72. Arnar Freyr Ólafsson var
sjöfaldur fslandsmeistari. Kvennasveitir Ægis settu met í
4x100 m skriðsundi 4:14,91 og 4x200 m skriðsundi 9:12,28. -
Bikarkeppni 1. deildar fór fram í lok nóvember í Reykjavík.
Sundfélag Hafnarfjarðar sigraði í fyrsta sinn og fékk 27.510
stig, Sundfélagið Ægir varð í öðru sæti með 26.717 stig og
Keflvíkingar í hinu þriðja með 25.684 stig.
Tennis. Islandsmót var haldið í Reykjavík í ágúst. í ein-
liðaleik varð Gunnar Einarsson íslandsmeistari í karla-
flokki, en Hrafnhildur Hannesdóttir í kvennaflokki.
Þolfimi. íslandsmót var haldið í Reykjavík í janúar.
Magnús Scheving sigraði í karlaflokki. Magnús varð Evr-
ópumeistari í 2. sinn í Búlgaríu í febrúar. Hann varð fimmti
á heimsmeistarmóti í París í desember.
KIRKJAN
Prestastefnan var haldin í Reykjavík í júní. Aðalefni
hennar var: Staða, stjórn og starfshættir Þjóðkirkjunnar. -
(128)