Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Page 161
jónsdóttur, sem varð efst í fyrra forvalinu. í síðara skiptið
varð Kristín Halldórsdóttir efst.
I kosningabaráttu sinni höfðaði Alþýðuflokkurinn mjög til
þess, að hann vildi, að íslendingar sæktu um aðild að Evrópu-
sambandinu til þess að láta koma fram, hvaða skilmálar byðust
Islendingum. Sjálfstæðisflokkurinn var á móti þessu, og stefndu
stjómarflokkamir því nokkuð hvor í sína átt fyrir kosningar.
Sjálfstæðismenn lögðu mikla áherzlu á það, að þeir einir gætu
myndað tveggja flokka stjóm. Flokkurinn varaði kjósendur
við því að „ganga í 50 milljarða króna loforðagildm vinstri
flokkanna“. Alþýðubandalagið vildi, að andstæðingar Sjálf-
stæðisflokksins gerðu með sér bandalag um myndun vinstri-
stjómar eftir kosningar og lagði fram drög að stjómarsáttmála
slíkrar stjórnar og tillögur um helztu aðgerðir fyrstu 100 dag-
ana. Þessu undu framsóknarmenn illa, en sögðust þó stefna að
því, að stjórnarandstæðingar mynduðu stjórn eftir kosningar,
ef ríkisstjórnin missti meirihluta sinn. Aðalslagorð þeirra
voru: „Fólk í fyrirrúmi, endurreisn heimilanna.“ „Kosningar
snúast um traust.“ Þjóðvaki vildi sameina alla vinstri menn.
Alþingiskosningar
Alþingi var rofið 25. febrúar og kosningar boðaðar 8.
apríl. Alþýðuflokkur - Jafnaðarmannaflokkur Islands (A),
Framsóknarflokkur (B), Sjálfstæðisflokkur (D), Alþýðu-
bandalag og óháðir (G), Fjóðvaki, hreyfing fólksins (J) og
Samtök um kvennalista (V) buðu fram í öllum kjördæm-
um. Kristileg stjórnmálahreyfing (K) og Náttúrulagaflokk-
ur íslands (N) buðu fram í Reykjavík og á Reykjanesi og
Náttúrulagaflokkurinn auk þess í Suðurlandskjördæmi. Þá
var boðinn fram Vestfjarðalisti Péturs Bjarnasonar (M) og
Suðurlandslisti Eggerts Haukdals (S).
Um úrslit kosninganna almennt má segja, að Framsókn-
arflokkur vann mest á, en Alþýðuflokkur og Kvennalistinn
töpuðu verulega. Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubandalag
töpuðu lítillega, og nýi flokkurinn, Þjóðvaki, fékk miklu
minna fylgi en búizt hafði verið við. Hvorki Pétur Bjarna-
son né Eggert Haukdal komst á þing.
(159)